Fréttablaðið - 19.10.2009, Síða 34

Fréttablaðið - 19.10.2009, Síða 34
18 19. október 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is MERKISATBURÐIR 1453 Hundrað ára stríðinu lýkur þegar Frakkar ná aftur Bordeaux. Englendingar halda Calais í Frakklandi. 1898 Í Reykjavík er vígt timbur- hús fyrir Barnaskóla Reykja víkur sem síðar fær nafnið Miðbæjarskólinn. Timbur er valið sem helsti efniviður hússins vegna ótta manna við að stein- hús kunni að hrynja í jarðskjálfta. 1969 Stytta af Ólafi Thors for- sætisráðherra eftir Sigur- jón Ólafsson er vígð fram- an við Ráðherrabústaðinn í Reykjavík. 2005 Réttarhöld hefjast yfir Saddam Hussein. 2007 Ný heildarþýðing Biblí- unnar kemur út, Biblía 21. aldar. AUÐUR AUÐUNS (1911-1999) LÉST ÞENNAN DAG. „Ég er alin upp í borgaraleg- um hugsunarhætti eins og hann gerist bestur og fellur hann saman við stefnuyfirlýs- ingu míns flokks, Sjálfstæð- isflokksins. Hann felst í virð- ingunni fyrir einstaklingnum og frjálsræði hans og þeirri ábyrgðartilfinningu, sem hver einstaklingur þarf að hafa.“ Auður Auðuns var lögfræðing- ur, borgarstjóri í Reykjavík og ráðherra. Spænska veikin var inflúensu- faraldur sem gekk yfir heim- inn árin 1918-19. Veirustofninn heitir H1N1 innan inflúensu af A-stofni. Spænska veikin er mannskæðasta farsótt sem sögur fara af. Talið er að fimm- tíu milljónir manna hafi dáið af völdum hennar. Veikin er talin hafa borist til Íslands með skipunum Botníu frá Kaupmannahöfn og Will- emoes frá Bandaríkjunum 19. október 1918, sama dag og sambandslagasamningurinn um fullveldi Íslands var sam- þykktur. Veikinni fylgdi lungnabólga og létust menn oft innan tveggja daga eftir að sóttarinn- ar varð vart. Í byrjun nóvember höfðu margir tekið sóttina og þá er fyrsta dauðsfallið skráð. Mið- vikudaginn 6. nóvember er talið að þriðjungur Reykvík- inga hafi verið orðinn veikur. Fimm dögum síðar er talið að tveir þriðju íbúa höfuðborgar- innar hafi verið rúmfastir. Allt athafnalíf lamaðist í Reykjavík. Talið er að 484 Íslendingar hafi látist úr spænsku veikinni, þar af 258 í Reykjavík. Hinn 20. nóvember voru þeir sem létust í sóttinni jarðsettir í fjöldagrafreitum. Þá var veikin tekin að réna. ÞETTA GERÐIST: 19. OKTÓBER 1918 Spænska veikin berst til Íslands AFMÆLI HEIKKI KOVALAINEN kappaksturs- maður er 28 ára. EVANDER HOLYFIELD hnefaleika- kappi er 47 ára. PATRICIA IRE- LAND, kven- réttindakona og lögmaður, er 64 ára. SVEINN GEIRSSON leikari er 37 ára. Frumraun Bjarna Harðarsonar, bók- sala á Selfossi og fyrrverandi þing- manns, í skáldsagnagerð er nú á leið í verslanir. Bókin nefnist Svo skal dansa en í henni styðst Bjarni við ævi lang- ömmu sinnar Sesselju Helgadóttur og kvenna sem henni tengdust. „Hún, dóttir hennar og dóttir hennar áttu það allar sammerkt að alast upp í sárri fá- tækt og þurfa að láta frá sér börnin og halda svo áfram erfiðri lífsbaráttu,“ segir Bjarni um efni bókarinnar. Frásögnin er sögð í fyrstu persónu og af konu og eins og nærri má geta þótti Selfyssingnum Bjarna það afar ögrandi verkefni að setja sig inn í hug- arheim fátækrar konu austur á fjörð- um. Dramatískari verða viðfangsefni höfunda vart og fáir menn eru fróðari en Bjarni um lífið á Íslandi. Frásögn- in ætti því að henta breiðum hópi les- enda. Söguna segir hann einnig vera skáldsögu um kvenréttindabaráttu, án þess þó að vera bundna hefðbundnum hugtökum úr stéttabaráttunni. Bjarni segir heimildir um ævi þess- ara kvenna heldur fátæklegar. Stóran hluta sögunnar skáldaði hann en annað byggði hann á þeim heimildum og frá- sögnum sem fyrir hendi voru. Hann hafi því lengi safnað í sarpinn áður en hann réðst í ritun sögunnar. Flest hafi hann fengið að vita hjá ömmubróður sínum. „Hann var einn af þessum mönn- um sem aldrei