Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Page 4

Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Page 4
28 NÝTT KIRNTtlBLAÐ. Vér vitnm öll hvaða þýðingu |iað hefir fyrir heimilislífið, að þar ríki kærleikur meðal heimilismannanna, að hver og einn íklæðist elskunni og láti kærleikann vera |iað band, sem bindur hann við aðra heimilismenn og mótar alla framkomu hans við þá. Vér vitum öll hversu þessi kærleikans heilagi andi verndar heimilið gegn öllum ófriði og úlfúð, öllum deil- um og sundurlyndi, en sameinar alla heimilismenn svo sem limi á sama líkamanum og gjörir þeim það að heilagri skyldu, að umbera hver annan og fyrirgefa hver öðrum, að uppörva hver annan og hjálpa hver öðrum í öllu því sem gott er og liorfir heimilinu til heilla. Mundi ekki eins geta orðið úti á skipunum ykkar, — mundi þar ekki geta myndast einskonar kristilegt heimilislíf, þar sem ríkir friður og eindrægni, hógværð og umburðarlyndi, meðaumkvun og hjálpfýsi? A því getur enginn vafi leikið. Til þess þarf ekki annað en að hver einstakur maður meðal skipshafnarinnar íklæðist elskunni, sem er band algjörleikans. Að sama skapi sem andi kærleikans fær að gagnsýra alla skipshöfnina, að sama skapi sem hver maður á skipinu öðl- ast skilning á því, að hann er kallaður til þess að gæta bróð- ur síns, hjálpa Iionum og styðja hann, að sama skapi um- myndast skipshöfnin öll í eitt kristilegt bræðrafélag. Ég veit vel að ýmsir erfiðleikar geta orðið á slíku, þar sem eins stend- ur á og hér, að á hvert skip safnast menn úr ýmsum áttum, sem ef til vill liafa fæstir sést áður, eru ef til vill ólikir að innræti og hafa fengið ólíkt uppeldi. En þessir erfiðleik- ar eru þó ekki til annars en að yfirbuga þá, og sé það satt, að kærleikurinn sé sterkasta aflið í heiminum, þá á hann smámsaman að geta unnið bug á þessum erfiðleikum. Þú mátt vera við því búinn, að þér lendi saman við menn, sem hafa stóra bresli í fari sinu, einhverja þú galla, sem gera það að verkum, að þú mundir hafa forðast alla umgengni við þá í landi; en nú ertu með þeim úti á sjónum, og getur ekki forðast umgengni við þá. Hvað er þá lil bragðs að taka? Viljirðu vera góður kristinn sjómaður, þá kappkostar þú nú að iklæðast elskunni. Þú minnist þess fyrst og fremst, að þú ert ekki fullkominn sjálfur, en hefir þína bresti og ókosli, og sjá, að sama skapi sem þú minnist þessa, gjörir það þér auðveldara fyrir að umbera bresti bræðra

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.