Fréttablaðið - 12.10.2009, Side 29
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 13híbýli og viðhald ● fréttablaðið ●
Hin óútreiknanlega íslenska veðr-
átta hefur minnt rækilega á sig síð-
ustu daga og því er ekki úr vegi að
minna á ýmsa hluti sem nauðsyn-
legt er að ganga frá fyrir veturinn.
Nú eru síðustu forvöð, ef svo má að
orði komast.
Á hverju hausti heyrast fréttir
af því að hinir og þessir hlutir
fjúki til og frá og valdi jafnvel stór-
tjóni á húsum og bílum, svo ekki
sé minnst á hættuna sem steðjar
að mannfólki og dýrum í slíkum
hamagangi. Því er mikilvægt að
ganga haganlega frá hlutum sem
geyma þarf utandyra yfir vetur-
inn. Grill, garðhúsgögn, blóma-
potta og fleira í þeim dúr þarf að
binda vel niður og ekki má gleyma
að annað hvort reyra hin sívin-
sælu trampólín föst eða hreinlega
að taka þau niður og pakka inn í
skúr.
Einnig er gráupplagt að nota
tækifærið í leiðinni til að raka
laufin í garðinum saman og ýmist
grafa þau í holur eða setja þau í
moltubing. - kg
Gengið frá fyrir veturinn
Verkfæri þarf að meðhöndla af virð-
ingu eigi þau að endast.
1. Verkfæri er best að geyma á
þurrum stað til að hindra ryð. Þá
getur verið gott að bera dálitla
olíu á stálverkfæri til að verja
þau, óháð því hvar þau eru
geymd. Settu nokkra
dropa í tusku og
strjúktu svo þunnt
lag myndist.
2. Eggverkfæri
á aldrei að geyma í
verkfærakassa nema í
hlíf, annað hvort slíðrinu eða plast-
hulstrinu sem fylgdi
verkfærinu.
3. Sagir og eggverk-
færi mega ekki komast í
snertingu við annan málm
eða annars konar hörð efni.
Lendi sagarblað í skrúfu eða
nagla er það ónýtt, þar sem
ekki er hægt að brýna sagir í
dag. Lendi eggin á sporjárni á
steypugólfi verður að brýna það.
Þá er vert að muna að hefiljárnið
stendur niður úr og því verður að
geyma hefilinn liggjandi á hliðinni
nema undir lagið sé mjúkt.
Viðhald verkfæra
MIkilvægt er að ganga vel um verkfærin sín svo þau endist. NORDICPHOTOS/GETTY
Trampólín eiga það til að fjúka og valda skemmdum á bílum og húsum.
● NÝ EFNI NOTIST VARLEGA Mörg þeirra viðhaldsefna sem nú
eru á markaðnum eru þróuð til að ná fram skjótum áhrifum. Hins vegar
getur verið erfitt að segja til um langtíma-
áhrif af notkun þeirra, sérstaklega á
gömul húsgögn. Ef yfirborð hús-
gagnsins er málað, lakkað eða
ómeðhöndlað getur verið gott
að þekja það með þunnu lagi af
húsgagnavaxi til að verja það gegn
daglegu sliti. Athugið að vaxið gefur
yfirborðinu aukinn gljáa. Æskilegt er að
viðhalda og hreinsa húsgögn með þeim
efnum sem maður hefur góða reynslu
af. Grænsápu má til að mynda nota á flesta
fleti og svo er hægt að þurrka ryk af með
klút eða rykmoppu. Heimild: Verk að vinna
Auglýsingasími