Stúdentablaðið - 01.03.2000, Side 28
Þá eru kosningar að baki, nýir stúdenta-
ráðsliðar teknir til starfa og sumir af
þeim eldri hættir. Vaka vonast til þess að
* samstarf fylkinganna gangi sem allra best og
óskar nýjum stúdentaráðsliðum velgengi í
starfi. Vaka þakkar öllum þeim sem hjálpuðu
okkur í kosningunum og er þakklát fýrir það
hve margir voru tilbúnir að leggja hönd á
plóg. Því miður dugði það ekki tíl en þó má
benda á þá staðreynd að Vaka hefúr aldrei
hlotíð jafnmörg atkvæði í kosningunum og í
ár. Sú staðreynd er sérstaklega gleðileg.
Margt bendir til þess að starf Röskvu
verði stirt í ár þar sem svo virðist sem klofn-
ingur sé kominn upp innan raða Röskvu.
* Röskva klofin
Mannaskiptí eiga sér nú stað innan raða fé-
lagshyggjufólksins í Háskólanum. Nýtt fólk
er að taka við stjórn Röskvu og eldra fólk að
hætta. Þó virðist sem fólkið sem var við völd
getí illa sleppt hendinni af Röskvu.
Þessi staða kristallaðist í fári í kringum
margfrægt Árþúsundablað Röskvu. Að blað-
inu stóðu þrír nýliðar Röskvu og eru þeir í
blaðinu títlaðir í ritstjórn og jafnframt sem
ábyrgðarmenn. Völd þremenninganna
reyndust þó ekki mikil þar sem dreifing
blaðsins var stöðvuð eftir að blaðið var
komið úr prentun. Ástæðuna fyrir því telja
menn meðal annars vera þá að Finnur Beck,
fráfarandi formaður Stúdentaráðs, taldi
blaðið sýna um of tengsl Röskvu og Sam-
fýlkingarinnar.
Hvað getur Samfylkingin lært af Röskvu?
I blaðinu er viðtal við Kristrúnu Heimis-
dóttur, sem er einn af upphafsmönnum
Röskvu. Þar er hún spurð að því hvað Sam-
fýlkingin geti lært af Röskvu.
Þessi spurning var meðal annars ástæða
þess að stúdentar fengu ekki að sjá blaðið
Nýtt fólk tekur til starfa
fýrr en eftir kosningar þar sem þetta þótti
ekki henta „kosningastefnu“ blaðsins, sem
samkvæmt þessu er allt önnur en stefna
líkja andstæðinga sína við nasista, ættu
menn að setjast niður og hugsa sinn gang.
Að ætla að afsaka þau skrif með þeim hættí
Röskvu aðra daga en í kringum kosningar.
í blaðinu er ennfremur að finna söguskýr-
ingar Röskvu. Þar er sagan sýnd í nýju ljósi.
Röskva kemst þar að þeirri niðurstöðu að ef
nasistar hefðu hernumið ísland á undan
Bretum væri margur Islendingurinn Þór-
Undsson eða -dóttir.
Pólítískir andstæðingar hnýta hver í ann-
an, hafa alltaf gert og munu ætíð gera. En
þegar menn eru farnir að ganga svo langt að
að nasistalíkingin eigi að vera fýndin er í
hæsta máta ósmekklegt. Það er einkennileg-
ur hópur fólks sem finnst nasistar eða það
sem þeir standa fýrir broslegt.
Ógilding atkvæða
Eins og endranær var mikill hamagangur í
kosningunum og ásakanir á báða bóga. Slíkt
má heita eðlilegt í kosningaslag. Hitínn var
þó óvenjumikill í ár og Röskva gekk ansi
langt í því að beita meirihlutavaldi sínu.
í lögum Stúdentaráðs er heimild fýrir því
að þeir sem ekki komast á kjörstað getí feng-
ið menn úr kjörstjórn heim tíl sín og greitt
þar atkvæði. Röskva varð skyndilega þeirrar
skoðunar að þetta þætti henni undarleg
framkvæmd og ákvað að hunsa lög Stúd-
entaráðs. Röskva, sem var í meirihluta í kjör-
stjórn ógilti atkvæðin í krafti meirihlutí síns
og í trássi við lög Stúdentráðs. Talsverður
fjöldi atkvæða nemenda HÍ var því úrskurð-
aður ógildur þrátt fýrir að vera fúllkomlega
löglegur þar sem að Röskvu geðjaðist ekki
að framkvæmdinni. Röskva einfaldlega
þrengdi lýðræðislegan rétt stúdenta tíl þess
að kjósa.
Hvað er framundan?
Scm fýrr segir hafa nýir stúdentaráðsliðar
tekið við og fulltrúar Vöku að þessu sinni
eru þau Inga Lind Karlsdóttir, Hulda Birna
Baldursdóttir, Þorbjörg Gunnlaugsdóttír,
Borghildur Sverrisdóttir og Baldvin Þór
Bergsson sem jafnframt situr í Háskólaráði.
