Fréttablaðið - 12.10.2009, Síða 12

Fréttablaðið - 12.10.2009, Síða 12
12 12. október 2009 MÁNUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Þessi ákvörðun kom mér nokkuð á óvart, en ég heyrði að Fidel Castro væri ánægður með þetta og þá ætla ég líka að vera ánægður með þessa ákvörðun,“ segir Guðmundur S. Brynjólfsson, rithöfundur og leikhúsfræðingur, um þá ákvörðun norsku Nóbels- verðlaunanefndarinnar að veita Barack Obama Bandaríkjaforseta friðarverðlaunin í ár. Ákvörðunin vakti mikla furðu víða og var sjálfur verðlaunahafinn, Barack Obama, að eigin sögn nokkuð undrandi. „Ég held að það sé fullsnemmt að veita Obama þessi verðlaun. Sjálfur tók ég aldrei þessa Obama- sótt sem gekk manna á milli og mér finnst hann hvorki betri né verri en fyrri forsetar Bandaríkj- anna. Enda er ekki komin nein reynsla á hann þar sem hann er enn nokkuð nýr í starfi,“ segir Guðmundur. SJÓNARHÓLL FRIÐARVERÐLAUN NÓBELS Tók aldrei þessa Obama-sótt GUÐMUNDUR S. BRYNJÓLFSSON Rithöfundur og leikhúsfræðingur. * M .v . 1 5 0 þ ús un d kr . i nn le nd a ve rs lu n á m án uð i, þ. a. 1 /3 h já s am st ar fs að ilu m . / S já n án ar á w w w .a uk ak ro nu r.i s. 40 bíómiðar á ári fyrir Aukakrónur Þú getur farið í Laugarásbíó, Háskólabíó, Regnbogann, Smárabíó eða Borgarbíó á Akureyri á 9 daga fresti fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða fengið þér eitthvað annað sem þig langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna. * AUKAKRÓNUR | landsbankinn.is | 410 4000 Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is N B I h f. (L an ds ba nk in n) , k t. 47 10 0 8 -2 0 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 3 9 3 0 7 „Maður er nú alltaf að gá til veðurs og skoða veðurspár,“ segir veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson. Einar rekur þjónustu- fyrirtækið Veðurvaktina, sem veitir veður- ráðgjöf fyrirtækjum sem eru á einn eða annan hátt háð veðri, til dæmis kvikmynda- fyrirtækjum og fyrirtækjum sem standa fyrir verklegum framkvæmdum. „Svo er ég alltaf eitthvað að kenna,“ segir Einar, og á þar við kennslu á sviði veðurfræði. „Ég er núna í ágætum hópi í HR og var líka að kenna hressum strákum í Stýrimannaskólanum á dögunum.“ En Einar hefur fleira fyrir stafni: „Ég er líka að leggja lokahönd á kennslubók fyrir Námsgagnastofnun um loftslags- breytingar. Þetta verður námsbók fyrir efstu bekki grunnskóla. Hingað til hefur ekki verið til aðgengileg kennslubók um loftslagsmál og þessar alþjóðlegu hræringar á því sviði,“ segir hann. Bókin sé væntanleg síðar í vetur. „Annars er maður bara að reyna að njóta stundarinnar og teyga að sér hreina loftið, eins og menn gera gjarnan á haustin. Svona skíðamaður eins og ég er líka að bíða eftir skíðasnjónum, þótt hann sé nú kominn að einhverju leyti.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? EINAR SVEINBJÖRNSSON VEÐURFRÆÐINGUR Skrifar kennslubók um loftslagsmál Vinnuhópur tæplega fimm- tíu Íslendinga starfar nú að því að opna á ný Nanulaq- gullnámuna á Suður-Græn- landi eftir að vinnsla hefur legið þar niðri síðan snemma á árinu. Starfsemi Íslending- anna fyrir Angel Mining sem eignaðist námuna í júní- byrjun hófst um mitt sumar með því að einn rafvirki flaug út. Síðan hefur hún undið hratt upp á sig. Grænlenskir fjölmiðlar greina frá því að vonir standi til að hægt verði að hefja á ný gullvinnslu í fræg- ustu og fyrstu gullnámu lands- ins innan ársloka. Færri vita að íslenskur vinnuflokkur vinnur hörð- um höndum að opnun námunnar. Alls starfa þar nú 47 Íslendingar. Á síðasta ári var ákveðið að loka Nanulaq-gullnámunni, sem er á suðurodda Grænlands, í