Iðnneminn - 01.05.1968, Síða 3

Iðnneminn - 01.05.1968, Síða 3
iÐnnEminn Utgefandi: Iðnnemasamband Islands. - Ritstjóri og óbyrgðarmaður: Stefón Olafsson. - Ritnefnd: Olafur Björns- son og Burkni Dónaldsson. - Afgreiðsla: Skólavörðustíg 16, sími 14410. - Utlit og umbrot: Stefón Olafsson. - Setning og prentun: Alþýðuprentsmiðjan h.f. -V___________________________________^ ÓKJÖR OG ATVINNU- LEYSI Kau'pgjaldsmál iðnnema hafa löngum tekið mikið rúm á síðum „Iðnnemans", sem eðlilegt er, þar sem þau eru eitt hrýnasta hagsmunamál okkar iðnnemanna. En þótt iðnnemar hafi barizt fyrir því árum saman að kjaramál þeirra væru færð í viðunandi horf, húa þeir enn við fádæma léleg og ósanngjörn kjör. En það er við ramman reip að draga, þar sem hin íhaldssama meistarastétt er. Og ekki hefur heldur farið mikið fyrir skilningi á vandamálum iðnnámsins, frá hinum „æðri" þrepum þjóð- félagsins. Ætla mætti þó að þeim háu herrum ætti að vera einna kunnugast um þau vandamál, sem þetta getur leitt af sér fyrir þjóðarheildina. Því ef ekki verður hið fyrsta ráðin hót á vanköntum iðnnámsins, og kjör iðnnema hætt, er mikil hætta á ferðum. Einfáldlega vegna þess, að iðnaðurinn getur ekki laðað til sín ungt fólk og endur- nýjað sig þannig, sem honum er full nauðsyn á, ef hann á að taka þátt í hinu mikla kapphlaupi nútíma iðnvæðingar. Þessi vöntun á réttlátri framkvæmd iðnfræðslunnar, hefur ekki enn í miklum mæli komið fram í tregðu unga fólksins til að fara út í iðnnám. En það er ekki hinum opinberu og áhyrgu aðilum að þakka (ekki nema þá óheint, og óafvitandi), heldur hefur þenslan, sem verið hefur á vinnumarkaðinum í nokkur undanfarin ár, ráðið þar um. Þar sem hin mikla eftirspurn eftir vinnuafli leiddi af sér yfirborganir í flestum greinum iðnaðarins, og gaf iðnnemunum þannig kost á að drýgja tekjur sínar, ásamt með mikilli yfirvinnu. En nú eftir að fjármala- kreppa hefur riðið yfir, og vaxandi samdráttareinkenna gætir í atvinnulífinu, rts þetta vandamál upp í hærra veldi en nokkru sinni áður. Sem dæmi um það, hve erfiðleikar iðnaðarins hafa komið niður á iðnnemum, má henda á það að stór hópur þeirra gekk meira og minna atvinnulaus í vetur, og enn er ástandið slæmt, þótt nú eigi að heita einhver mesti annatími hjá flestum iðnaðar- mönnum. Nú spyr sennilega einhver, hvernig má það vera að iðnnemar gangi at- vinnulausir? Of ef svo er ætti að vera auðvelt að kippa því í lag, því að slíkt er ský- laust lagábrot, eða er ekki svo? Jú, vissulega er hér um hrot á iðnfræðslulögunum að ræða, en málið er samt ekki svo auðvelt viðureignar, því í mörgum tilfellum er hér um að ræða nema, sem hafa verið yfirhorgaðir, og af ótta við að yfirborganirnar verði teknar af þeim, þora þeir ekki að sækja lagalegan rétt sinn. Og virðist hér sannarlega híða Iðnfræðsluráði ærið verkefni, en þeirri stofnun er sem kunnugt er falið með lögum, að hafa eftirlit með því að iðnnám sé haldið. En eru yfirborganirnar þá svo hagkvæmar fyrir okkur iðnnema? Því er til að svara, að við í Iðnnemasambandinu höfum oft reynt að vega þetta og meta og jafnan komizt að þeirri niðurstöðu, að þegar á allt sé litið, séu þær í flestum tilfellum sízt hetri en nemakaupið, þótt vissulega séu á því margar undantekningar. Framh. á næstu síðu. IÐNNEMINN 3

x

Iðnneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.