Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 2

Stúdentablaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 2
Kosningar í Háskólanum: Röskva sigrar tíunda árið í röð - báðar fylkingar sáttar við kosningabaráttuna Það hefiir vart farið fram hjá neinum að kosningar til Stúdentaráðs og Háskóla- ráðs eru um garð gengnar. Röskva sigraði tí- unda árið í röð og fékk fimm kjörna í Stúd- entaráð en Vaka fjóra. Hvor fylkingin fékk mann í Háskólaráð. Heldur hefúr dregið saman með fylkingunum en kjörsókn jókst nokkuð milli ára en er þó enn undir 50%. Deilur sköpuðust ekki einungis um hefð- bundin málefhi eins og lánasjóðsmál og skylduaðild. Skoðanakönnun sem Vaka gerði vakti upp háværar deilur. Röskvumenn gagnrýndu könnunina og sögðu að hún hefði verið framkvæmd undir fölsku flaggi en það var Akademía, styrktarsjóður Vöku, sem gerði könnunina. Vökumenn vísuðu allri slíkri gagnrýni á bug. í kjölfar kosning- anna kom út árþúsundablað Röskvu þar sem endurskoðun heimssögunnar vakti hörð viðbrögð Vökumanna meðal annars vegna þess að sagt var að hefðu I’jóðverjar hernumið ísland á undan Bretum í síðari heimsstyrjöldina þá væru hér á landi fleiri hórlindsdætur og -synir. Nýr formaður SHI vildi ekki tjá sig um efni blaðsins og sagði það algjörlega á ábyrgð ritstjórnar blaðsins. Ekki náðist í ritstjóra blaðsins. Þrátt fyrir deilumál segjast forsvarsmenn fylkinganna vera sáttir við kosningabarátt- una. „Kosningabaráttan var stutt en hressileg," segir Eiríkur Jónsson, nýr formaður SHÍ. „Við í Röskvu lögðum höfúðáherslu á að kynna stúdentum þau málefni sem við ætí- um að koma í framkvæmd og það fólk sem ætlar að koma þeim í framkvæmd. I'að var virkilega ánægjulegt að sjá hversu margir lögðu Röskvu lið í baráttunni og stcmning- in í hópnum var einstök. Þessi góðu úrslit eru öllu þessu góða og duglega fólki að þakka. Einnig var virkilega ánægjulegt að sjá kjörsóknina aukast á milli ára." „Kosningabaráttan var skemmtileg og náði Vaka frábærum árangri. Reyndar þeim besta í níu ár. Hundruð manna störfuðu að kosningunum fyrir Vöku. Engum dylst að Vaka er í mikilli uppsveiflu og mun halda áfram því öfluga starfi sem einkennt hefúr félagið að undanförnu," segir Þórlindur Kjartansson, formaður Vöku. Áúrslltastundu Andrúmsloftið á kosningahátíð Röskvu var þrungið spennu þegar Daila Ólafsdóttir kynnti úr- siitin. Eins og sést tók gleðin þó fljótlega völd. Vaka kærir ógildingu utankjörfundaratkvæða: Heimsendingarþjónusta á atkvæðum - segir Eiríkur Jónsson, formaður SHÍ. Ofbeldi segir Þórlindur Kjartansson, formaður Vöku. Máiefni Stúdentasjóðs: Sjálfstæði sjóðsins fórnað - segir Vaka. Ekki komið niður á starfsemi sjóðsins segir Röskva. Miklar deilur komu upp í sambandi við framkvæmd utankjörfundaratkvæða- greiðslu í kosningum til Stúdentaráðs og Háskólaráðs. Kjörstjórn tók þá ákvörðun á kosninganótt að ógilda utankjörfúndarat- kvæði sem Röskva taldi að hefði verið aflað á ólöglegan hátt. Eiríkur Jónsson, formaður SHÍ, segir að framkvæmdin hefði verið afar óeðlileg og ekki í samræmi við reglur. Vaka var með einhverskonar heimsend- ingarþjónustu á atkvæðum