Fálkinn


Fálkinn - 13.07.1964, Síða 24

Fálkinn - 13.07.1964, Síða 24
Stöðugt fjölgar bifreiðum landsmanna og þeim tegundum sem fluttar eru til landsins. Um leið aukast möguleikarnir fyrir því að menn geti fundið þann bíl, sem þeir leita að, að minnsta kosti ef þeir gefa sér tíma til að kynna sér það sem á boðstólum er. í fyrra hóf fyrirtækið 0. Johnson & Kaaber h.f. innflutning á hollenzkum bílum sem heita Daf. Þetta eru litlir bílar og vöktu þegar mikla athygli fyrir ýmsa góða eiginleika sína. Verksmiðjur þær, sem framleiða bílana, eru tiltölulega nýlega byrjaðar þessa framleiðslu, en engu að siður hafa bílarnir náð mikilli útbreiðslu. í heimalandi sínu eru þeir notaðir til margra hluta. t. d. sem lögreglu- og sjúkrabílar. í því fjöllótta landi Sviss eru þeir mjög vinsælir. Það er því líklegt að þessir bílar henti vel hér á landi. Þessa bíla er hægt að fá í tveimur tegundum. Er sú ódýrari á rúmar eitt hundrað og tuttugu þúsundir en hin um tu þúsund krónum dýrari. Alls munu nú vera komnir um eitt hundrað bílar af þessari gerð. Það fyrsta, sem vekur athygli manns er hversu bíllinn er allur einfaldur, þægilegur og stílhreinn Sætin eru þiægileg, útsýni gott og óvenju rúmgott farangursrými í ekki stærri bil c'apti oru kifedd góðu áklæði sem gott er að þvo. Mælaborð- ið er stílhreint og þannig frágengið að ekki veldur endur- speglun í framrúðu. En það sem einlcum vekur athygli manns er ganghraða- skiptingin, enda er hér á ferðinni mjög óvenjulegur hlutur. Hér er engin kúpling, engin gírstöng og enginn gírkassi. f stað gírkassa kemur Variomatic, einfaldur útbúnaður, sem saman sténdur af fjórum V-reimahjólum samantengdum með tveimur V-reimum. Orka vélarinnar vinnur á hvort afturhjól fyrir sig, án mismunadrifs. Hvort afturhjólið vinnur því óháð hinu. Skiptingin stjórnast því eingöngu af benzín- inngjöfinni, án fótstigs fyrir kúplingu og án gírstangar. Þetta hefur marga kosti í för með sér. Bifreiðin verður þægileg í akstri þar sem er mikil umferð og þetta kemur sér einnig vel varðandi framúrakstur. Vélin er tveggja strokka fjórgengisvél og sparneytin. Hér fara á eftir nokkrar tæknilegar upplýsingar varðandi Dafodil. TÆKNILEGAB UPPLÝSINGAR Stærð og þungi: Fjarlægð milli fram- og afturhjóla Mesta lengd 2.05 m 3.61 m Mesta breidd 1.44 m Mesta hæð 1.38 m Breidd framsæta 1.21 m Breidd aftursæta 1.25 m Rúmmál farangursgeymslu Skoðunarþungi Leyfilegur hleðsluþungi Mesti leyfilegur hraði Benzínevðsla 0.98x0.98x0.46 660 kg 330 kg 105 km 6.75 Ipr. 100 km Sjálfskipting: Dnfverksmiðjurnar kalla sjálfskiptingu sína Variomatic. Þessi útbúnaður hefur ótakmark- að sjálfvirkt snúningshraðaval á milli vélar op v,ióin frá 16.4 : 1 til 3.9 • 1. Óháð fjöðrun á öllum hjólum: Framhjól: þveríjöður og tvívirkur högg- deyfir. Afturhjól: gormar með tvívirkum högg- deyfum. Felga 13”. Hjólbarðar 145x330. \ r týris.hh',1: Öryggisstýri. Snúningsradius 4,o5. Hemlar: Vökvahemlar á öllum hjólum, handhemill að aftan. Rafkerfi: 6 volt — 240 wött — 80 amp/rafhlaða. Benzíngeymir: Rúmar 32 lítra. Vélin: Tveggja strokka fjórgengisvél liggjandi. Borvídd og slaglenglengd 85,5x65 mm. Rúmtak 746 cc. Hestöfl: 30 á 4000 s. h. p. m. ALLIR DÁSAMA DAF 24 FALKINN FALKINN 25

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.