Fréttablaðið - 12.10.2009, Side 2
2 12. október 2009 MÁNUDAGUR
Tebollur
með rúsínum og með súkkulaðibitum
Íslenskur gæðabakstur
ný
tt
BANDARÍKIN, AP Rúmlega sextug-
ur maður í Flórída greip byssu
sína þegar hann varð var við
umgang í íbúð sinni aðfara-
nótt laugardags. Þegar hann sá
mannveru á ferð hleypti hann
af.
Því miður reyndist þar ekki
vera innbrotsþjófur á ferðinni
heldur heitkona hans, sem hann
hafði ætlað að kvænast á laugar-
daginn.
Lögreglan í bænum Winter
Springs segir ekkert benda til
annars en að þarna hafi hörmu-
legt slys átt sér stað. Maðurinn
hafi haldið að heitkonan væri
sofandi í rúmi þeirra. - gb
Ætlaði að stöðva innbrotsþjóf:
Skaut heitkonu
sína til bana
ATVINNUMÁL Vinnumálastofnun
hefur sent bréf til 121 manns
sem er bæði á atvinnuleysis-
skrá og skráður í nám án þess að
hafa samið um það við stofnun-
ina. Undan farna daga hefur verið
unnið að því að samkeyra atvinnu-
leysisskrána við nemendaskrár
fjörutíu og þriggja háskóla og
framhaldsskóla í landinu.
Til þess að atvinnulausir megi
vera í námi án þess að missa rétt
til bóta þurfa þeir að semja skrif-
lega við Vinnumálastofnun. Fullt
nám er ekki heimilað en það er
hluti af svokölluðum vinnumark-
aðsúrræðum fyrir atvinnulausa að
þeir geti stundað hlutanám, sam-
hliða atvinnuleit. Baldur Aðal-
steinsson, verkefnisstjóri hjá
Vinnumálastofnun, segir að mun
fleiri nöfn hafi komið í ljós við
samkeyrsluna. Langflestir hafi
hins vegar verið með svokallaðan
námssamning við stofnunina og
því í fullum rétti.
Baldur segir að í námssamning-
um sé yfirleitt miðað við 33 pró-
senta nám sem hámark, en regl-
urnar eru nokkuð matskenndar og
sveigjanlegar. Algengt er að fólk
sæki 1-2 námskeið í háskóla eða
kvöldskóla án þess að það skerði
bætur.
Samkeyrslunni er aðeins lokið
að hluta. Baldur segir ljóst að mun
fleiri mál eigi eftir að koma upp.
„Við setjum okkur í samband við
þessa einstaklinga og fáum hjá
þeim úrskýringar á þessu. Í kjöl-
farið munu væntanlega einhverjir
detta af atvinnuleysisskránni en
þessi stjórnsýsla er tímafrek. Það
munu líða vikur þangað til við
vitum hvað það eru í raun og veru
margir sem hafa verið að reyna að
fá bætur með fullu námi.“
Eins og Fréttablaðið sagði frá
14. september voru 345 háskóla-
stúdentar í lánshæfu námi skráðir
atvinnulausir á síðasta skólaári og
þáðu atvinnuleysisbætur sem þeir
áttu ekki rétt á. 15. september lá
fyrir að 135 voru án námssamn-
inga. Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir að
óvíst sé til hvaða aðgerða verður
gripið til viðbótar gagnvart þeim
hópi. Reglugerð þar sem skýrt
var kveðið á um að ekki mætti
stunda lán á bótum var ekki sett
fyrr en í janúar á þessu ári, eftir
að kennsla hófst á vormisserinu.
Margir úr þeim hópi hafi því haft
einhverjar málsbætur og óvíst
um þýðingu þess að fara í frekari
aðgerðir. Stofnunin einbeiti sér að
því að hafa eftirlit með þeim sem
eru skráðir í nám á þessu skóla-
ári enda sé grundvöllur fyrir eftir-
litsaðgerðum nú mun traustari en
áður. peturg@frettabladid.is
121 námsmenn enn
á atvinnuleysisskrá
Samkeyrsla á atvinnuleysisskrá og nemendaskrám skóla leiðir í ljós að margir
eru í námi á atvinnuleysisbótum án leyfis. Atvinnulausir eiga möguleika á að
stunda hlutanám en aðeins ef þeir gera samning við Vinnumálastofnun.
