Nýtt kirkjublað - 01.04.1911, Side 12
84 NÝTT KIRKJUBLAÐ
G r i m s e v.
Þú varst fyr af mönnuni metin
meir en eyðisker.
Kóngar, út í öðriun löndum,
ágirnd fengn’ á þór;
einn, hann sendi biðilsbréfið
beina leið á þing. .
Þá var happ, að ísland átti
Einar Þveræing.
Þessu næst, um ótal aldir,
enginn sinti þér.
Ekki voru mikils metnir
menn, sem bjuggu hér.
Hrikalegar hafísborgir
huldu svalan mar,
og hjá snauðum eyjarskeggjum
æfi döpur var.
Svo fór loks, að sólin bræddi
seigan ís við strönd,
og í vestri reit með rúnum:
„Réttið bróðurhönd
þeim er ótal þrautir reyna
þurfa ár og sið,
þótt eg gylli grund og móa,
græði börð og hlíð.“
Willard Eiske í röðulrúnum
réði sérhvern staf.
Ærinn hlut af auði síuum
eyjarbúum gaf.
Mirtning hans skal ávalt eiga
æðsta sæti hér,
meðan ægir örmum vefur
okkar litla sker.
ISréf frá forstöðuinanni K. F. U. M. þar í landi.
(Lauslega þýtt).
Þau eru mikil umskiftin i Portúgal árið sein leið, og er mér
Ijúft að koma vinum minum og fólagsbræðrum í skiluing um það
sem gersfc hefir.
Konungdómurinn var orðinn óvinsæil, eins og vænta mátti er
hann var i bandalagi við Jesúítana. Stjórnarfarið var alt mjög
óvandað, svo eigi sé harðara að orði kveðið. Eræðslu almennings
skilaði lítið áfram, og Portúgalsmenn, sem vandari voru að virð-
ingu sinni, stóðu nteð kinnroða frammi fyrir öllutn þjóðum. Það
voru 70 af hundraði hér i landi enn ólæsir og óskrifandi. Verka-
launiu voru upp og ofan um daginn ll/3 kr., en kjötpundið og
sykurpundið var hvort um sig komið í 45 aura, smjörpuudið jafn-
dýrt dagkatipi fullorðins manns, og pundið af hveitibrauði 15 aura.
Prestarnir voru i samábyrgð valdahringsins, og íiestir þeirra
ósiðvandir og ágjarnir. Ekki þurfti að kvíða þvi að upp kæmist
eða fyrir yrði refsað.
Lögin voru sett og samin af Jesúítum, og eftir þeim var eng-
um manni frjálst að yfirgeta rómversku kirkjuna. Landrækir voru
þeir rnenn að lögum setn guðspjallafrásögurnar um Krist höfðu
leitt inn á nýjar trúarbrautir.