Nýtt kirkjublað - 01.10.1914, Qupperneq 11
NÝTT KIRKJUBLAÐ
227
nýverið að hann sé lífið og sálin i félagslífinu í sinni bygð, og
það ætla eg um hann, að skil muni hann vita á flestum bændum
landsins, sem komnir eru á efri árin. Síðara bréfið er frá Jóni
Jónssyni fyr á Sleðbrjót. Á Jón mikinn og góðan hlut í hinni
raerkilegu landnámssögu Vestur-íslendinga í Winnipeg-almanaki
Ólafs Thorgeirssonar. Báðir eru þeir allir með hugann við íslensk
fræði og málefni íslands. Báðir eru við búskap i Manitoba.
I. Úr bréfi Halldórs Ðaníelssonar.
Altaf er eg kyr i sama stað, búinn að vinna mér eignar-
rétt á landi því sem eg bý á. Búskapurinn smágerbur. Eg
hefi fáeina nautgripi og dálitla garðrækt. Atvinnubót að því,
þótt lítil sé, að eg sé um og hirði skólahús bér nálægt. AU-
mikið hefi eg af bókum. Á eg dálítið af þeim s]álfur. Svo
er hér lestrarfélag sem á rúm 300 bindi af bundnum bókum
og talsvert af óbundnum. Er eg skrifari og annar bókavörð-
ur félagsins.
Lestrarfélagið kaupir Bókmentafélags og Þjóðvinafélags-
bækurnar, Nýjar Kvöldvökur, Eimreiðina og Óðinn og mikið
af sögum. Hérna frómt frá að segja, þá er eg sá eini af
félagsmönnum, sem Ies sumar bækurnar. Sögurnar lesa all-
ir. Félagsmenn fremur lestrarhneigðir. Yngra fólkið, flest
alt, les einkum enskar bækur.
Ekki er gott að segja um afkomu fólks hér. Land kom-
ið í svo hátt verð, að þó hinn mesti sparnaður og atorka sé
við höfð, verður, mér liggur við að halda, meiri hlutinn af
þeim sem land kaupa, að yfirgefa alt eflir stuttan tíma, og
skilja svo við efnalausir. I bygðum hér eru mörg óbygð
lönd með byggingum á og ræktuð að miklum mun, sem eng-
inn fæst ábúandi á. Hvar sem farið er, endurtekur sama
sagan sig. Búskapurinn, þ. e. akuryrkjubúskapurinn, borgar
sig ekki. Búlönd komin í ofhátt verð. Fólkið streymir í
bæina. Auðfélög eru í þann veginn að eignast landið. Sjálfs-
eign bænda og sjálfstæði smáhverfur. Menn spyrjaum: Hvað
get eg fengið fyrir landið mitt? En menn spyrja ekki um
það: Hvernig get eg sem best búið á því? Ekki er samt
svo að skilja, að hér séu ekki bændur, einnig meðal íslend-
inga, sem komast vel af og eru efnaðir.
Mér líst allvel á framtíðarbúskapinn heima á Islandi,