Fréttablaðið - 12.10.2009, Qupperneq 41
MÁNUDAGUR 12. október 2009 25
Tónlist ★★★
Blue Lagoon Soundtrack 2
Margeir
Þægilegt ferðalag
Margeir Ingólfsson er búinn að vera einn af hæfustu plötusnúðum Íslands
síðustu tvo áratugi eða svo. Hann gerði mix-plötu fyrir Bláa lónið fyrir
nokkrum árum sem þótti mjög vel heppnuð og nú er plata númer tvö
komin. Hún hefur að geyma sextán lög sem hann hefur valið og tengt
saman í samfellt mix. Á plötunni eru lög úr ýmsum áttum og frá ýmsum
tímum. Platan hefst eiginlega í Manchester með Joy Division-laginu Love
Will Tear Us Apart í flutningi norsku sveitarinnar Susanna and the Magical
Orchestra og laginu Tomorrow með hinu vanmetna Manchester post-
pönkbandi Durutti Column. Hún endar svo á Íslandi með Þreki og tárum
Hauks Morthens og Erlu Þorsteinsdóttur frá árinu 1958 og Hafi reggísveitar-
innar Hjálma. Á milli eru svo tólf lög frá síðustu átta árum, allt frá jaðarpoppi
Bat for Lashes yfir í rafdöbb Rhythm of Sound. Platan myndar eina heild og
virkar eins og þægilegt, en líka áhugavert ferðalag. Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Frábær lög og flott uppbygging. Margeir klikkar ekki.
Leikarinn Vince Vaughn segist
hafa beðið unnustu sinnar Kylu
Weber á Valentínusardeginum
í febrúar síðastliðnum. Weber,
sem er kanadískur fasteigna-
sali, sagði umsvifalaust já.
Hjálpaði það vafalítið til að
þau höfðu áður rætt saman um
hjónaband og komist að þeirri
niðurstöðu að þau vildu gjarnan
prófa það. Vince segir að aðeins
Valentínusar dagurinn
hafi komið til greina
fyrir bónorðið. „Ég
vildi ekki missa af
þessu tækifæri því það
er ekki hægt að
gleyma þessari
dagsetningu,“
segir Vince,
sem átti
áður í ástar-
sambandi
með
Jennifer
Aniston.
Gleymir ekki
Valentínusi
VINCE
VAUGHN
Hollywood-
leikarinn
bað unnustu
sinnar á
Valentínusar-
deginum.
Hljómplötufyrirtækið Domino,
sem gefur m.a. út plötur Franz
Ferdinand, hefur stefnt Guns N‘
Roses og heimtar eina milljón
dala fyrir að bútur úr lagi með
þýska tónlistarmanninum Ulrich
Schnauss hafi verið notaður í
óleyfi á nýjustu plötu Guns N‘
Roses, Chinese Democracy.
Bútur inn er í laginu „Riad n‘ the
Bedouins“. Axl og félagar koma
af fjöllum og halda því fram að
einn úr upptökuliðinu hafi full-
yrt að búturinn – „sem er bara
ógreinilegur hávaði hvort sem
er“ – væri löglega fenginn. „Við
erum vissir um að hægt sé að
leysa þetta mál þannig að allir
verði ánægðir,“ segir umboðs-
maður hljómsveitarinnar.
Heimta millj-
ón af Axl
DÝRT AÐ STELA HÁVAÐA Axl Rose.
„Maður verður að hafa húmor fyrir
sjálfum sér,“ segir ljóðskáldið og
laganeminn Sigurður Gústavsson,
Siggi Gúst.
Sigurður gaf í vikunni út bókina
Ölið, bölið og þynnkan sem fylgdi.
Ljóðin fjalla meðal annars um
ástandið í þjóðfélaginu, ógæfuna,
þynnkuna og kynferðislega ósigra.
Siggi segir að flest ljóðin myndu
flokkast sem níð, drykkjuvísur, sam-
félagsleg ádeila og jafnvel guðlast.
Spurður hvort hann óttist að
síðast nefnda atriðið valdi honum
vandræðum er Siggi fljótur að svara
á viðeigandi hátt: „Það væri þá bara
í þessu lífi,“ segir hann. „Erum
við ekki að stíga inn í 21. öldina?
Maður má ekki vera hræddur við
krossinn.“
Siggi er 23 ára gamall og
tilheyrir fámennum hópi af hans
kynslóð sem leggur vinnu í að við-
halda íslenskri ljóðahefð. „Þarf
ekki einhver að taka þetta á sig?
Þetta er deyjandi sport,“ segir
hann. „Ljóðahefð Íslendinga má
ekki deyja út.“
Kvæði Sigurðar ríma öll og eru
flest stuðluð. Hann fer líka um
víðan völl um heim ljóðsins og
semur til dæmis ferskeytlur, limrur
og vikivaka. Siggi tekur sjálfan sig
ekki hátíðlega og segir að fólk ætti
að hafa gaman af ljóðunum. Þrátt
fyrir það eru þau samin á erfiðum
stundum. „Ég held að skáldagyðjan
komi þegar ég er hrjáður eða lítill
í mér. Til dæmis á löngum nætur-
vöktum í álverinu,“ segir hann.
Ölið, bölið og þynnkan sem fylgdi
fæst í Iðu, verslun Máls og menn-
ingar á Laugavegi og í bókverka-
búðinni Útúrdúr í Nýlistasafninu.
- afb
Yrkir um kynferðislega ósigra sína
TEKUR SJÁLFAN SIG EKKI HÁTÍÐLEGA
Sigurður Ágúst segir að hafa megi
gaman af ljóðunum hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM