Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.03.2000, Side 35

Stúdentablaðið - 01.03.2000, Side 35
Altaristafla Vísindakirkjunnar í Washingtonborg er ekki hefObundin. Stór frístandandi mynd af L. Ron Hubbard, vísindaskáldsagnahöf- undi og stofnanda kirkjunnar. Mynd eftir Einar Ólason 4 Þrátt fyrir nokkuð slétt og fellt yíirborð Vísindakirkjunnar hafa komið upp hneyksl- ismál varðandi hana. Margir vilja reyndar segja að kirkjan sé einungis starfrækt til að hafa fé af grunlausu fólki með hefðbundn- um loforðum um betra líf. Mál Lisu McPherson „Ég er L. Ron Hubbard,“ tilkynnti konan í hótelherberginu með vélrænni röddu. „Ég skapaði tímann fýrir þremur milljörðum ára.“ Hún hélt áfram þvaðrinu og þeir sem fylgdust með henni skráðu það samvisku- samlega niður. „Ég get ekki mætt kraftinum... Ég þarfn- ast leiðbeinandans... Ég vil skrúbba gólfið með tannbursta þar til ég öðlast skilning.“ Orðanotkunin er auðskiljanleg þeim er kynnst hafa Vísindakirkjunni og boðskap hennar. Þeir sem komu í herbergið í Fort Harrison hótelinu, sem var hluti þjálfunar- umhverfis Vísindakirkjunnar í Flórída, gátu séð að unga konan Lisa McPherson hafði tapað vitinu. 17 daga einangrun í desember 1998 birtist frétt í Washington Post þar sem greint var frá dauðsfalli á hót- eli í Clearwater, Flórída. Lisa McPherson, 36 ára kona hafði látist fyrir aldur ffam. Þann 18. nóvember 1995 hófst einangr- un Lisu undir stjórn sérstaks hóps Vísinda- kirkjunnar sem sér um geðsjúka meðlimi og var í einu og öllu farið eftir skrifum Hubb- ards um meðferð þeirra. Enginn talaði við hana, hún var neydd til að borða, í hana sturtað vítamínum og jurtabætiefnum. Eftir 17 daga lést hún án þess að hafa nokkurn tíma fengið hjálp ffá sérffæðingum. Við krufningu kom í ljós að hún hafði látdst vegna blóðtappa sem hafði orðið til af völd- um ofþornunar og langvarandi legu. Á þess- um 17 dögum hafði Lisa lést um rúm 20 kíló. Umdeild orð Dauði Lisu er kannski sérstaklega umdeild- ur vegna viðhorfs þess sem kemur ffam í orðum stofnandans, L. Rons Hubbard. „Við höfúm ekkert að gera við þá geðveiku. Hinir geðveiku eru, jæja, þeir eru geðveik- ir!“ sagði hann í sjónvarpsviðtali. Það var því lítið hægt að gera fyrir þá. „Það þarf að sjá þeim fyrir nokkuð öruggu umhverfi, næði og hvíld og engri meðferð af geðrænum toga. Það verða alltaf einhver mistök,“ skrif- aði hann í stefnumarkandi bréfi árið 1965. „Stundum verður þeim ekki haldið hfandi.“ Gamlir draugar í kjölfar dauða Lisu var höfðað mál á hend- ur Vísindakirkjunni fyrir að hafa ekki séð til þess að Lisa fengi fagmannlega umönnun. Málaferlin vöktu upp gamla drauga í Cle- arwater. Andstæðingar Vísindakirkjunnar söfnuðust saman fyrir utan hótelið og mót- mæltu með orðunum „Scientology Kills“. Meðlimir Vísindakirkjunnar skipulögðu mótmælagöngur „til að mæta ofsóknum og fordómum“. Það var rifjað upp að á sjöunda áratugn- um beitti Hubbard öllum til að kaupa upp byggingar í miðbæ Clearwater. Samkvæmt minnisblöðum Hubbards var ætlunin að búa til borg sem algjörlega yrði stjórnað af Vísindakirkjunni og var liður í alheimsvæð- ingu samtakanna. Kona Hubbards og tíu háttsettir menn í Vísindakirkjunni voru dæmdir fyrir samsæri sem fólst í njósnum, hlerunum og innbrotum hjá opinberum að- ilum. Hubbard sjálfúr var ekki ákærður. *- • Þrátt fyrir áföll sem þessi er Vísindakirkjan enn í útrás og kannski er það bara tíma- spursmál hvenær hún kemur til íslands. Þá er bara að sjá hvernig íslensk stjórnvöld taka á trúfélagaskilgreiningunni og skattamálum kirkjunnar. Sigtryggur Magnason Grein þessi er m.a. byggð á fréttum frá Associated Press, Washington Post og fleirum. Áhugasömum er bent á heimasíðuna www.sci- entology.org, www.scientoiogy-kiits.org og www. whatisscientology. org. stúdentablaðið - mars ‘00 35

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.