Fréttablaðið - 19.10.2009, Síða 10
19. október 2009 MÁNUDAGUR
ÞEIR SPARA
MEST SEM SKRÁ
SIG STRAX
-15%
Dekkja-, smur- og
viðgerðaþjónusta
Reiknaðu hvað þú sparar
og skráðu þig á N1.is.
Skráðu þig í Sparitilboð N1 og lækkaðu
rekstrarkostnað bílsins um tugi þúsunda
króna á næstu 12 mánuðum.
JARÐHITAFÉLAG
ÍSLANDS
BANDARÍKIN Foreldrar litla drengs-
ins sem óttast var að svifi um í
heimatilbúnum loftbelg á fimmtu-
dag verða sóttir til saka.
Jim Alderden, lögregustjóri í
Colorado, sagði yfirheyrslur yfir
hjónunum, Richard og Mayumi
Heeni, hafa gefið tilefni til ákæru.
Hjónin eru grunuð um að hafa sett
atvikið á svið. Fréttin af atvikinu
vakti gríðarlega athygli vestan-
hafs.
Systkini drengins, sem ber
nafnið Falcon, sögðust á fimmtu-
dag hafa séð hann klifra inn í
loftbelginn áður en hann losnaði.
Falcon fannst síðan heill á húfi í
bílskúr fjölskyldunnar. Sú skýring
var gefin að hann hefði sofnað en
þegar hann var spurður í viðtali
við CNN hvers vegna hann hafi
ekki komið úr felum þegar hann
heyrði að hans var leitað svar-
aði hann: „Við gerðum þetta fyrir
þáttinn“. Foreldrar Falcons hafa
komið fram í raunveruleikaþætt-
inum Wife Swap og hafa fjölmiðl-
ar gert því skóna að þau séu haldin
athyglissýki.
Alderden lögreglustjóri hafði
áður sagt að hann tryði því ekki
að foreldrar drengsins hefðu svið-
sett atvikið en eftir að hafa rætt
við þau aftur hefði hann ákveðið að
tilefni væri til ákæru. Hann hefur
óskað eftir heimild til að gera hús-
leit á heimili fjölskyldunnar í Fort
Collins í Colorado auk þess sem
hann á í viðræðum við bandaríska
loftferðaeftirlitið. - ve
Yfirheyrslur yfir Heene-hjónunum í Colorado gefa tilefni til grunsemda:
Loftbelgsforeldrar ákærðir
FEÐGARNIR Richard Heene ásamt
sonum sínum Ryo og Falcon.
Meðallestur á dagblöðum
Lesa bæði blöðin
34,8%
Lesa bara Morgunblaðið
8,0%
Lesa bara Fréttablaðið
57,2%
Samkvæmt nýjustu
lestrarkönnun lesa
144 þúsund, á
aldrinum 12 til 80
ára, Fréttablaðið á
hverjum degi sem
er rúmlega fimmtíu
þúsundum fleiri en
lesa Morgunblaðið.
LÖGREGLUMÁL „Safnið er í raun-
inni ómetanlegt. Atvinnugrund-
vellinum hefur verið kippt undan
okkur með þessum þjófnaði, því
öll starfsemin snerist um þetta
safn,“ segir Jónína Ingvarsdótt-
ir, eigandi geislasteinasafnsins á
bænum Teigarhorni við Djúpavog.
Hátt í 500 steinum úr safninu var
stolið fyrir helgi.
Jónína dvelur um þessar mund-
ir í Reykjavík þar sem eiginmað-
ur hennar, Herbert Hjörleifs-
son, gengst undir meðferð vegna
krabbameins í heila. „Maður-
inn minn greindist í sumar og
við fluttum suður í ágúst. Allir
í Djúpavogi vissu að við værum
flutt, en ég hef farið austur á
tveggja vikna fresti til að fylgj-
ast með að allt væri í lagi. Það
er greinilegt að þjófurinn hefur
fylgst með því hversu langt liði á
milli heimsóknanna,“ segir Jón-
ína.
Á Teigarhorni er eitt merkileg-
asta safn geislasteina á landinu og
sækir það fjöldi erlendra ferða-
manna á sumri hverju. Stálhleri
var rifinn frá glugga á bænum til
að komast inn. Steinarnir vógu
allt frá nokkrum grömmum upp í
tugi kílóa. Jónína segir greinilegt
að viðkomandi hafi þekkt vel til.
Steinunum hafi verið pakkað inn
í handtöskur sem voru á bænum.
„Mér finnst þetta alveg ótrúlegt.
Hvaða gagn hefur nokkur af svona
safni ef ekki er hægt að sýna það?,“
spyr Jónína. Spurð hvort mögulegt
sé að koma safninu í verð segir hún
það ólíklegt. „Ég hef aldrei vitað
til þess að svona safni sé stolið hér
á Íslandi,“ segir hún.
Jónína segir erfitt að meta fjár-
hagslegt tjón vegna þjófnaðarins.
„Fyrir um sex árum bauð útlend-
ingur um fimmtán milljónir króna
í safnið. Ég sé ekki fram á að við
höfum mikið að gera austur í vor.
Grundvöllurinn til að halda úti
ferðaþjónustu vegna safnsins er
horfinn,“ segir Jónína Ingvars-
dóttir.
Lögreglan á Fáskrúðsfirði, sem
annast rannsókn málsins, segir
hana á frumstigi.
kjartan@frettabladid.is
Ómetanlegu steinasafni á Berufjarðarströnd stolið:
Lögreglan engu nær
um geislasteinaþjófnað
ÞJÓFNAÐUR Fyrir sex árum fengu hjónin að Teigarhorni boð upp á fimmtán milljónir
króna fyrir geislasteinasafnið. Safnið var ótryggt.
T exti sem fylgja átti þessu kökuriti í frétt blaðsins á laugardag féll niður. Köku-
ritið sýnir meðallestur á dagblöðum hjá aldurshópnum 18 til 49 ára á höfuð-
borgarsvæðinu. Um er að ræða skiptingu lesenda mánudaga til laugardaga.
Könnunin var gerð af Capacent á tímabilinu frá maí til júlí fyrr á þessu ári.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar kveðst
leggja mikla áherslu á að árangur
náist í viðræðum við Orkuveitu
Reykjavíkur um lækkun á vatns-
og fráveitugjaldskrá fyrirtækisins í
Borgarbyggð. „Það er afar mikilvægt
að íbúar Borgarbyggðar búi við sam-
bærilegar gjaldskrár og íbúar í öðrum
sveitarfélögum sem eru eignaraðilar
að Orkuveitu Reykjavíkur,“ segir
sveitarstjórnin.
BORGARBYGGÐ
Vilja lækkun á heitt vatn
LEIÐRÉTTING