Nýtt kirkjublað - 13.10.1906, Qupperneq 5

Nýtt kirkjublað - 13.10.1906, Qupperneq 5
NÝTT KIRKJUBLAÐ. 221 ekki þetta vera ein höfuðorsök þeirrar deyfðar og dauða, sem svo víða á sér hér staS í trúarefnum ? Eg hygg ]iað áreiðanlega. Slík kensla getur að vísu barið trúarlœrdóma inn í höfuðin, en trú inn í hjörtun — aldrei, og trúfræbi þannig kend og numin undirbýr jarðveginn ágætlega undir efa, skeytingarleysi og vantrú. Ef nú þessu er þannig háttað, þá er auðsætt, að hér er mikið í veði, stórvoði fyrir þjóð vora alla; sá voði, að slík trúarbragðakensla afkristni landið smátt og smátt. Og ég vil biðja yður öll að hugsa um hvað í því felst; hugsa um það í alvöru og einlægni, þegar þér eruð ein með guði og hugsið um líf og tilveru sjálfra yðar og annara. Eg skil ekki hvernig nokkrum fer þá að dyljast, hversu óbætanlegur missir það er, að vera án trúarinnar. En hvernig á þá að afstýra þessum voða. Eg get ekki gefið neitt beint svar. Sumir vilja kasta trúarbragðakensl- unni á dyr úr skólunum og létta þannig ])essu „hvirnleiða" starfi af kennurunum, og kasta því að öllu leyti upp á heim- ilin og prestana. Þessa tillögu gæti ég ])ví að eins aðhylst, að ég hefði það vantraust á kennurunum, að þeir gerðu fremur að spilla en bæta, svo að þeir rifi það niður, sem heimili og prestar bygðu upp. En ég liefi ekki þetta van- traust á þeim. Eg hefi engu lakara traust til þeirra í þessu efni, heldur en heimilanna, nema betra sé, og til eru kennarar. sem ég ber betra trausttil í þessu efni heldur en sumraprestanna. Eftir því sem hérhagar til víðasthvar, um strjálbýli og mannfæð á heim- ilum og erfiðleika í samgöngum, sýnist mér svo langt frá að fækkandi sé þeim mönnum, er starfi að útbreiðslu kristindóms- ins og innrætingu hans í sálir barna þessa lands, að þörfin sé miklu heldur, að allir þeir, sem þess eru umkomnir og þess eiga kost, vinni að því eftir megni. Því umfangsmeira og mildl- vægara sem starfið er, því fleiri og betri verkamenn þarf til þess að vinna það. Eg vildi óska að allir þeir, sem við kenslu fást, fyndu og skildu hvað kristindómsfræðslan er þýðingar- mikið atriði i öllu uppeldi, og að þeir væru þá um leið þeir drengir, að gefa ekki um að kasta því á annara herðar, heldur legðu sjálfir ótrauðir lið sitt eftir megni, til að bera sinn hluta af erfiðleikunum, sem óneitanlega íylgja því. Erf- iðleikar fylgja að sjálfsögöu hverju ])ýðingarmiklu starfi, og þeir útheimta jafnan sjálfsafneitun. — Það sé fjarri mér að

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.