og ætíuði að byggja á ákvæði sem hugsað er sem algjört undantekningarákvæði fyrir þá sem komast alls ekki á kjörstað, t.d. vegna veikinda,“ segir Eiríkur. „Þrátt fyrir skýr lagaákvæði um að kjörstjórn hafi yfirumsjón með allri utan- kjörfúndaratkvæðagreiðslu ætluðu Vöku- menn að gera þetta á bak við tjöldin. Þeir töluðu ekki við neinn innan kjörstjórnar, heldur fóru fúlltrúar Vöku í kjörstjórn í það að sækja atkvæði heim til fólks og ætíuðu greinilega að koma atkvæðunum í talningu án vitundar annarra kjörstjórnarmeðlima. Hér var því um algjöran trúnaðarbrest að ræða. Það getur ekki samræmst nokkurri lýðræðishefð að póhtísk fylking sé að sækja sér atkvæði út í bæ utan kjörfúndar án vit- undar annarra í framboði eða kjörstjórnar. Það er grundvallaratriði lýðræðis að öllum sé veittur jafn réttur til að kjósa og því er meginreglan að kosið sé á fyrirfram auglýst- um kjörfúndi. Sú regla er augljóslega þver- brotin ef valdir eru ákveðnir aðilar sem fá sérstaka heimsendingarþjónustu á kjörseðl- um án nokkurs samráðs við kjörstjórn". Þessu neitar Þórlindur Kjartansson, for- maður Vöku, og segir að ógildingin verði kærð. „Vaka mun kæra hið svínslega ofbeldi sem kjósendur voru beittir af kjörstjórn þegar á sjötta tug atkvæða voru dæmd ógild án nokkurrar lagastoðar. Þessi gjörningur var fúlltrúum Röskvu til háborinnar skammar. Það að virða að vettugi leikreglur lýðræðis- ins bendir ekki til annars en að annarleg sjónarmið hafi ráðið ferðinni. Það er stór- kostíega alvarlegt að svipta stóran hóp kjós- enda atkvæðisrétti sínum í krafti meirihluta í kjörstjórn. Slíkt siðleysi má ekki endurtaka sig.“ Fyrr í vetur upphófúst nokkrar deilur um hvernig haldið var á samningum milli SHÍ og HÍ um Stúdentasjóð. Vaka sakaði meirihlutann um kæruleysi með því að semja ekki um sjóðinn um leið og aðrir samningar við Haskolann voru gerðir. „Það er fyrir neðan allar hellur að þetta mál klarist ekki á starfsári Stúdentaráðs og fráfarandi forystu til lítils sóma,“ segir Þórlindur Kjartansson, formaður Vöku. „Eins er merkilegt að verða vitni að því að forysta Stúdentaráðs, þrátt fyrir yfirlýsingar um áframhaldandi sjálfstæði sjóðsins, skuli á síðasta starfsdegi sínum loks viðurkenna að Háskólinn, sem hefúr tögl og hagldir í samningaviðræðunum, hafi viðrað hugmyndir um bein áhrif á úthlutun styrkja úr sjóðnum. Það eru bág eftirmæli að hafa með trassaskap og kæruleysi fórnað sjálfstæði Stúdentaráðs og Stúdentasjóðs til þess eins að tryggja pólitískan framgang sinn.“ Eiríkur Jónsson, formaður Stúdentaráðs, vísar ásökunum Vöku á bug. „í vetur hefúr verið unnið að því að koma föstu landi undir Stúdentasjóð, en ný Iög um Háskóla íslands breyttu umhverfi hans talsvert. Staðið hafa yfir viðræður við Háskólann og meðan á því hefúr staðið hefúr Háskólinn innt af hendi ffamlög til sjóðsins. Viðræðurnar hafa því ekki á nokkurn hatt komið niður á starfsemi Stúdentasjóðs eða nemendafélaganna. Nú liggur fyrir tillaga um fyrirkomulag sjóðsins sem rædd verður á vettvangi Stúdentaráðs og Háskólaráðs“. 2 stúdentablaðið - mars ‘00

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.