Nýtt kirkjublað - 20.02.1907, Qupperneq 14
38________ _ _NÝTT KMJtjBLA& _ _
harla misjöfn; ]iað hefi ég sjálfur reynt. Sama er ef lán
hefir verið tekið handa kirkju; það stendur að það skuii
greiða á sama hátt, að ])ví er mér skilst, af forráðamanni
nema úttektarmenn meti, að það megi að einhverju leyti greiða
af tekjum kirkjunnar eftij-leiðis. Þetta er svo óbilgjarnt sem
mest má vej'ða, og mundi engum koma til hugar slíkar kvað-
ir þar sem einhverjir embættismenn œttu hlut að máli aðiir en
prestar. Eigendur bændakirkna standa hér alt öðruvísi að,
þar sem þeir geta verið sjálfráðir um, hvort og á hverjum
tíma þeir leggja niður forráð sin. Ef forráðamaðui- á annað
borð á að greiða álag á kirkju, og hún er í skuld við hann,
þá virðist ekki annað geta komið til mála, en að álag og
skuld mætist svo iangt sem nær, og sé þá mismunurinn þeg-
ar fallinn í gjalddaga jafnt á báðar hliðar, hvort heldur það
er skuldin eða álagið, sem meira er.
Annars virðist mér hið eina sanngjarna vera, að forráða-
maður kirkju, sem er undir eftirliti prófasts — sem venjulega
fer fram annað hvort ár — og hefir óaðfmnanlega varið fé
kirkjunnar henni til viðhalds og hirðingar og gjört fyrir því
árlega full reikningsskil, hann skili kirkjunni ásamt eignum
hennar og sjóði í því ástandi sem hún er á þeim tíma Hver
peningur, sem hann lætur umfram það, er tekin úr hans
eigin vasa, en ]iað er ekki réttlæti og getur naumast verið
tilgangurinn. Það er ekki nema eðlilegt og æskilegt, að út-
tekt fari fram á kirkju, sem á að skila, til þess að fá stað
festingu fyrir, hv.ort meðferð forráðamanns á henni og fjám
hennar héfir verið viðunanleg, en um aukin fratnlög af hans
hendi ætti því aðeins að geta verið að ræða, að úttektin leiddi
í Ijós að meðferð hans hefði verið vítum bundin, sem honum
með réttu yrði gefin sök á. Kr. D.
íslenzki lornbréfasaf n.
Nýir biskupar. — Rithönd Jóns Arasonar. —
Kristileg fræðsl i. — Aflát o. fl.
Einhver allra-merkilegasta bókin, sem út kemur hjá
oss, ép f'orribréfasafnið íslenzka, og er þess þó sjaldan getið,