Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.03.2000, Side 8

Stúdentablaðið - 01.03.2000, Side 8
Eiríkur Jónsson er nýr formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands Dreymdi ekki pólitíska drauma „Hagsmunabar átta stúdmta skíptir gríöatlega nvklu máli. Það skiptir alla stúd- enta máli hvern ig kennsian í Há- ’skólanum er. hvernig aðstööu við höfum, hvada námslán víð fá um og þar fram eftir gotunum. Á vettvangi Stúcl- entaráós hafa stúclentar rauri- - verulegan mðgu- leika á að móta það háskólasarri- félag sém við bú um í og háfa áhhf." Nýr maður er sestur í stól formanns Stúdentaráðs Háskóla íslands. Ei- ríkur Jónsson hefur tekið við stjórn- artaumum úr hendi Finns Beck. Einnig er kominn til starfa nýr framkv£mda- stjóri, Haukur Þór Hannesson, sem tek- ur við af Pétri Maack. Báðir tóku þeir s£ti í Stúdentaráði Jyrir ári síðan. Góð reynsla Eiríkur er „dreifari" í húð og hár, ættaður frá knattspyrnubænum Akrancsi. Hann fæddist raunar í Göttingen og bjó þar og í Noregi fyrstu tvö ár ævi sinnar. Eiríkur er með því yngsta sem gerst hefur um formenn Stúdentaráðs, -hann er fæddur árið 1977 og því einungis 23 ára gamall. Eiríkur gerir eins árs hlé á námsferli sínum við lagadeild. Hann segir að það haíi ekki staðið neitt í sér að seinka námi sínu. „Sú reynsla sem þetta starf geíúr er gríð- arlega góð og á eftir að nýtast mér vel í ffamtíðinni," segir Eiríkur. „Ég hef síðasta ár staðið í hagsmunabaráttu stúdenta gagn- vart Lánasjóði íslenskra námsmanna. Sú bar- átta er að mörgu leyti hrein Iögffæði og því mjög þroskandi fyrir laganema.“ Leiðin ekki ákveðin Ætlarðu á þing? „Ég ætla nú að taka einn dag fyrir í einu. Ég hef ekki hugsað mikið um hvert leiðin liggur að loknu námi. Megináherslu legg ég á að verða góður lögffæðingur. Ég hugsa embætti formanns ekki sem stökkpall inn á þing.“ En er embnttið stökkpallur? „Eað hefúr sýnt sig að þeir sem gegna þessu embætti hafa oft orðið áberandi í þjóðfélagsumræðunni þegar ffá líður. I'að sýnir því hversu góð reynsla það er að gegna þessu embætti. Starfið er góður undirbún- ingur undir ffamtíðina enda er reynsla af mannlegum samskiptum og stjórnun gríðar- lega mikilvæg í því þjóðfélagi sem við hrærumst í.“ Ekki í útburðinn Afhverju löpffrœði? „Ég hóf nám í lögffæði vegna þess brenn- andi áhuga sem ég hef á öllum þjóðfélags- málum. Lögfræðin er mjög fjölbreytt nám sem er í hringiðu þjóðlífsins. Þegar ég út- skrifaðist úr Fjölbrautaskóla Vesturlands var ég ekki alveg viss hvert ég stefndi en það var þó ljóst að valið stóð milli húmanískra greina, sagnfræði, stjórnmálafræði og lög- fræði. Lögffæði er meira en margir telja. Lögfræðingar eru ekki bara rukkarar sem bera út fátækar ekkjur en það er myndin sem margir hafa af lögfræðingum. Lögfræði snýst um grundvöll þjóðfélagsins, lögin sem við lifúm eftir.“ Einsleitar ríkisstjórnir Lögffæðingar hafa verið mjög áberandi á Al- þingi og í stjórnun landsins undanfarna ára- tugi. í raun mætti segja að lögfræðingar hafi málað þjóðfélagsmynd landsins. Eiríkur tel- ur að of mikið sé af lögfræðingum á þingi og eðlilegra væri að jafnari hlutföll stétta hefðu setu á Alþingi. Eðlilegt er að sem breiðastur hópur komi að því að setja þær almennu reglur sem við eigum að fara effir. Fessi mikli fjöldi lögfræðinga á þingi hefði gert það að verkum að sumar ríkisstjórnir hafa verið einsleitar. Djúpstæður stjómmálaáhugi „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á pólitík og ffá unglingsárunum verið vinstrisinnaður. Ég lenti oft í miklum rökræðum um pólitík í framhaldsskóla en á þeim árum var stofnað Félag ungs vinstra fólks á Vesturlandi. Mér finnst stundum að sú skiigreining á pólitík sem flestir miða við sé of þröng. Flest sem við tökum okkur fyrir hendur tengist pólitík á einhvern hátt, viðhorf okkar eru ávallt bundin ákveðinni hugmyndaffæði.