Fréttablaðið - 29.10.2009, Síða 55
FIMMTUDAGUR 29. október 2009 39
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 29. október 2009
➜ Tónleikar
20.00 Hljómsveitin Swive + gestir spil-
ar á fimmtudagsforleik Hins hússins.
Allir allsgáðir 16 ára og eldri velkomnir.
Gengið inn í kjallara Austurstrætismeg-
in. Enginn aðgangseyrir.
20.30 Elisabeth Kaiser organisti og
Christian Raake saxófón- og flautuleik-
ari verða með tónleika í Hveragerð-
iskirkju við Hverahlíð. Á efnisskránni
verða bæði klassísk lög og djass.
Aðgangur er ókeypis.
21.00 Hljómsveitin Huld og Böðvar
Rafn Reynisson verða með sameig-
inlega útgáfutónleika í Fríkirkjunni í
Reykjavík.
21.00 Sigríður Thorlacius og hljóm-
sveitin Heiðurspiltar flytja lög Jóns Múla
á tónleikum á Græna hattinum við
Hafnarstræti 96 á Akureyri.
21.00 Jazzklúbburinn Múlinn stendur
fyrir tónleikum í kjallara Cafe Cultura
við Hverfisgötu 18. Fram kemur tríóið
ASA skipað þeim Agnari Má
Magnússyni, Scott McLem-
ore og Andrési Þór.
22.00 Hallur Ingólfsson
verður með tónleika á
Sódómu við Tryggvagötu.
Einnig koma fram á tón-
leikunum Fabúla og
Markús (fyrrum
söngvari Skáta).
➜ Opnanir
17.00 Hjá Listasafni Reykjavíkur við
Tryggvagötu opnar Egill Sæbjörnsson
sýningu auk þess sem opnuð verður
sýning á verkum Ryans Partek í D-saln-
um. Opið alla daga kl. 10-17, fimmtu-
daga til kl. 22.
➜ Sýningar
Í Þjóðarbókhlöðunni við Arngrímsgötu
hefur verið opnuð sýning til heiðurs
Þorsteini Þorsteinssyni í tilefni af því að
100 ár eru liðin frá því fyrsta kennslu-
bókin í esperanto kom út. Þar stendur
einnig yfir sýning tengd Kreppunni
1930-40, sýning á íslenskum kvenna-
blöðum og tímaritum og sýning tengd
Gunnari Gunnarssyni rithöfundi.
➜ Síðustu forvöð
Næstkomandi helgi lýkur sýningunni
„Lífróður - föðurland vort hálft er
hafið“ í Hafnarborg við Strandgötu í
Hafnarfirði. Á sýningunni eru verk eftir
tæplega þrjátíu listamenn sem endur-
spegla hafið. Opið fim. kl. 11-21, fös.-
sun. kl. 11-17.
➜ Opin vinnustofa
Gestalistamenn SÍM verða með opna
vinnustofu að Seljavegi 32 (4. hæð) kl.
18.30-20.30. Listamennirnir eru: Fiona
Chambers, Joe Ritter, Sarah Tosques,
Elizabeth Tubergen, Ailbhe Kelly-Mill-
er og Damnievska Evgenija.
➜ Leikrit
20.00 Leikfélag Fljótdalshéraðs sýnir
verkið „Saumastofan“ eftir Kjartan
Ragnarsson í Valaskjálf að Skógarlönd-
um 3 á Egilsstöðum.
➜ Hannyrðir
Ágústa Þóra Jóns-
dóttir, höfundur
bókarinnar „Hlýjar
hendur“ sýnir
prjónaða vett-
linga úr bókinni
og leiðbeinir
áhugasöm-
um kl. 16-18,
í Bókabúð
Máls og
menningar við Laugaveg
18.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
„Páll Óskar sagðist ætla að taka
á móti okkur í anddyrinu. Hann
sagðist ætla að gera eins vel við
okkur og hægt væri og ég veit að
hann bregst ekki,“ segir Sirrý Sig-
fúsdóttir spákona, eða Sirrý spá.
Yfir tuttugu nornir í félagsskapn-
um Hrafnagyðjur ætla að mæta í
fullum herklæðum í hrekkjavöku-
partí Páls Óskars Hjálmtýssonar
á Nasa á laugardagskvöld. Þar
munu þær vafalítið falla vel inn í
hópinn enda eru gestir hvattir til
að mæta í hrekkjavökubúningum
í tilefni dagsins.
Klúbburinn Hrafnagyðjur var
stofnaður í fyrra og telur hann
um fjörutíu konur á öllum aldri.
Þrisvar til fjórum sinnum á ári
hittast þær, spá í spil og bolla og
spjalla saman. „Við erum ekki
allar spákonur en margar eru
í andlegum málefnum og hafa
brennandi áhuga á þeim,“ segir
Sirrý.
