Nýtt kirkjublað - 01.04.1911, Page 11
NÝTT KIBKJUBLAÐ
83
sér ávalt að hann væri að semja líkræðu yfir hana móður
sína. —
Sagan er lærdómsrik, ])ó ekki sé hún lengri en þetta, —
eg yfirlæt tilheyrendum mínum að draga lærdóminn út af
henni. —
[Niðurl.]
J. IJ.
ndldts-bcen.
Andlegan styrk mér auktu ])á,
ó guð, nær veröld skilst eg frá,
svo geðrór rnína gefi eg önd,
góði faðir, í ])ína hönd!
Hörmum mínum í huggun snú,
himnunum fyrir mér uppljúk ])ú!
Er þettn vers áður prentað? Kona að norðan fór svo með við ritsl j. Ein
dóttir sira Þorvaldar Böðvnrssonar í Ilolti kendi þessa bœn börnum siiuiin.
N. Kbl. Jiakkar sem best fyrir að ía andleg erindi og ljóð, sem enn
lifn á vörum manna. en aldrei verið prentuð.
Síra Matthias Eggertsson í Grímsey var hér núna á ferðiuni.
Hann lætur all vel af hag eyjarskeggja. Hreppsþyngsli eru all-
inikil og eigur ekki teljaudi, en skuldir eru líka litlar, og flestir
hafa bærilega afkomu. Eyjarhúar eru nú rúmlega 100, og það
líklega verið flest i eynni.
Skólakennari hefir nú verið þar tvo vetur, Hreiðar E. Cteirdal.
Fjórtán börn eru í skólanum í vetur. Af Piskesjóði er kominn t.il
landsins rúmur helraingur, fullar 20 þús. Fyrsta húsabótin með
styrk úr sjóðnum verður á sjálfu prestssetrinu, reisir sira Matthias
þar á næsta sumri fyrir byggingarlán úr landssjóði myndarlegt í-
búðarhús. Á er þar komin vátrygging sveitabæja eftir lögunum
1905, og korníorðabúr er á leiðinni.
Eyjarskeggjar hafa í huga að minnast hins mikla velgjörða-
mans síns árlega. Afmælisdagur hans, 11. nóv., verður tyllidagur
hjá þeim. Svo var í vetur sem leið. Flutti sira Matthías þar
iyrirlestur um Fiske, og suugið var þar kvæðið, eftir skólakenu-
aranq sem hér fer á eftir;