“ Eiríkur segist ekki hafa gengið með neina pólitíska drauma í maganum þegar hann kom í Háskólann. I’að leið þó ekki á löngu áður en hann var beðinn um að taka fjórða sæti á lista Röskvu tii Stúdentaráðs. Hann tók sér tíma til að íhuga tilboðið en ákvað að slá svo til. Eiríkur var formaður Nemendafélags FVA en samt sem áður skyidi maður ætla að há- skólalífið hafi í nokkru verið frábrugðið því sem hann hafði kynnst uppi á Skaga. „Fjölbrautaskóli Vesturlands er reyndar stærri en margir telja. Sexhundruð manns stunda nám við hann. Skipulag Háskólans gerði viðbrigðin líka minni því að því miður er mjög sterk skipting milli greina. Það sam- félag sem ég gekk inn í í Lögbergi var því í raun nokkru minna en það sem ég hafði yf- irgefið á Skaganum. Mér finnst mjög mikilvægt að Stúdenta- ráð vinni að því að efla samkennd stúdenta. Mikil vinna með námi gerir það til dæmis að verkum að það er ekki jafn einkennandi að vera stúdent og fyrir nokkrum árum.“ Tíu ára sigurganga Röskva hefur unnið allar kosninpar til Stúd- entaráðs síðustu tíu árin. Stendur Röskva jyrir það sama nú ogJyrir tíu árum? „Ég held að Röskva hafi alltaf gert það. Meginstoðin í hugmyndafræði Röskvu er krafan um jafnrétti tii náms og það er jafn mikilvægt nú og fyrir tíu árum að standa vörð um það. Sá hópur sem stendur á bak við Röskvu er líka breiður.“ Nú er fólk sem hefur starfað jýrir Röskvu sið- asta áratuginn að skila sér inn í þjóðmála- umr&ðuna. Steinunn V. Óskarsdóttir er framarlqga í borgarpólitíkinni, Þórunn Sveinbjarnardóttir er komin inn á þing og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson er orðinn for- maður ungra jafnaðarmanna. Er h&gt að tala um Röskvukynslóðina sem ákveðið jýrir- b&ri? „Já, það tel ég tvímælalaust. Fólk hefur skipað sér undir merki Röskvu og lært að vinna kosningar. Það er engin spurning að út úr þessu samstarfi hafa komið sterkir ein- staklingar sem eiga effir að hafa áhrif víða í samfélaginu.“ Var ekki á leiðinni í stúdentapólitík Margir hafa sterkar skoðanir á stúdentapóli- tíkinni. Hvað fannstþér um stúdentapólitík- ina pegar þú horýðir á hana úr fjarl&gð úr Framhaldsskóla Vesturlands? „Mér fannst hún alltaf spennandi en var þó fjarri því að hafa ákveðið þátttöku þegar ég hóf nám við HÍ. Stúdentapólitík er merkileg. Hagsmunabarátta stúdenta skiptir gríðarlega miklu máli. Það skiptir alla stúd- enta máli hvernig kennslan í Háskólanum er, hvernig aðstöðu við höfum, hvaða náms- lán við fáum og þar fram effir götunum. Á vettvangi Stúdentaráðs hafa stúdentar raun- verulegan möguleika á að móta það há- skólasamfélag sem við búum í og hafa áhrif. Því miður tel ég að oft hafi innri togstreita Stúdentaráðs farið á plan sem ekki sæmir stúdentum. Ég held að hægt væri að sam- einast betur um þau atriði sem fylkingarnar eru sammála um.“ Menntapólitíkin Sú pólitík sem rekin er í Háskólanum er ekki á breiðum grunni heldur snýst hún að sjálf- sögðu um menntapólitík. Heldurðu að mál- flutningur Stúdentaráðs hafi skilað sér út í þjóðfélagið og flokkana? „Það er ekki nokkur vafi á því að barátta stúdenta hefúr skilað sínu. í mörg ár hefúr verið tilhneiging stjórnvalda að láta til dæm- is sjúklinga borga mun stærri hluta af kostn- aðinum við meðferð þeirra og lækningu. Slík þjónustugjöld hafa komist á án mikils hávaða. Stúdentaráð hefúr greinilega tekist að halda uppi vörnum fyrir jafúrétti til náms því ekki hefúr reynst mögulegt fyrir stjórn- völd að koma á skólagjöldum. Stúdentar eru öflugur hagsmunahópur scm lætur í sér heyra og hefúr áhrif. Én við þurfúm að vera vakandi á verðinum, því ljóst er baráttan gegn skólagjöldum verður eitt mikilvægasta baráttumál Stúdentaráðs á næstu árum.“ Hvernig heldurðu að ímynd stúdenta sé gagnvart öórum þjóðfélagshópum? „Ég held að það sé enginn vafi á því að ímynd stúdenta sé mjög góð. Það cr aukin áhersla á menntun í þjóðfélaginu og þá að- allega á háskólamenntun. Það þykir fínt að vera í Háskóla íslands.“ Sigtryggur Magnason 8 stúdentablaðiö - mars ‘00

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.