Ljósberinn - 01.07.1941, Blaðsíða 2

Ljósberinn - 01.07.1941, Blaðsíða 2
98 LJÓSBERINN Ungum er það allra bezt, að óttast Guð sinn herra, þéim mun vizkan veitast mest, og virðing aldrei þverra. Hafðu hvorki háð né spott, hugsa um rœðu mína, elska Guð og gerðu gott, geym vel œru þína. Foreldrum þínum þéna af dyggð, það má gœýu veita, varast þeim að veita styggð, viljir þú gott barn heita. Hugsa um það helzt og fremst, sem heiðurinn má nœra : aldrei sá til æru kemst, sem ekkert gott vill lœra. Lærður er í Lyndi glaður, lof ber hann hjá þjóðum, en liinn er ei nema hálfur maður, sem hafnar siðum góðum. Oft er sá í orðum nýtur, sem iðkar menntun kœra, þursinn heimskur þegja hlýtur, sem þrjózkast við að lœra. Vertu dyggur, trúr og tryggur, tungu geym vel þína, við engan styggur, né í orðum hryggur, athuga rœðu mína, Lítillátur, Ijúfur og kátur, leik þér ei úr máta, varastu pjátur, hœðni, hlátur, heimskir menn sig státa. Víst ávallt þeim vana halt: vinna, lesa, iðja; umfram allt þú œtíð skalt elska Guð og biðja. Hallgr. Pétursson.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.