Allt er þetta fólk sem Vaka treystir tíl þess að
vinna gott og mikið starf og veita meirihlut-
anum tilhlýðilegt aðhald.
Þá verður innan tíðar kosin ný stjórn
Vöku og biður Vaka alla áhugasama um að
hafa samband við einhvern af þeim sem setja
nú í stjórn Vöku, eða senda okkur línu á
Vaka@hi.is. Stjórn Vöku sér um að halda
uppi starfinu, hún mótar stefnu félagsins í
samráði við stúdentaráðsliða Vöku og sér
auk þess tíl að félagslífið sé með allra besta
mótí, það er Vökudjammið.
Það er von okkar að enn fleiri komi að
starfinu en þegar er enda verður starfið mun
skemmtilegra og árangursríkara þegar nýtt
fólk kemur inn í starfið með nýjar og spenn-
andi hugmyndir.
Röskva þakkar traustið
Skemmtileg kosningabarátta
í Stúdentaráðs- og háskólaráðskosningun-
um þann 23. febrúar hélt Röskva meirihluta
sínum. Við í Röskvu þökkum það traust sem
stúdentar sýndu okkur með því að velja okk-
ur áfram tíl forystu. Jafnframt viljum við
þakka þeim mikla fjölda stúdenta sem tók
þátt í baráttunni og lagði allt í sölurnar.
Stemmningin sem ríktí í Risinu þegar úr-
slitín voru tilkynnt er ólýsanleg og niður-
staðan er fýrst og ffemst að þakka því fjöl-
marga fólki sem lagði Röskvu lið. Við hvetj-
um alla tíl að taka áfram þátt í starfi Röskvu
þannig að komandi starfsár megi verða ár-
angursríkt.
í kosningabaráttunni lögðum við höfúð-
áherslu á málefnalega og heiðarlega kosn-
ingabaráttu og þungamiðjan var að kynna
stúdentum málefnin sem við viljum koma í
framkvæmd. Við ætlum að koma þessum
stefnumálum í framkvæmd og munum
leggja okkur öll ffam til að svo megi verða.
Tíu ár á toppnum
Kosningasigur Röskvu í ár var sá tíundi í
röðinni og er greinilegt að stúdentar eru
ánægðir með störf SHÍ síðustu árin. Röskva
t hefúr í gegnum árin komið ffam sem hcil-
steypt og traust afl sem hefúr komið stefnu-
málum sínum í framkvæmd og látið verkin
tala. Stefna Röskvu hcfúr verið eindregin og
ekki sveiflast eftir vindáttum. Festa Röskvu í
helstu hagsmunamálum stúdenta hcfur
styrkt stöðu stúdenta verulega.
Ný forysta Stúdentaráðs
Á skiptafúndi Stúdentaráðs 15. mars síðast-
liðinn var kosið í nefndir og embættí ráðs-
ins. Eiríkur Jónsson var kjörinn formaður
Stúdentaráðs Háskóla íslands en ákveðið var
að ráða Hauk Þór Hannesson ffamkvæmda-
stjóra ráðsins. Báðir stóðu þeir sig frábær-
lega í árangursríkri kosningabaráttu Röskvu
og sýndu svo sannarlega hvers má vænta af
þeim í nýjum embættum. Er það mat flestra
sem tíl þekkja að forystuhlutverk stúdenta
við Háskóla íslands séu í góðum höndum.
Beck/Maack have left the office
En þegar nýir menn setjast í stóla verða ein-
hverjir að færa sig. Röskvumennirnir Finnur
Beck sem gegnt hefúr formennsku SHÍ síð-
astliðið ár og Pétur Maack framkvæmda-
stjóri ráðsins hafa staðið sig afar vel í störf-
um sínum fýrir stúdenta síðasta árið. Röskva
óskar Beck og Maack velfarnaðar og þakkar
þeim vel unnin störf.
Vertu Röskvumegin í tilverunni
Þó að kosningabaráttan sé búin er nóg að
gera í herbúðum Röskvu. Þátttaka í áhrifa-
ríku starfi Röskvu er skemmtíleg og góð
reynsla. Röskva býður áhugafólk um mál
stúdenta og Háskóla íslands velkomið í
hópinn. Vertu Röskvumegin í tilverunni.
Gleðskapur
í mars mun Röskva standa fýrir miklum
gleðskap. Var þar mikill glaumur og líka smá
glens. M.a. var frumsýnt myndband um
kosningabaráttuna og hið margrómaða
Röskvuband var ekki fjarri góðu gamni á
stokk. Við hvetjum sem flesta stúdenta til að
fýlgjast með öflugu félagsstarfi Röskvu. Það
kemur glaumur eftir þennan glaum og próf-
in eru ennþá hæfilega langt undan.
__________________________
28 stúdentablaðiö - mars ‘00