Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Qupperneq 17

Fálkinn - 13.07.1964, Qupperneq 17
Mynd á bls. 16. Klukkan er hálfsjö a'ð morgni jónsmessu. Það er helli* rigning, þegar Jón gengur frá heimili sínu norður Þingholtsstrætið og kraginn er brettur upp. Að loknu morgunútvarpi fer Jón fram á tónlistardeild og tekur til við að leita sér að plötum í næsta morgunútvarp. leið á þessum tíma, veita menn því athygli. Þá leggja þúsundir svefndrukkinna íslendinga við hlustirnar og velta því fyrir sér, hvers vegna hann Jón Múli sé ekki í morgunútvarpinu. Við sátum fyrir honum um hálfsjöleytið að morgni Jónsmessu, 24. júní. Það var hellirigning og við biðum í leigubíl. Klukkan nákvæmlega hálfsjö opnuðust dyrnar út í sundið og Jón gekk niður tröppurnar. Kraginn vat' brettur upp í háls að þessu sinni Hvergi sást nein upi- ferð og Jón gekk úti á miðri götu. Runólfur snaraðist út úr bílnum og tók myndir. Síðan buðum við Jóni bíl- far niður eftir og engu slíku vant gekk Jón ekki venju" legu leiðina sína. Það var enginn kominn í útvarpshúsið, þegar við renndum þar að og Jón opnaði útidyrnar, og næstu skrefum hans hefur þegar verið lýst hér að framan. Er hann kom inn á skrifstofu sína dró hann fram bunka af hljómplötum og síðan gengum við ganginn til baka, fram í þularstofuna, ,,hið allra helgasta", þaðan, sem töluðu máli er útvarpað beint og ekkert orð verður aftur tekið. sem sagt hefur verið, sé opið fyrir hljóð- nemann á annað borð. FALKINN Jón kemur manna fyrstur að Skúlagötu 4 þennan morgun eins og flesta morgna. Á nær því hverjum virkum morgni, árið um kring, klukkan hálfsjö, gengur ljóshærður maður niður mjóar tröppur, er liggja milli gamals og nýs húss, sem bæði bera númer 27 við Þingholtsstræti í Reykjavík. Venju- legast er hann klæddur brúnleitum rykfrakka, og þegar rigning er, er kraginn brettur upp í háls. Hann gengur norður Þingholtsstrætið — stundum eftir miðri götunni, því samborgararnir, sem eiga bíla, eru yfirleitt ekki komnir á fætur — út að Spítalastíg, beygir þar upp í Ingólfsstræti. Síðan gengur hann í átt til sjávar, unz hann kemur á Skúlagötuna, sveigir til hægri og gengur að dyrum nýlegs, hvíts húss, sem stendur að nokkru á súlum, opnar útidyrnar, gengur að stimpilklukku, stimpl- ar sig inn, fer síðan í lyftu upp á efstu hæð — þá sjöttu — opnar þar gangsdyrnar, gengur inn langan gang til hægri, opnar glerdyr fyrir enda hans, beygir enn til hægri, gengur tvö eða þrjú skref og opnar enn einar dyr. Á hurðinni er skilti og á því stendur :JÓN MÚLI ÁRNA- SON. Vetur, sumar, vor og haust gengur hann þessa sömu leið, hvernig sem viðrar. Það eru fáir komnir á stjá, og fáir veita för hans athygli, en ef hann fer ekki þessa . .Þá skulum við hlusta á Jóns- messunætur- draum ©ftir Mendelsohn...“ „ ... og nú heyr- um við Jane Froman syngja Blue Moon ...“

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.