Iðnneminn - 01.05.1968, Side 21

Iðnneminn - 01.05.1968, Side 21
Innanhússkeppni INSI í knattspyrnu 1968 Hin árlega innanhússknattspyrnukeppni Iðn- nemasambands íslands var háð laugardaginn 27. janúar sl. í íþróttahúsinu að Hálogalandi í Reykjavík. Um framkvæmdir að þessu sinni sá Félag járniðnaðamema í Reykjavík. Til keppni komu 7 lið frá jafnmörgum félög- um, þ. e. Félagi húsgagnasmíðanema í Reykja- vík, Félagi jámiðnaðarnema í Reykjavík, Fé- lagi nema í rafmagnsiðn, Iðnnemafélagi Akra- ness, Iðnnemafélagi Hafnarfjarðar, Iðnnemafé- lagi Suðumesja og Prentnemafélaginu í Reykja- vík. Isfirðingar munu hafa verið veðurtepptir, en um hina er ekki vitað. Ahorfendur voru sorglega fáir, og var það stærsti gallinn á undirbúningi mótsins, að fé- lögin mættu ekki með stuðningsmenn eða með klapplið. Er það von mín, að þetta hendi ekki aftur, áhorfendur og klapplið er ómissandi þátt- ur í keppnum sem þessum. Að vísu er laugar- dagskvöld ekki heppilegur tími, en í þessu til- felli varð ekki við því gert, þar sem íþrótta- húsin á höfuðborgarsvæðinu em upptekin öll önnur kvöld vikunnar, en þó er það trú mín, að hefðu félögin hvatt meðlimi sína vel og ræki- lega til að mæta hefði aðsóknin orðið sæmileg, enda er það lélegt félagslyndi, ef ekki er hægt að sleppa einu laugardagskvöldi úr glaumnum til að hvetja félaga sína í keppni fyrir þá sjálfa. Með utanbæjarliðunum þremur komu nokkrir áhorfendur, og eykur það enn á skömm heima- Sigurvegarar í knattspyrnukcppni INSÍ 1968: Talið frá vinstri: Guðmundur Hannesson, Rúnar Hjálmarsson, Benedikt Valtýsson fyrirliði, Matthías Hallgrímsson og Guðjón Guðmundsson. IÐNNEMINN 21

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.