um þrjátíu kílómetra fjarlægð frá Nanortalik, tíunda stærsta þéttbýlisstað lands- ins, vegna þess að vinnslukostnaður hafði borið fyrirtækið ofurliði. Gull hafði verið unnið úr berginu með því að sigla með það í verksmiðju á Nýfundnalandi. Síðasta vor lýsti hins vegar breska námafyrirtækið Angel Mining yfir fyrirætlunum sínum um að kaupa námuna og hefja þar vinnslu á ný. Kaupin gengu í gegn 30. júní síðastliðinn. Einar Ingi Sigurbergsson, sem er í forsvari fyrir fyrirtækið E & S Hönnun og ráðgjöf, hafði verið í sambandi við Angel Mining og tók að sér það verkefni að koma vinnslu í námunni í gang á ný. Hætta á að flytja grúsina úr landi til vinnslu, en koma í staðinn upp gullvinnslu á staðnum. Þetta kallar á nokkuð umfangsmiklar umbætur á nám- unni og stækkun námaganga. Einar er kunnugur staðháttum á Græn- landi vegna fyrri starfa þar. Hann hafði frá því fyrr á árinu svipast um eftir tækifærum tengdum jarð- vinnu þar ytra. „Fyrsti maður fór út 7. júlí, rafvirki sem var einn á ferð. 14. júlí fóru svo út átta karlar og í dag starfa þarna 47. Við erum með um það bil 38 manns á staðnum akkúrat núna, vegna fría og þess háttar,“ segir Einar og kveðst kapp- kosta eftir fremsta megni að vera með íslenskt starfsfólk. Einar segist vera búinn að tryggja sér svipuð verkefni ytra allt að því þrjú ár fram í tímann og á í frek- ari viðræðum við námafyrirtæki. Þegar blaðið tók hann tali fyrir helgina var hann staddur í Lundún- um að funda með Angel Mining og fleirum. „Þetta er mjög spennandi, enda er þetta sérhæfð starfsemi og verið að vinna upp ákveðna sér- þekkingu sem tengist þessum náma- iðnaði. Við erum að byggja upp nýja grein. Íslendingar hafa aldrei verið námumenn, þó að við höfum búið til göt í fjöll.“ olikr@frettabladid.is VIÐ NÁMAVEGGINN Tæplega fimmtíu Íslendingar vinna nú hörðum höndum að því að opna Nanulaq-gullnámuna á Suður-Grænlandi. NÁMAGÖNG NANULAQ Áætlanir Angel Mining gera ráð fyrir að í febrúarlok á næsta ári starfi um sextíu manns við gullnámuna í nágrenni Nanortaliq. Þar af verði fjörutíu til 45 frá Grænlandi, að sögn grænlenska Útvarpsins. Íslendingar opna helstu gullnámu Grænlands NANULAQ-NÁMAN Í MIÐJUM HLÍÐUM Vinnubúðir við rætur fjallsins á Suður-Græn- landi sem Nanulaq-gullnáman er í. Heimamenn höfðu um aldir vitað að verðmæti væru í fjallinu þótt námavinnsla hafi ekki hafist þar fyrr en árið 2004. Nanortalik mun þýða „torfundinn staður“ í lauslegri þýðingu. MYNDIR/KRISTJÁN CARLSSON GRÄNZ ALFRED NOBEL TRYGGÐI ARFLEIFÐ SÍNA ✬ Mistök ritstjóra fransks dagblaðs urðu til þess að Alfred Nobel vildi tryggja að arfleifð sú sem hann skildi eftir yrði jákvæð. Blaðið birti minningargrein um hann, átta árum fyrir dauða hans, undir titlinum: Kaupmaður dauðans er látinn. Greinin hófst svo: „Dr. Alfred Nobel, sem auðgaðist á því að finna upp leið til að drepa fleira fólk á skemmri tíma en áður var hægt, dó í gær.“ Nobel, sem auðgast hafði á því að finna upp sprengiefni, leist illa á þessa arfleifð og kom verðlaununum á fót og lagði um 31 milljón sænskra króna (jafngildi um 250 milljóna Bandaríkjadala árið 2008) til verðlaunanna. Æðislegt „Þetta er æðislegt. Við höfum beðið eftir þessu í mörg, mörg ár.“ HILMAR V. PÉTURSSON, FORSTJÓRI CCP, UM VÆNTANLEGT FRUMVARP UM ENDURGREIÐSLU Á RANN- SÓKNAR- OG ÞRÓUNARKOSTNAÐI NÝSKÖPUNARFYRIRTÆKJA. Fréttablaðið 10. október. Allt of fljótt „Svona fljótt?” FRIÐARVERÐLAUNAHAFINN LECH WALESA, FYRRVERANDI FORSETI PÓLLANDS, TRÚÐI VART FRÉTTUM AF ÞVÍ AÐ FRIÐARVERÐLAUNIN HEFÐU FALLIÐ BARACK OBAMA BANDARÍKJAFORSETA Í SKAUT. Fréttablaðið 10. október.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.