Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Síða 21

Fálkinn - 13.07.1964, Síða 21
Mikil áherzla er Iög@ á alls konar Iíkamlega þjálfun. og Essex og hét þá Bourchier og varö einn þeirra erkibiskup af Kantaráborg og kardináli. MóÖurœtt Bouchers er dströisk og írsk, móöurafinn var sjómaöur. — Ariö 1932 hóf dr. Bouc- her ndm viö Winchester College, sem um getur í þessari fyrstu grein hans og síöar nam liann viö Trinity College i Cambridge og lauk þar meistaraprófi í enskum bólcmenntum. Áriö 1939 gegndi Alan Boucher herkalli og var skipaöur foringi í stórskotáliöinu, var sendur til Frakklands og siöan til íslands, í júní 19jO. 1 fyrstu haföi hann umsjd meö loft- varnabyssum á Göröum á Alftanesi en seinna á aöálbæki- stöövum hersins á Artúni viö EUiÖaár. Árið 191)2 kvæntist hann islenzkri konu, Áslaugu dóttur Þórarins GuÖmunds- sonar skipstjóra frá Ananaust-um og ftuttu þau síöan-til Eng- lands. AÖ striöinu loknu geröist Alan Boucher kennari viö Ampleforth College, skammt frá Jórvík. Þar bar saman fundum lians og dr. Siguröar Nordals, sem livatti hann til aö leggja stund á íslenzk fræöi í Reykjavík. Ariö 1948 fluttist Boucher slöan til fslands og nam tvö ár viö háskólann undir handleiöslu prófessoranna Nordals og Einars 01. Sveinssonar. A sumrin var hann gæzlumaöur hjá Stangaveiðifélagi Reykja- víkur, árvöröur viö Laxá í Kjós. Áriö 1950 sneri Boucher síöan aftur til Cambridge og lauk þar doktorsgráöu í íslenzkum fráöum. Doktorsritgerðin fjallaöi um Ilallfreöar sögu vandrceöaskálds. Voriö 1951 var honum boöin staöa viö frœösludeild BBG sem leikstjóri og dagskrárstjóri í enskum bólcmenntum og hjá þeirri deild hefur liann starfaö í þrettán ár. Auk ensku þáttanna hefur hann samiö útvarpsþætti um heimspekileg efni, visindi og feröaþætti margs konar. Þessu starfi hefur Alan Boucher nú nýlega sagt lausu í því skyni aö snúa aftur til lslands þar sem hann unir sér einna bezt. Siöastliöin ár hefur Boucher skrifaö um þaö bil 15 bcekur fyrir börn og unglinga og flestar um íslenzk efni. Greinar sínar ritar Boucher á íslenzku. Það er álit margra, að á Englandi hafi tekizt mjög vel að sameina á annan bóginn fornar venjur og stofnanir fyrri alda, og á hinn bóginn hugsunarhátt nútímans, frjálsræði umburðarlyndi og þar fram eftir götunum. — En það sem vekur bæði undrun og hneyksli hjá útlendingum (ekki sízt hjá íslendingum, er búa á landi, sem er blessunarlega laust við slíkt) er stéttarmunurinn og broddborgaraskapurinn sem er svo ríkur í fari Englendinga. Nú á dögum munu flestir hallast að þeirri kenningu Karls Marx’s að stéttir skapist á efnahagslegum grundvelli, — að minnsta kosti, að verulegu leyti. Stéttarmunurinn er þó flóknara fyrirbrigði og virðist koma fram í ólíkum myndum, jafnvel þótt efnahagsgrundvöllurinn sé sá sami, eða þá mjög svipaður — eins og til dæmis, á Bretlandi, á Norðurlöndum, og í Bandaríkjunum. Hvað ætli það muni þá vera, sem veldur mismuninum? Það er efalaust menntunarkerfið, sem miklu veldur um en á Bretlandi þá ætti heldur að tala um menntunarkerfin. Þar sem um tvö óháð kerfi er að ræða: kerfi ríkisskólanna og kerfi einkaskólanna. Áhrifamestu einkaskólarnir eru þeir, sem með óviljandi kaldhæðni eru kallaðir „public schools’ (almennir skólar), en því fer fjarri að þeir séu almennir, heldur eru þeir einkum ætlaðir börnum ríkra manna. Einkaskólakerfið brezka er langtum eldra en menntunar- kerfi ríkisins. Sumir hinna almennu skóla eiga rætur sínar að rekja langt aftur í aldir, til prestaskóla kaþólsku kirkjunnar. Þess ber að minnast, að á miðöldum útvegaði prestastéttin ekki aðeins presta til þess að þjóna kirkjum, heldur einnig alla embættismenn, lögfræðinga, kennara, ritara o. s. frv. með öðrum orðum, allt menntafólk landsins. Því á þeim dögum var aðalsstéttin yfirleitt ólæs, stétt hermanna og landeiganda, sem sendu börn sín til annarra höfðingja, eins og títt var á íslandi á söguöld, til þess að læra þær listir, er hæfðu þeirra stöðu: stríðsmennskulistir, reiðmennsku veiðimennsku, hegðun og venjur hirðarinnar, og ef til vill einhverja sönglist, til þess að ganga í augun á kvenfólkinu. Konungur og aðall ríktu í orði kveðnu, en jafnvel í verald- legum málum voru það þó klerkarnir — prestar eða prest- lærðir menn — er stjórnuðu ríkinu. Á 14 öld olli svartidauði því, að mikill hörgull varð á menntuðu fólki í landinu. Margir nrestar kunnu varla nóg til þess að stafa sig fram úr latnesku messubókinni. Auk 21 FALKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.