Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.10.2009, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 12.10.2009, Qupperneq 10
10 12. október 2009 MÁNUDAGUR SAMGÖNGUR Fjöldi þeirra sem slasast í umferðinni á Íslandi hefur dregist saman um 16,3 prósent, sé fjöldi slasaðra á fyrstu sex mánuðum ársins borinn saman við sama tímabil í fyrra. Einar Magnús Magnússon, upplýsingafull- trúi Umferðarstofu, segir margar samverk- andi ástæður geta verið fyrir fækkun slysa. Ekki sé langt síðan viðurlög vegna umferðar- lagabrota hafi verið hert. Það, ásamt auknu eftirliti lögreglu, hafi leitt til þess að mjög hafi dregið úr hraðakstri. Sérstaklega hafi tilfellum þar sem ekið sé á ofsahraða fækkað. Samkvæmt rannsóknum Vegagerðarinnar hefur umferð ekki dregist saman þrátt fyrir kreppu, segir Einar. Því sé ekki hægt að skýra færri slys á fólki með minnkandi umferðarþunga. Á fyrri helmingi ársins slösuðust 657, samanborið við 785 á fyrri hluta síðasta árs, að því er fram kemur í samantekt Umferðar- stofu. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2007 slösuðust 760 í umferðinni. Þegar lagðar eru saman tölur yfir alvar- lega slasaða og látna í umferðinni er staðan eftir fyrri hluta árs svipuð og hún var á sama tímabili í fyrra. Nú létust 90 eða slös- uðust alvarlega, en 91 árið 2007. Í fyrra lét- ust 100 eða slösuðust alvarlega á fyrstu sex mánuðum ársins. - bj Slösuðum í umferðinni hefur fækkað um rúmlega sextán prósent frá því í fyrra: Minni hraði í umferðinni og þyngri viðurlög UMFERÐARSLYS Alvarlega slasaðir og látnir eftir umferðarslys á fyrri hluta ársins voru níutíu talsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SÁDI-ARABÍA Dómstólar í Sádi-Arabíu hafa dæmt 32 ára gamlan mann í fimm ára fangelsi fyrir að stæra sig af líflegu kynlífi sínu í sjónvarpi. Fangelsisdómurinn dugði þó ekki alveg sem refsing því honum er líka gert að þola þúsund svipuhögg. Mazen Abdul Jawad, fjögurra barna faðir, fór mikinn í þættinum „Þykka rauða línan“ sem er á dag- skrá líbanska sjónvarpsins. Hann talaði um unað sinn af kynlífi og lýsti því þegar hann missti svein- dóminn fjórtán ára gamall. Þá var hann myndaður í svefnherberg- inu umkringdur leikföngum ásta- lífsins. Þættinum lauk þar sem Jawad var fylgt eftir í ökuferð um stræti borgarinnar Jeddah, sem er skammt frá Mekka, í leit að væn- legum kvenkosti. Þessi opinberun Jawads fór svo fyrir brjóstið á sádi-arabískum yfirvöldum að hann var dæmdur og útibúi líbönsku stöðvarinnar í Jeddah og Riyadh lokað. Jawad var dæmdur eftir íslömskum sharia-lögum en samkvæmt þeim er samneyti karla og kvenna mjög takmarkað. Þá mega karlar ekki stunda kynlíf áður en þeir ganga í það heilaga. Áður en dómur féll hafði Jawad beðist afsökunar. Einnig sakaði hann líbönsku sjónvarpsstöðina um að taka ummæli hans úr samhengi. - th Dómstólar í Sádi-Arabíu dæmdu mann í fangelsi og til að þola svipuhögg: Stærði sig af líflegu kynlífi MEKKA Mazen Abdul Jawad er búsettur í Jeddah sem er skammt frá Mekka, einni heilögustu borg múslima. STJÓRNMÁL Bergur Elías Ágústs- son, sveitarstjóri Norðurþings, segir að áfram verði unnið á grunni vilja- yfirlýsingar um álver á Bakka þótt yfirlýsingin sem slík hafi ekki verið framlengd, að ákvörðun ríkisstjórnar- innar. Í samtali við Sveitarstjórnarmál, rit Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, segir Bergur Elías ákvörðun ríkisstjórnarinnar bakslag, „en við látum engan bilbug á okkur finna. Álver í landi Bakka við Húsavík mun rísa,“ segir hann. - bþs Sveitarstjóri Norðurþings: Álver í landi Bakka mun rísa BERGUR ELÍAS ÁGÚSTSSON UMHVERFISMÁL Tillögur um umhverfisgjöld tengd ferðaþjón- ustu koma líklega fram fyrir lok nóvember, að því er Svandís Svav- arsdóttir umhverfisráðherra sagði við setningu Umhverfisþings fyrir helgi. Fjármálaráðherra skipaði nefnd til að undirbúa gjaldtökuna í samræmi við samstarfsyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar. Þar segir að kanna eigi grundvöll fyrir umhverfisgjöldum tengdum ferða- þjónustu. Þau renni til uppbygg- ingar þjóðgarða og fjölsóttra, frið- lýstra áningarstaða ferðamanna og til eflingar ferðaþjónustu. „Standa vonir til að þessi tekju- stofn verði til þess að efla land- vörslu og náttúruvernd,“ sagði ráðherrann. - pg Gjald á ferðaþjónustu: Tillögur um umhverfisgjöld væntanlegar GEIMTRÚÐUR LENTUR Sirkusstjórinn og trúðurinn Guy Laliberte lenti ásamt tveimur félögum sínum í geimfarinu Soyuz TMA-14 í Kasakstan í gær, að lokinni níu daga dvöl í geimnum. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.