Draupnir - 01.05.1907, Blaðsíða 142
818
DRAUPNIR.
færi byðust, mælti til vináttu og samkomu-
lags við hann, og kvaðst mundi verða lion-
um samhentur, ef til kæmi í öllum frám-
kvæmdum, og sagði á meðal annars, að sér
væri mjög kært, að landsstjórnin kæmist í
hendur landsmanna sjálfra eins og til hefði
verið ætlast, er landið gekk í samband við
Noreg, og sagði, að hinum traustu og harð-
snúnu landsmönnum sínum væri hentara að
ráða sér sjálfir, en að vera konungsþrælar.
Hann endaði bréfið með því, að biðja Gissuri
Einarssyni virkta og prestvígslu, og skyldu
þeir bj’rja sjálfsstjórnina með því, að gera
hann að klausturpresti Sigurðar ábóta í veri.
— Þetta sagði hann í sínum vanalega gleð-
skapar og kímnisanda.
Eftir þetta sneri hann sér með þá bæn
til Þorsteins Guðmundssonar, að hann legði
aftur á stað suður með þeim Marteini Ein-
arssyni á fund Ögmundar i)iskups með bréfið
og var það auðunnið mál við Þorstein.
Og er þeir allir vorn farnir, tók biskup
að leggja niður ráð sín við þá vini sína,
mága og syni, og glej'mdi nú gersamlega öllu
öðru — ást þeirra Þorsteins og Þórunnar,
og lúthersku trúarvillunni og öllu og öllu —
og hugsaði nú einungis um, að verja kröft-
um sínum öllum og sinna, í þarfir föður-
landsins, á þann hátt, sem hann dæmdi því