Fréttablaðið - 12.10.2009, Page 30
12. OKTÓBER 2009 MÁNUDAGUR14 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Nú hefur vinna hafist við að reisa fyrstu
stálbitana af gerðinni CQB4 (Cut Quasi Brick
4), sem þekja munu norðurhlið Tónlistar- og
ráðstefnuhússins, samtals 1.400 fermetra
flöt. Næstum hver biti sem tilheyrir þessari
gerð gluggavirkisins er sérsmíðaður í Japan.
Á milli CQB4-bitanna verða settir upp
annars konar stálbitar, sem saman eiga að
minna á þverskurð stuðlabergs. Heildar-
þyngd stálsins sem fer í gluggavirkið á
norður hliðinni er 132 tonn.
Gert er ráð fyrir að um níutíu daga taki að
setja stálið á norðurhliðina og verða um fjöru-
tíu dagar til viðbótar notaðir í glerjun.
Heimild: www.iav.is.
Framkvæmdir við álver í Helgu-
vík hófust í maí 2008 en ÍAV sér um
byggingu kerskálanna fyrir Norður-
ál ehf. Fyrirhuguð framleiðsla ker-
skálanna átti fyrst að vera 180.000
tonn og var ráð gert fyrir að fram-
leiðsla hæfist haustið 2010. Vegna
efnahagserfiðleika hérlendis var
ákveðið að skipta verkinu í tvo
90.000 tonna áfanga og stendur
vinna yfir við fyrri áfangann um
þessar mundir.
Kerskálarnir verða samtals
tveir og liggja samsíða, hvor um
sig 620 metra langur. Vegna áfanga-
skiptingar verða skálarnir í fyrsta
áfanga aðeins 340 metra langir.
Þegar hefur verið lokið við að
reisa burðarsúlur og staðsteyptar
undirstöður kera og er vinna við
botnplötu ásamt forsteyptum lang-
veggjum langt komin. Vinna við
stálvirkið og uppsteypa vinnslugólfa
er einnig hafin. Jarðvinnu og vinnu
við frárennsliskerfi er að mestu
lokið en hún var nauðsynlegur
undan fari burðarvirkjanna. Þá er
lagning jarðskauta og ídráttar röra
í jörðu komin vel á veg.
Áætlað er að vinna við klæðn-
ingu kerskálana ásamt uppsetningu
rafkerfa í skála hefist vorið 2010.
Heimild: www.iav.is.
Vinna hafin við
fyrri áfangann
Vegna efnahagserfiðleika var ákveðið
að skipta verkinu í tvo áfanga. Unnið er
að þeim fyrri um þessar mundir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vinna hafin við gerð stálhjúps á norðurhlið
Verið er að reisa stálbita sem þekja munu norðurhlið hússins. MYND/ÍAVUmhverfismálaráð Bolungarvíkur
mælir með að gert verði ráð fyrir
svæðum undir sumarhúsabyggð
í Syðridal. Frá þessu er greint á
fréttavefnum www.bb.is.
Þar segir að ráðið reikni með
tíu húsum í landi Hanhóls og tíu
húsum í landi Gils. Ráðið mælir
með að fallið verði frá fyrri
tillögum um sumarhúsasvæði í
Tungudal. Í Skálavík verður gert
ráð fyrir fjölgun um fimm sumar-
hús á því svæði sem hverfisvernd
nær yfir og fimmtán húsum utan
svæðis hverfisverndar.
Þetta kom fram þegar ráðið fór
yfir drög að skipulags uppdrætti
og skipulagsgreinargerð fyrir
nýtt aðalskipulag Bolungarvíkur
2008 til 2020. Á fundinum sam-
þykkti umhverfismálaráð einnig
tillögu skipulagshóps þar sem
mælt er með svæði í Syðridal
milli golfvallar og fjárréttar.
Þá var mælt með að svæði fyrir
mótorkrossbraut verði við fremri
malarnámuna í Tungudal.
Sumarhúsa-
byggð í Syðridal
Umhverfismálaráð Bolungarvíkur mælir
með að gert verði ráð fyrir svæðum
undir sumarhúsabyggð í Syðridal.
TIL
BO
Ð!
ETRARDEKK
ÓD
ÝR
T
fólksbíll kr 5.490,- jepplingur kr 6.490,-
Tilboð á umfelgun
Verðtilboð fyrir eldri borgara
Fólksbíll kr 4.990,-
Jepplingur kr 5.990,-
Gerið verðsamanburð
Sama verð fyrir ál- og stálfelgur
VDO BORGARDEKK
Borgartúni 36, (bakvið Cabin hótel) • Sími 588 9747 • www.vdo.is
Opið mán.–fös. 8–18. Lau. 10–14.