Nýtt kirkjublað - 01.04.1910, Blaðsíða 7
NÝTT KIRKJUBLAÐ
79
reynt að gera úr því á íslenzku: Herrann Drottinn. En það
er i meira lagi vandræðalegt.
(Niðurlag næst).
H. N.
Jnjóflóðin vestra.
Nú um páskaleytið lesum vér um útför þeirra 18 manna,
er urðu fyrjr snjóflóðinu í Hnífsdal. 011 voru líkin lögð í
eina gröf, og töluðu yfir þeir síra Þorvaldur prófastur Jónsson
og væntanlegur prestur hér í bæ, skólastjóri Bjarni Jónsson, en
þeir Guðmundur Guðmundsson og Lárus Thorarensen höfðu
kveðið útfararljóð, sem sungin voru.
Og nú um ])áskaleytið minnumst vér og manntjónsins mikla
hér við Faxaflóa fyrir 4 árum. Urðu þá og daprir hátiðis-
dagar fyrir mörgum.
Um snjóflóðið í Skálavík ritar síra Þorvaldur prófastur
mér 21. f. m.:
Um fyrri helgi jarðaði ég þessi 4 lík, sem fórust í snjó-
flóðinu i Skálavík; voru þar 2 bæir, sem urðu fyrir snjóflóð-
inu I öðrum þeirra voru gömul hjón, og ekki annað fólk;
dóu þau bæði, og var auðséð að þau höfðu dáið undireins,
hann hafði verið háttaður og lá á hliðina, með hönd undir
kínn, eins og ekkert hefði i skorist. í hinum bænum voru
hjón með 5 börn þeirra og ekki annað fólk. Maðurinn hafði
séð út um gluggann til skriðunnar, og ætlaði út; komst út
fyrir baðstofudyrnar, svo vissi konan ekki meira um hann.
Eitt barnið hennar var háttað í rúmi, þegar skriðan kom, og
það dó, en konan sat á öðru rúmi með hin börnin 4, og það
hlífði þeim að þar stóð sterkur skápur, sem ekki brotnaði.
Og þarna i þessu litla skoti var konan fulla 40 tíma með 4
börnin; elzta 10 ára, yngsta á brjóstinu.
1 Skálavik voru 10—12 menn, karlmenn fullorðnir, fóru
þeir að grafa niður í snjóinn, en hættu fljótt aftur. Bæði
var það, að veðrið var fjarska slæmt, og svo voru þeir svo
hræddir um sig og sín heimili, enda hafa þeir eflaust verið
vonlausir um, að nokkurt fólk væri ineð lífi undir öllum þess-
um snjó. Börnin heyrðu að verið var að grafa, en móðir