Draupnir - 01.05.1907, Blaðsíða 6
682
DRAUPNIR.
fyrir litlar sakir, en forðaði mér þaðan á nátt-
arþeli, og er nú kominn hingað til að leita
mér trausts og skjóls hjá yður, herra biskup,
því nú standa engir á sporði Jóns nema þér
einsamlir, herra!«
Biskup kæltist við þessa fregn og svaraði:
»Ekki hef eg fyrir að spyrja þig um
sakir, því mér þætti hezt að þær væru scm
mestar, llestar, stærstar og verstar í lians garð,
og þó hann licfði bannsungið þig tíu sinnum,
skyldir þú vera mér tíu sinnum velkomnari
fyrir sérhverja þeirra. Gakk inn með mér
og segðu mér helztu tíðindin þaðan.«
Svo svaf biskup af um nóttina; en morg-
uninn eftir stefndi hann kirkjuprestinum ú
fund sinn, ráðsmanninum, djáknunum og
þeim andlegrar stéttar mönnum, sem til voru á
staðnum, hæði gestum og heimamönnum. Sagði
hann þeim, að hann væri nú orðinn margs
vís um ráðagerðir Jóns biskups Arasonar, og
að liann hefði i hyggju að ríða til alþingis
með níu hundruð manna, en hefði ekki verið
búinn að smala öllu því liði saman er hinn
nýkomni skjólstæðingur sinn hefði farið þaðan.
Hann væri og í þann veginn að gera sjálfan
sig að einvaldshöfðingja i öllum Norðlend-
ingafjórðungi, væri búinn að steypa Teiti
Þorleifssyni svo í áliti héraðsbúa sinna, að
liann hlyti að missa lögsögumannssessinn og