Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.10.2009, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 12.10.2009, Qupperneq 38
22 12. október 2009 MÁNUDAGUR folk@frettabladid.is Hollráð gegn innbrotum oryggi.is Hringdu í 570 2400 og fáðu ókeypis öryggisráðgjöf heim! Læsið bílnum og skiljið aldrei eftir verðmæti í honum Ef nauðsynlegt er að skilja verðmæta hluti eftir í bíl skulu þeir ekki vera sýnilegir, notið t.d. hanskahólf. Ekki hafa límmiða á rúðum eða aðrar merkingar sem gefa til kynna að dýr búnaður sé í bílnum. Reynið að leggja þar sem lýsing er góð og þjófar hafa lítið næði til athafna. Þjófavarnarkerfi í bílnum getur komið í veg fyrir innbrot. Fleiri hollráð gegn innbrotum er að finna á oryggi.is P IP A R • S ÍA • 9 1 3 4 0 > LEIÐIST HIGH SCHOOL MUSICAL Leikaranum Zac Efron leiddist að horfa á sjálfan sig í söngvamyndinni High School Musical. Hann er nú að kynna kvikmyndina Me and Orson Welles og um þá mynd segir hann: „Þegar ég horfði á Me and Orson Welles var það í fyrsta sinn sem ég horfði á mynd með sjálfum mér án þess að líta á úrið mitt á meðan á sýningu stóð.“ GREEN DAY Komin í söngleikina. Tónlistarmaðurinn Adam Yauch úr hljómsveitinni Beastie Boys tilkynnti fyrir nokkru að hann hefði greinst með krabbamein í kirtli. Hann er nú á batavegi og ferðaðist til Indlands og Tíbet í þeim tilgangi að kynna sér óhefð- bundnar lækningar. Yauch átti meðal annars fund með trúarleið- toga Tíbeta, Dalai Lama, og segir hann þá reynslu hafa styrkt sig mikið andlega. „Ég tek inn lyf frá Tíbet og samkvæmt ráðleggingum lækn- is sem ég hitti þar neyti ég nú aðeins lífræns matar. Á meðan ég var á Indlandi heimsótti ég nunnuklaustur þar sem ég var viðstaddur trúarlega athöfn sem á að flýta bata mínum. Nunnurn- ar sögðust ætla að biðja fyrir mér, sem var fallega gert,“ skrif- aði Yauch á bloggi sínu. Rappari hitti Dalai Lama Á BATAVEGI Tónlistarmaðurinn Adam Yauch ferðaðist til Indlands í von um skjótari bata. Ein vinsælasta gamanþáttaröð Banda- ríkjanna og þótt víðar væri leitað, 30 Rock, er komin í góðan hóp með Simpson- fjölskyldunni og Sopranos því þátturinn tekur Ísland upp á sína arma í fjórðu og nýjustu seríunni. 30 Rock, sem skartar Alec Baldwin og Tinu Fey í aðalhlutverk- um, er margverðlaunaður þáttur og hlaut nánast öll Emmy-verðlaunin sem hann gat fengið á nýliðinni hátíð. Vefsíðan Newsday.com birtir viðtal við einn af handritshöfundum þáttanna og framleiðenda, Robert Carlock. Þar kemur fram að í einum nýjasta þættinum kemur Ísland töluvert við sögu. Þannig er mál með vexti að hin vonlausa leikkona Jenna Maroney, sem leikin er af Jane Krakow- ski, er einstaklega þefvís á vondar kvik- myndir og enn verri kvikmyndahand- rit. Þrátt fyrir varnarorð sinna nánustu ákveður Jenna að taka að sér stórt hlut- verk í varúlfamynd enda veit hún sem er að fyrirbæri á borð við True Blood og Twillight hafa farið sigurför um heim- inn. Vandamálið er að umrædd kvik- mynd á að vera tekin upp á Íslandi yfir sumartímann. „Þetta verður auðvitað mjög erfitt því það er náttúrlega bjart nánast allan sólarhringinn um þetta leyti og þau geta aðeins tekið upp varúlfa atriði í eina mínútu á dag,“ útskýrir Carlock, sem