Nýtt kirkjublað - 01.01.1915, Blaðsíða 7

Nýtt kirkjublað - 01.01.1915, Blaðsíða 7
NÝTT KÍRKJUBLAÐ borg. Ymsar fjölskyldur |iar i bænum skiftust á með, að gefa lionum að borða. 1856 tók bann stúdentspróf í Upp- sölum. Hann las heimspeki, tók doktorsgráðu 1863, og var síðan dósent við Qppsala háskóla i nokkur ár. Jafnframt því sem liann kendi, gaf hann út margar bæk- ur*) beimspekiiegs-kristilegs efnis. Sumar af þeim komu illa við kaun manna, og vöktu mikið umtal, t. d. „Kuiturens Offervásen". Á þessum árum átti hanu í miklu sálarstríði, því lýsir hann í kvæðinu „Mig þyrstir" (i „Vittra Skrifter“). Fyrir utan biblíuna segir hann, að engin bók bafi haft jafn mikil áhrif á sig, og „Den sista Athenaren“ eftir Vietor Rydberg**). Og af heimspekingum hefir enginn liaft jafn mikil áhrif á bann, og landi hans, Kristoffer Jakob Boström f 1866. Það sannaðist á Wikner „að enginn spámaður er vel metinn á ættjörð sinni“. Hann fekk ekki prófessorsembætti við háskólann i Uppsölum, þótt allir vissu, að enginn af kenn- urunum hafði jafn-mikil áhrif á stúdentana og bann. Árið 1884 buðu Norðmenn honum prófessorsembætti við háskólann í Kristjaníu, það þáði hann, og var þar þangað til hann dó, 15. maí 1888, rúmlega fimtugur að aldri. Rétt áður en hann dó, höfðu Svíar boðið honum embætti við háskólann i Uppsölum, en ]>að var um seinan. Hann var grafinn í Uppsölum í viðurvist fjölda manns. Margir af merkustu mönnum Norðurlanda fluttu ræður við jarðarförina. Nú var öllum ljóst, hversu mikils virði hann var, og sannaðist þá sem oftar gamla máltækið: „enginn veit hvað átt hefir, fyr en mist hefir“. Pontus Wikner var kennari með svo miklum afburðum, *) Af bókum lians vil eg sérstaklega benda á: „Vittra Skrift- er“, sem er safn af ritgerðum og kvæðum eftir liann (Verð kr. 3,50. „Tankar och fragor innför Milnniskones son“, (Verð 3 kr.). Og af bókum um hann: „Áberg: Oarl Pontus Wikner. Hans lefnad och UVror“, (Verð 3 kr.) og „Eklund: Pontus Wikner“. (Eöreningen Heimdals Polkeskriíter), verð 20 aur. **) I þessari bók lýsir Rydberg baróttu kristninnar við guðatrúna. L 0.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.