Nýtt kirkjublað - 13.10.1906, Page 8

Nýtt kirkjublað - 13.10.1906, Page 8
224 NÝTT KIRKJUBLAÐ. honum sé það hvimleitt starf að kenna börnum kristindóm. Að innræta börnum þá lífsskoðun, að guð á hæðum sé faðir þeirra með öllum þeim fögnuði, allri þeirri himnesku birtu og yl sem af því orði stafar, hvernig ætti það að vera hvimleitl starf! Að það er vandaverk, það veit ég; ég held að enginn geti það, nema hann biðji guð að hjálpa sér til þess. Eg vildi að hver barnakennari fyndi, að þetta er hið eina, sem mest á ríður, og að þessu má hann aldrei gleyma, hvað sem hann svo er að kenna barninu. Má vera, að yður þyki ég nú gerast kröfuharður, og kallið, að ég vilji gera ykkur alla að prestum — já það vil ég lika. Hver kristinn maður er prestur, hlýtur að vera prestur, ef hann er kristinn að meiru en nafninu; ef hann hefir reynt hvað það er að vera krist- inn maður og elskar aðra menn eins og kristinn maður, þá hlýtur hann, eins og Þorvaldur Koðránsson, að reyna að veita þeim hlutdeild í sömu blessun i hverri stöðu sem hann er. En alveg sérstaklega finst mér það fylgja ykkar stöðu. Al- þýðumentunin hér á landi hefir um langan aldur mest runn- ið frá prestunum, nú er þeim að fækka, en kennurum að ljölga; það er ætlast til að alþýðumentunin vaxi við það; ég vona að svo verði; en kristindómurinn má ekki minka við það í landinu; hann þarf líka að aukast, hann þarf að fá meiri tök á þjóðinni. Að taka mentun í staðinn fyrir lcrist- indóm, það væru slæm skifti; það væri að taka þokuský fyrir gyðju eða mýraljós fyrir morgunsól. Kristindómslaus menning leiðir bráðum til ofmennigar eða ómenningar, sem ber að sama brunni. Kristindómurinn þarf að fylgja menn- ingunni til að verja hana rotnun og spillingu. Annars rek- ur að því sem Rousseau sagði: „Því hærri siðmenning því dýpri siðspilling.“ Það er vert að muna orð Matthíasar, ekki sízt fyrir kennarana: „Hvað er sjúlf vizkun um veraldurstorð ? oft vofa tóm, sem glepur Inð lifandi orð.“ Varist að láta nokkru sinni þá vizku, sem J)ið kennið, verða að slíkri vofu! Kennarastéttin og prestastéttin standa fyrir nn'num augum mjög samhliða, með því sameiginlega ætlunarverki á herðum sér að ala önn fyrir andlegum heill- um þjóðarinnar. Það er um þessar mundir mikið talað um franifarir og mikið að þeim unnið í verklegum efnum, og

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.