Partíið á laugardaginn hefst
heima hjá Sirrý, eða í sjálfu
Nornasafninu. - fb
Nornir mæta á Nasa
HRAFNAGYÐJUR Nornirnar í Hrafnagyðj-
um ætla að gangu fylktu liði í hrekkja-
vökupartí Páls Óskars á Nasa.
Nýtt verk í leikstjórn Margrét-
ar Vilhjálmsdóttur verður frum-
sýnt í gömlu verksmiðjuhúsnæði
úti við Gróttu í byrjun nóvember.
Verkið kallast Hnykill og kemur
fjöldi leikara, tónlistarmanna og
myndlistarfólks að uppsetningu
þess. Hnykill fjallar um mann-
legar tilfinningar á borð við sökn-
uð og gleði og eru ólíkar skynjan-
ir heilans og leyndardómar hans
skoðaðir.
„Þetta er alveg glænýr hópur
og er í raun samansafn af lista-
mönnum sem Margrét hefur
verið að sanka að sér í gegnum
árin en þetta er í fyrsta sinn sem
hún leiðir alla þessa einstaklinga
saman. Katrín Þorvaldsdóttir og
Ríkey Kristjánsdóttir eru list-
rænir stjórnendur verksins ásamt
Margréti og þær hafa unnið að
þessu verki síðastliðin tvö ár,“
segir Gríma Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri Hnykils.
„Í verkinu sameinum við mynd-
gjörninga, leiklist og hljóðgjörn-
inga. Við eigum ekkert íslenskt
orð yfir þetta listform en á ensku
kallast það Site Specific Perfor-
mance Theatre og er það er orðið
nokkuð þekkt víða um heim,“
útskýrir Margrét Vilhjálmsdóttir.
Nánari upplýsingar um miða-
sölu og sýningartíma veitir
Gríma Kristjánsdóttir í síma 846-
2618. Verkið verður sýnt í hús-
næði sem áður hýsti Borgarplast.
Leikhópurinn kallar það Norður-
pólinn. - sm
Nýr Hnykill á Norðurpólnum
SAMANSAFN LISTAMANNA Margrét
Vilhjálmsdóttir leikstýrir nýju verki sem
kallast Hnykill. Verkið verður frumsýnt
hinn 1. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BIOTHERM dagar í DEBENHAMS
29. október - 4. nóvember
Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir 2 Biotherm vörur
Verðmæti kaupaukans 9.000 krónur
Einnig aðrar gerðir kaupauka
- Eau Pure Body lotion 75 ml
- Eau Pure sturtusápa 75 ml
- Eau Pure ilmur 15 ml
- Aquasource rakakrem 20 ml
- Aquateinte litað dagkrem 5 ml
- Pure extract of thermal plankton 7 ml
SKIN VIVO
Fyrsta kreminu sem snýr við
öldrunarferli húðarinnar1
Æskan er í genum þínum.
Virkjaðu þau með
Allt að 10 ára yngri húð á aðeins 4 vikum2.
Í hjarta hverrar frumu er DNA sem inniheldur gen sem tryggja
lífsskilyrði allra frumna. Með aldrinum veikjast frumugenin og
þar af leiðandi hægist á frumuendurnýjun sem hefur veruleg
áhrif á öldrun húðarinnar.
Nýjung – tvöföld virkni gegn öldrun húðarinnar: DNA + GEN
Einstök sameining Pure Thermal Plankton og Reverserol SV,
sem er öflugt og virkt jurtaefni, stuðlar að viðgerð á DNA skemmdum,
endurvekur virkni3 frumugenanna og örvar frumuendurnýjun4.
Öldrun húðarinnar er „afturkölluð” og hún verður
sjáanlega unglegri
Árangur:
Fyllir upp innan frá og dregur úr hrukkum.
Þéttari og stinnari húð. Einstakur ljómi.
Vísindalegar sannanir á rannsóknarstofum. Prófað á yfir 300 konum.
NÝ TÆKNI
8 EINKALEYFI
1)
F
rá
B
io
th
er
m
. 2
) m
æ
lt
m
eð
s
ka
nn
m
yn
d
á
þé
ttl
ei
ka
á
s
tu
ðn
in
gs
ve
f h
úð
ar
in
na
r-
um
bæ
tu
r
ja
fn
gi
ld
a
10
á
ru
m
–
p
ró
fa
ð
á
32
s
em
n
ot
uð
u
da
gk
re
m
ið
. 3
) t
já
ni
ng
. 4
) i
n
vi
tro
r
an
ns
ók
ni
r.
G
ild
ir
á
ky
nn
in
gu
nn
i m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t.
G
ild
ir
ek
ki
m
eð
2
d
eo
do
ra
nt
.
Ei
nn
k
au
pa
uk
i á
v
ið
sk
ip
ta
vi
n.