ATVINNULEYSISSKRÁNING Atvinnulausir eiga möguleika á að fá að stunda hlutanám
án þess að missa bætur en verða að gera samning um það við Vinnumálastofnun.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÆKNI Kveikt var á friðarsúlunni sem tileinkuð er
minningunni um Bítilinn John Lennon í þrívíddar-
útgáfu af Viðey sem finna má í netsamfélaginu Sec-
ond Life, nokkrum stundum eftir sama viðburð hér
á föstudag.
Þrívíð persóna Yoko Ono, ekkju Lennons, hélt stutta
tölu við athöfnina í Second Life. Hún sagðist meðal
annars óska þess að fólk kæmi að súlunni þegar sól
hnigi til viðar dag hvern í samfélaginu og óskaði sér
friðar. „Munið að hvert okkar hefur kraft til að breyta
heiminum,“ sagði persóna hennar.
AFP-fréttastofan segir Yoko Ono hafa dansað að því
loknu fram á morgun. Tíminn líður hratt í Second Life
en sólarhringarnir þar eru sex á móti hverjum einum
í raunveruleikanum.
Kveikt verður á friðarsúlunni jafn lengi í net-
heimum og raunveruleikanum, eða frá fæðingar-
degi Lennons 9. október fram á dánardægur hans 8.
desember.
Friðarsúlan í Second Life er á þrívíddarútgáfu af
Viðey á netinu sem nefnist Imagine Peace Island og
mun þar vera nákvæm útgáfa af Viðeyjarstofu. Guð-
laug Elísabet Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Viðeyjar hjá
Reykjavíkurborg, segir ýmsa afþreyingu í boði fyrir
gesti neteyjunnar; þeir geti slakað á í heitum laugum,
hoppað á milli skýja og svifið yfir friðarsúluna í loft-
belg. - jab
FRIÐARSÚLAN SKÍN Kveikt er á friðarsúlunni til minningar um
John Lennon mörgum sinnum í þrívíddarútgáfu af Viðey á
netinu.
Nákvæm eftirlíking af Viðey í þrívíddarsamfélaginu Second Life:
Friðarsúlan skín líka á netinu
BRETLAND, AP Gordon Brown, for-
sætisráðherra Bretlands, ætlar
að safna þremur milljörðum
punda í breska ríkissjóðinn með
sölu ríkiseigna.
Meðal annars stendur til að
selja járnbrautarleiðina milli
London og Ermarsundsganganna.
Einnig verður Dartford-brúin
yfir ána Thames og göng undir
ána á sama stað seld.
Þá á að selja veðmálafyrirtækið
Tote og 33 prósenta hlut breska
ríkisins í evrópska fyrirtækinu
Urenco, sem framleiðir kjarn-
orkueldsneyti. - gb
Ráðstafanir í ríkisfjármálum:
Gordon Brown
ætlar að selja
Er þetta ekki smá-okur?
„Já, finnst ok(k)ur nokkuð?“
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda,
gagnrýndi í Fréttablaðinu á laugardag
svokölluð smálán sem sækja má um
með smáskilaboðum og bera ofurvexti.
Þau hafa sætt mikilli gagnrýni erlendis.
BANDARÍKIN, AP Þúsundir samkyn-
hneigðra komu saman við Hvíta
húsið í Washington í gær til að
krefjast þess að Barack Obama
Bandaríkjaforseti stæði við lof-
orð sín um aukin réttindi sam-
kynhneigðra.
Á laugardaginn lýsti Obama
því yfir að ekki yrði lengur kraf-
ist pukurs með samkynhneigð i
bandaríska hernum. Undanfarin
ár hafa hermenn mátt vera sam-
kynhneigðir, svo lengi sem þeir
fari ekki hátt með það, auk þess
sem yfirmenn í hernum hafa ekki
mátt spyrja út í kynhneigð her-
manna. - gb
Samkynhneigðir vestra:
Krefja Obama
um úrbætur
BARACK OBAMA Ætlar að afnema pukur
í hernum. NORDICPHOTOS/AFP
UMHVERFISMÁL „Það er sérkenni-
legt þegar ekki má benda á hið
augljósa. Það eru erfiðleikar með
bæði orkuöflun fyrir álver í Helgu-
vík og fjármögnun Hverahlíðar-
virkjunar,“ segir Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra.
