Iðnneminn - 01.05.1968, Síða 4
Sitthvað frá nýstofnuðu
Iðnnemafélagi Reykjavíkur
Hátíðlegasti dagurinn í sögu félagsins í for-
tíð, nútíð og framtíð allri, reis úr skuggum
októbernæturinnar, baðaður björtum geislum
vetrarsólarinnar, á 20. degi áðurnefnds mánaðar
árið 1967. Dagurinn leið. Að kveldi mættu ör-
þreyttir, útkeyrðir iðnnemar á merkan fund
uppi í Iðnskólanum hér í Reykjavík. Ég hlakk-
aði til að sjá allt fjölmennið, en varð fyrir mikl-
um vonbrigðum. Það mættu sárafáir. Furðulegt!
Gat áhugaleysi manna verið slíkt, að úr 13 iðn-
greinum, er þarna áttu að sameinast í eitt félag,
skyldi mæta aðeins 9 manns. Þó svo að þessar
iðngreinar flestar væru svo fámennar, að illt
eða ekki væri hægt að halda uppi félagsstarf-
semi í. Ekki einu sinni einn fulltrúi úr hverri
iðn. (Er þetta hægt?) — Félag það er hér um
ræðir, hlaut nafnið Iðnnemafélag Reykjavíkur
(INFR), stórt nafn, er þýðir mikil fyrirheit. —
Rétt til inngöngu í félag þetta hefur hver sá, er
fengið hefur staðfestan námssamning í eftir-
töldum iðngreinum: Bakaraiðn, bókbindaraiðn,
gullsmíði, kjólasaum, klæðskeraiðn, ljósmynd-
un, mjólkuriðn, offsetprentiðn, offsetmynda- og
plötugerðaiðn, prentmynda- og prentljósmynda-
iðn, skósmíði, sútun, úrsmíði. — Fyrsta stjóm
félagsins var kosin á stofnfudi, og vom allir
þeir 9 nemar sem mættu kjörnir í stjóm.
Stjórnin var þannig skipuð: Sigurður Stein-
þórsson formaður, Einar Halldórsson varafor-
maður, Inga Hrönn Pétursdóttir ritari, Gilbert
Guðjónsson gjaldkeri, Jórunn Þórðardóttir
spjaldskrárritari. Aðrir í stjórn, til vara: Valdi-
mar Ingimarsson, Davíð Jóhannesson, Elsa
Stefánsdóttir og Ingimar Örn Davíðsson. Voru
þetta jafnframt stofnendur félagsins.
Stjórn þessi starfaði mest að því (á þessum
fjórum mánuðum, sem hún gat starfað), að ná
til nýrra félagsmanna. Ur rúmlega 30 mönnum
í upphafi skilar hún nú af sér 77 skráðum með-
limum. Desembermánuður kom þama inn í og
var þá ekki hægt að starfa mikið, loks undir-
búningur aðalfundar, en hann var haldinn 15.
febrúar 1968. Kosin var ný aðalstjórn: Ófeigur
Björnsson formaður, Valdimar Ingimundarson
varaformaður, Inga Hrönn Pétursdóttir ritari,
og Gilbert Guðjónsson gjaldkeri.
Framtíðarverkefnin blasa við hinu nýja fé-
lagi. Ég hvet alla iðnnema, innan þessarra 13
iðngreina, að komast í samband við félag þetta
og einnig utanfélagsmenn, óskráða iðnnema (í
öðrum félögum). Með áhuga og vilja er hægt að
gera þetta félag að einhverju því stærsta hér á
landi. — Minnumst orða stórskáldsins Einars
Benediktssonar: „treystu í verki viljans merki,
- vilji er allt, sem þarf.“ Ég óska hinni nýkjömu
stjórn og Iðnnemafélagi Reykjavíkur alls hins
bezta á ókomnum erfiðum tímum, megi það
blómgast og dafna, sýna og sanna sinn sjálfstæða
tilverurétt. Sigurður Steinþórsson,
Fyrsti form. INFR, (ritari INSÍ).
Þegar það er svo tekið með í reikninginn, hversu vígstaða iðnnemanna er hetri
með tilliti til ýmissa annarra hagsmunamála þeirra, ef meistarinn getur ekki heitt þá
hótunum um kjaraskerðingu, þá held ég að kostir yfirhorgananna séu nú famir að
þverra. En reynsla undanfarinna missera hefur vissulega kennt okkur, að lítið öryggi
er í einhverjum munnlegum samningum milli meistara og nema, því að þar hefur
atvinnurekandinn töglin og hagldimar. Eina lausnin á kjaramálum olikar er því við-
unandi heildarsamningar, og að því marld skúlum við stefna. Tökum því strax til
starfa og nálgumst markmið okkar, seni er hætt laun og hetra nám.
Sigurður Magmísson, formaður INSÍ.
4
IÐNNEMINN