voru annað en vinnu- menn á sveitabæ. Kom níu ára gam- all á sveitabæ sem hreppsómagi og fór þaðan tæplega sjötugur til að deyja á sjúkrahúsi. Hann var skemmtilegur sagnamaður og kveikti í mér með þess- ari sögu,“ segir Bjarni. Hann segist hafa heyrt frásögn ömmubróður síns í kringum 1980 og því hafi saga lang- ömmu hans lengi gerjast innra með honum. Það tók hann því ekki langan tíma að raða saman beinagrindinni á skáldsögunni. „Ég byrjaði í janúar og setti saman uppkast á örfáum nóttum. Ég hef svo verið að hamra þetta saman, bæta og breyta allt þetta ár,“ segir Bjarni. Hann segist þó vilja að aðrir en hann dæmi um hvernig til hafi tekist. karen@frettabladid.is BJARNI HARÐARSON BÓKSALI: SENDIR FRÁ SÉR SÍNA FYRSTU SKÁLDSÖGU Studdist við líf langömmu TEKST Á VIÐ ÖGRANDI VERKEFNI Bjarni Harðarson, bóksali og fyrrverandi þingmaður, setti sig inn í hugarheim langömmu sinnar og kvenna sem henni tengdust sem allar fóru í gegnum lífið í sárri fátækt og þurftu að gefa frá sér börn sín. MYND/EGILL BJARNASON Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur og afi, Pétur Björnsson Vesturgötu 158, Akranesi, lést 12. október. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 22. október kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning í Landsbankanum á Akranesi, 0186 05 068900 kt. 110856 2459. Ásdís Gunnarsdóttir Gylfi Pétursson Selma M. Arnardóttir Gunnar Örn Pétursson Jóhanna Bjarnarson Bjarki Þór Pétursson Sigurður Ásbjörn Pétursson Sólrún Perla Garðarsdóttir Sigríður Pétursdóttir og afabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Valtýs Jónassonar frá Siglufirði. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jónas Valtýsson Vigdís Sigríður Sverrisdóttir Guðrún Valtýsdóttir Baldvin Valtýsson Laufey Ása Njálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri Zakarías Hólm Hjartarson fv.deildarstjóri Tollgæslunnar í Keflavík, Grænumörk 2, Selfossi, andaðist fimmtudaginn 15. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 23. október kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Jónsdóttir. Elskulegur bróðir okkar og frændi, Gunnar H. Ólafsson lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 11. október. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. október kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnafélag Íslands. Gyða Ólafsdóttir Ásta Ólafsdóttir Beck systkinabörn og aðrir aðstandendur. Kær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, Guðný Erla Jónsdóttir Hjarðarhlíð 5, Egilsstöðum, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara- nótt 14. okt. sl., verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 22. okt. klukkan 11. Völundur Jóhannesson Anna Ósk Völundardóttir Tryggvi Ólafsson Harpa Völundardóttir Kristján Guðmundsson Bjarni Óskar og Matja Dise, Guðný Vala, Eyrún Anna, Elín Lára og Ívar Ólafur Gunnar og Völundur Ingi Sigrún Björg, Ásgeir Örn og Ólöf Harpa. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigurlaug Jónsdóttir verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 20. október kl. 15.00. Pálína Oswald Edward Pétur Ólafsson Kristján Andreas Ágústsson Bryndís Konráðsdóttir Jón Frímann Ágústsson Hallfríður Ólafsdóttir Þórður Ágústsson Anne S. Svensson Guðríður Ágústsdóttir Gunnlaugur Kr. Gunnlaugsson ömmu- og langömmubörn. Elskulegur faðir minn, bróðir okkar og mágur, Guðjón Sigurðsson Eskihlíð 26, Reykjavík, er lést þriðjudaginn 6. október sl. verður jarðsunginn mánudaginn 19. október kl. 13.00 frá Garðakirkju, Álftanesi. Anna Björg Guðjónsdóttir Rafn Sigurðsson Guðrún Nielsen Jónfríður Sigurðardóttir Ólafur Nielsen Guðmunda Lilja Sigvaldadóttir Helga Nielsen og aðrir aðstandendur.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.