Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Side 3

Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Side 3
ÍSTÝTT KIRKJÚBLAÐ. 2t hægt að tryggja sér |>að? Já, jjað er liægt. Eins og menn geta trygt sér það. að heimilislifið verði unaðs sælt og skemti- legt með því að láta anda Jesú Krists helga það, á sama hátt getur sjómannalífið með öllum [>ess erfiðleikum og striti og óþægindum orðið unaðsælt, með því að láta anda Jesn Krists helga það og nmskapa frá rótum. Með öðrum orðum: verði sjómannalífið kristilegt — og hví ælti það ekki að geta orðið það, þar sem sjómannalýðurinn hjá oss er lýður kristinna manna — verði, segi ég, sjómannalífið kristilegt, þá er með því fengin áreiðanleg trygging fyrir því, að það verði í alla staði bærilegt, og geti jafnvel orðið uppspretta unaðar og ánægju fyrir sjómanniun. Eg vil því í þetta skipti tala til yðar, sjómenn, um kristi- legt sjÓDiaiinalít ogláta textaun, sem ég las hér upp áðan, benda oss á hvað til þess útheimtist. I. Kristilegt sjómannalíf! Það er fögur hugmynd — eða virðist þér það ekki, þú sjómaður? Jú, ég er viss um, að þér sýnist svo, og ég er viss um, að þú vildir óska að svo yrði um lífið á kúttaranum þinum, ef það aðeins gæti orðið. En þar koma efasemdirnar. Þú ját.ar, að það væri æskilegt, en þú efast um, að það sé framkvæmanlegt. Eg hefi átt tal við sjómenn um þetta og ég þekki vel agnúana, sem margir þeirra álíta, að séu á því í framkvæmdinni, — en þessir menn gleyma algjörlega eða hafa ef til vill aldrei skilið hvílíkan kraft kristindónmrinn hefir til að helga og umskapa frá rót- um sérhvern félagsskap manna, þar sem honum er leyft að verka með anda sínum Kristindónmrinn hefir gagnsýrt stærri félög en skipshafnirnar eru, sem skipin okkar rúma, hafi honum aðeins verið leyft að starfa þar og hafa áhrif á ein- staklingana, og um það munduð þér fljótt geta sannfærst ef þér vilduð. En til þess að þetta geti orðið, verða hin réttu skilyrði að vera fyrir hendi. Hvað útheimtist þá til þess, að h'fið á skipunum ykkar geti orðið kristilegt sjómannalíf? Heyrum hvað postulinn segir: Um fram ált íklæðist elskunni, því að hún er hand algjörleikans, þá mun frið- ur Krists búa i yðar hjörtum.

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.