Nýtt kirkjublað - 01.05.1909, Side 8

Nýtt kirkjublað - 01.05.1909, Side 8
104 NÝTT KIRRJUBLAÐ þó þetta bætist ekki við. En það mundi að líkindum ríða baggamuninn. Á þá að hætta öllum alþýðumentunar tilraunum? Nei, þvert á móti. En ég er sannfærður um, að aðferðinni þarf aðbreyta. Unglingaskólar með lýðháskólasniði liygg ég ætti að koma upp á hentugum stöðum. Kennara til þeijra þarf vandlega að velja. Öllum unglingum ætti að vera skylt að sækja þá skóla — nema skólastjóri álíti gilda ástæðu til undanþágu. Enginn sé tekinn í skólannjyngri en 15 ára. Hver nemandi hafi lokið námi 20 ára. Ekki ætti að þurfa að sitja þar alla þessa 4 vetur. Lengd námstímans fyrir hvern ungling um sig, og hvort sá tími er tekinn allur í einu, eða honum skift á veturna eftir einhverri tiltölu, ætti að vera komið undir samkomulagi skólastjóra og umráðanda unglingsins. Slíkt frjálslegt fyrirkomulag væri notalegt fyrir þau heim- ili, sem eiga óhægt með að missa unglinga að heiman. Og skólastjóri færi nærri um, er hann hefði kynzt unglingnum nokkuð, hvaða námstima hann kæmist af með. Landsjóður komi upp skólahúsum, en skólahéruð haldi þeim við. Landsjóður launi kennurum, en kensla sé ókeyp- is. — Nema ef eldri maður en 20 ára fær inntöku, þá gi’eiði hann ákveðið kennslukaup. Utvega má skólunum jarðir og gjöra þeim bú, ef það þykir hentara, — sem ekki er ólíklegt. Á skólum þessum ætti unglingar að njóta þeii-rur frœðslu sem nauðsynleg er til Jjess, að verða vel að sér í almennum mentagreiuuin — og þeirra leiðbeininga, sem við þarf til að menta og göfga hugsunarháttinn. Með þessum hætti er ég vongóður urn að alþýða ment- aðist og þioskaðist. Og eftir því sem hún þroskaðist að andlegri og efnalegiá megun, eftir því mundi hún smámsaman fjölga unglingaskól- unum og efla þá, eftir því sem reynsla sýndi að við þyrfti.

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.