Iðnneminn - 01.05.1968, Qupperneq 8
Félag húsasmíðanema
í Reykjavík
/-------------------------------------------"N
Ingi Torfason er Húnvetningur og hefur
verið formaður Félags húsasmíðanema í
Reykjavik sl. tvö ár, verið í stjóm INSÍ
sama tímabil, seinna árið varaformaður.
Ingi er fulltrúi INSÍ hjá Æskulýðssam-
bandi Islands og situr í stjóm Heimdallar.
_________________________________________/
Er ritstjóri Iðnnemans fór þess á leit
við mig, að leggja blaðinu til eitthvað
efni, fannst mér tilvalið að skýra í stór-
um dráttum starfsemi félags míns sl. ár
og draga af því örstutta niðurstöðu.
Aðalfundur félagsins var haldinn um miðjan
febrúar, voru þá kosnir í stjóm: Ingi Torfason
formaður, Valdimar Pétursson varaformaður,
Burkni Dónaldsson ritari, Sigurður Geirmunds-
son gjaldkeri og Helgi Skúlason spjaldskrárrit-
ari. í varastjóm: Hannes Ólafsson og Jón B.
Gissurarson.
Starfsemin á árinu hefur verið heldur slök,
en þó í samræmi við áhuga félagsmanna. —
Snemma á starfsárinu var haldinn fræðslufund-
ur; gestur fundarins var ungur húsgagnaarki-
tekt, greindi hann frá námi sínu og starfsmögu-
leikum að því loknu, hvað hann þá fremur litla
hérlendis. Stemning á fundinum var góð og
margar spurningar lagðar fyrir gestinn.
Fyrsta tölublað 2. árgangs af Klambra kom
út seinni hluta vetrar.
Mikið var reynt að koma á árshátíð en strand-
aði alltaf á nauðsynlegum leyfum.
Þá var skipulögð starfsemi fyrir sumarið, og
átti hún að byggjast á stuttum kynnisferðum.
Fyrsta ferðin var boðuð og fengin farartæki til
mannflutninga hjá Guðmundi Jónassyni, en
þeirra reyndist ekki þörf, því aðeins 6 reyndust
hafa áhuga á slíkri ferð, þar af einn utan stjóm-
ar. Ferðin var farin á tveim einkabílum og var
hin skemmtilegasta; skoðuð var gluggaverk-
smiðjan Rammi s.f. í Keflavík, sem er ein hin
fullkomnasta sinnar tegundar hérlendis. Stjóm-
in sá ekki ástæðu til að eyða takmörkuðu fjár-
magni félagsins í boðun fleiri slíkra ferða.
Kosning til 25. þings INSÍ fór fram um miðjan
október, kjörnir voru 6 fulltrúar auk formanns.
Einn þeirra, Hannes Thorarensen, var kosinn í
Iðnnemasambandsstjórn. Á nefndum fundi voru
mættir 14 félagsmenn, þótti sumum sem þar
gætti áhuga umfram það, sem venja var til, og
gerðust bjartsýnir.
Haldinn var almexmur félagsfundur seint í
nóvember, um starfsemi og tilgang félagsins, og
mættu 10 menn í slæmu veðri. Umræður urðu
miklar og stóðu til klukkan hálf eitt.
Klambri, 2. tbl. 1967, kom út í desember.
Haldinn var félagsfundur 31. janúar, rædd
voru almenn félagsmál af töluverðum áhuga.
15 menn mættu á fundinum.
Stjómarfundir hafa oftast verið haldnir hálfs-
mánaðarlega og mæting á þá góð.
r~-----------------------------------------
Um starfsmöguleika félags sem slíks,
þarf ekki að fjölyrða, en til þess að sú
starfsemi náist, þarf fyrst og fremst ein-
hvem áhuga félagsmanna, því að það er
niðurdrepandi fyrir stjóm, hvað góð sem
hún kynni að vera, ef nær enginn sýnir
Iit af áhuga, hefur ekki einu sinni rænu á
að skamma hana; til þess þarf að opna
kjaftinn, en því þorir helzt enginn. — Er
það kannski stærsta vandamál iðnnema-
samtakanna?
8
IÐNNEMINN