Svandís var harðlega gagnrýnd
um helgina vegna viðtals við hana í
Fréttablaðinu á laugardag. Þar sagði
hún Orkuveituna ekki standa undir
skuldsetningu vegna virkjanafram-
kvæmda í Hverahlíð. Því yrði að
fara varlega.
Haft er eftir Guðlaugi G.
Sverris syni, stjórnarformanni
Orkuveitu Reykjavíkur, í yfirlýs-
ingu um helgina að Svandís hafi
ítrekað gert tilraun til að bregða
fæti fyrir verkefni sem tiltekin
séu í stöðugleikasáttmála stjórn-
valda og aðila vinnumarkaðar-
ins. Orkuveitan vinni að fimmta
áfanga Hellisheiðar virkjunar, lík-
lega einni mannaflsfrekustu fram-
kvæmd sem standi yfir á landinu.
Hún sé ekki fjármögnuð að fullu en
vilyrði sé fyrir langtímafjármögnun
frá Evrópska fjárfestingarbank-
anum sem nái einnig til helmings
Hverahlíðarvirkjunar. „Það er
ótækt að búa við það að fulltrúi ríkis-
stjórnarinnar leitist við að draga úr
fjárhagslegum trúverðug leika þessa
fyrirtækis,“ segir í yfirlýsingunni.
Svandís segir viðbrögðin býsna
öflug. Vissulega þurfi að tala um
málið áður en lengra sé haldið. „Mér
finnst viðbrögðin bera keim af pólit-
ískum leiðangri,“ segir Svandís.
- jab
Umhverfisráðherra segir gagnrýni bera keim af pólitískum leiðangri:
Ráðherra sagður tala OR niður
SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR Sökuð um að
bregða fæti fyrir verkefni Orkuveitunnar.
VIÐSKIPTI Finnska fjármálafyrir-
tækið Sampo er nú stærsti hlut-
hafi Nordea, umsvifamesta banka
Norðurlanda. Þetta kemur fram á
nýjum hluthafalista Nordea sem
birtur var á föstudag.
Sænska ríkið hefur fram til
þessa verið umsvifamesti hlut-
hafi Nordea en lengi hefur verið
ýjað að því að Sampo vilji taka
hann yfir. Bandaríska viðskipta-
tímaritið Forbes hafði eftir Kari
Stadigh, forstjóra Sampo, á föstu-
dag að sótt yrði um heimild til að
rjúfa tuttugu prósenta múrinn
fyrir árslok. Sampo á átta hundruð
þúsund bréfum meira en ríkið á í
bankanum. Hlutfallsleg eign er sú
sama, 18,9 prósent. Exista átti tæp
tuttugu prósent í Sampo en seldi
hlut sinn með milljarðatapi í efna-
hagshruninu fyrir ári. - jab
Sampo stærst í Nordea:
Vilja meira en
fimmtungshlut
ERLENT Hugo Chavez, forseti Venes-
úela, segir Bandaríkjaforseta, Bar-
ack Obama, ekki eiga Nóbelsverð-
launin skilið. Chavez vill meina
að Obama sé
ekki boðberi
friðar heldur
framfylgi
sömu stefnu og
forveri sinn,
George W. Bush.
Obama og
Chavez hittust
fyrst á opinber-
um fundi í apríl
og síðan þá hefur Chavez verið
mjög gagnrýninn á starf Banda-
ríkjaforseta.
Hann gagnrýnir einnig norsku
Nóbelsverðlaunanefndina. „Þeir
virðast hafa gleymt því að Obama
er harðákveðinn í að halda áfram
stríðsrekstri bæði í Írak og Afgan-
istan,“ sagði Chavez. - sm
Chavez gagnrýnir verðlaunin:
Obama á ekki
skilið Nóbelinn
HUGO CHAVEZ
SPURNING DAGSINS