tekur þetta atriði sérstaklega út í fjórðu seríunni. Ekki er hins vegar vitað til þess að tökulið frá 30 Rock hafi komið til Íslands enda eru þættirnir að mestu leyti gerðir í New York. -fgg 30 Rock nýtir sér Ísland í nýrri seríu TIL ÍSLANDS Eða svona næstum því. Gaman- þættirnir 30 Rock nýta sér bjartar sumarnætur á Íslandi þegar ein persón- an tekur að sér hlutverk í varúlfamynd. Ameríska pönkrokktríóið Green Day hefur löngum verið undir miklum áhrif frá The Who. Það er því ekkert skrítið að nú hefur bandið gert söng- leik upp úr plötunni American Idiot frá 2004 á sama hátt og The Who setti Tommy á fjalirn- ar í kringum 1970. American Idiot-söngleikurinn var frum- sýndur í Berkeley í Kaliforníu, í september og hefur gengið gríðar lega vel. Billie Joe Arm- strong, aðalmaður Green Day, samdi söngleikinn með Michael Mayer, sem sló í gegn með söngleiknum Spring Awakening. Verkið fjallar um þá félaga Jesus of Suburbia, St. Jimmy og Whatsername og leikararnir dansa og syngja við rokklögin eins og gerist og gengur í söng- leikjum. Billie vonast auðvitað til að söngleikurinn verði gerður að kvikmynd á endanum, en frá engu hefur verið gengið enn. Pönksöng- leikur frá Green Day Verið er að reyna að fá hand- ritshöfundinn Diablo Cody, sem skrifaði handritið að kvikmynd- inni Juno, til að taka að sér að semja handrit að kvikmynd um ævi Hugh Hefner. Auk þess eru í bígerð tveir sjónvarpsþættir um líf Hefners; annar mun fjalla um kanínur sjöunda áratugarins en hinn verður byggður á ævi- sögu Hefners sem kom út fyrir stuttu. Hinn 83 ára gamli Hefner ætlar ekki að setjast í helgan stein á næstunni og telur að vinnan sé það sem haldi honum á lífi. „Ég tel að það sé upphafið að enda- lokunum þegar menn hætta að vinna. Sjónvarpsþátturinn The Girls Next Door og útgáfa tíma- ritsins halda í mér lífinu. Ég ætla ekki að setjast í helgan stein.“ Hefner, sem skipti út kærust- um fyrir nokkru, segist ánægður í faðmi hinnar 23 ára Crystal og tvíburanna Karissu og Kristinu. „Ég gæti ekki verið hamingju- samari. Ég er lukkunnar pam- fíll og ég veit það. Ég fékk mjög hjartnæmt bréf frá ömmu tví- buranna þar sem hún lýsir yfir ánægju sinni með það að stúlk- urnar skuli búa hér hjá mér.“ Hamingjusamur Hef LUKKUNNAR PAMFÍLL Hugh Hefner seg- ist ekki ætla að setjast í helgan stein. Lögfræðingurinn Ragnar Jónasson hefur gefið út sína fyrstu glæpasögu, sem nefnist Fölsk nóta. Útgáfuhóf var haldið í Eymundsson við Skólavörðustíg til að fagna áfanganum. Ragnar hefur hingað til getið sér gott orð sem þýðandi Agöthu Christie-bóka en núna stígur hann í fyrsta skipti fram á sjónarsviðið sem rit- höfundur. Gaman verður að sjá hvort hann nær að skjóta átrúnaðar- goði sínu ref fyrir rass með sínu fyrsta verki. Fögnuðu Falskri nótu UPPLESTUR Ragnar Jónasson les upp úr bók sinni Fölsk nóta í Eymundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Pétur Már Ólafsson og Bjarni Þorsteinsson hjá Veröld sem gefur út bókina. Ragnar áritar bókina fyrir aðdáanda. Eggert Páll Ólafsson, vinur einkabílsins, og Sigríður Jónasdóttir. Þau Árni Sigurjónsson, Friðrik Sigfússon og Alexía Gunnarsdóttir brostu breitt.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.