Nýtt kirkjublað - 01.01.1915, Blaðsíða 9

Nýtt kirkjublað - 01.01.1915, Blaðsíða 9
NÝTT KIRKJUBLA© 5 að fáir menn áttu alla ]»ekkingu, sem þá var til. Allur þorri fólksins var fáfróður, og varð að láta aðra svo að segja sjá alt fyrir sig og gera alt fyrir sig, sem einhverja þekkingu þurfti til — og þá voru erfiðar tíðir. Nú er þetta alt að breytast, þekkingin að verða eign fleiri og fleiri; og einn lið- urinn í þessari þekkingaráveitu á akur þjóðlífsins eru þessi námsskeið. Og eg er þess viss, að þeir sem hér hafa setið allan tímann, og fylgst vel með því, sem hér hefir verið sagt, að þeir fara héðan talsvert fróðari um ýmislegt sem menn þurfa að vita, ekki sízt, eða aðallega í því, er landbúnað snert- ir, og sem á ýrnsan hátt má þeim síðar að gagni verða. Þeir liafa fyrir veru sina hér eignast dálitið af viðbótarvopn- um í baráttunni fyrir tilverunni; þeir œttu fyrir það að vera dálítið betur út í lífið búnir, dálítið sterkari. Þekking er afl, ment er máttur, — þessi skoðun, þessi sannfæring ryður sér nú meira og meira til rúms í hugum þjóðarinnar. Gamla spekin: að bókvitið verði ekki látið i askana, er að líða undir lok — nýja skoðunin, að þekkingin, ekki sízt á öllu því er alvinnuvegina snertir, og mörgu öðru, sé ómissandi fyrir hvern þann, er komast vill áfram í lífinu, og verða þar maður með mönnum talinn, þessi skoöun er alstað- ar að vinna sigur — og öll þau orð, sem að því Iúta, að gjöra menn á einhvern hátt sterkari og hæfari í lífsbaráttunni, öll þau orð eru góð orð, eða verða að teljast góð orð. — Eg mintist á það, að mentun væri máttur, og mátturinn er góður, en hann er því að eins góður, að hann komi niður á réttum stað. Það má misbrúka máttinn á ýmsan hátt. Með- an hann er notaður eins og Þór notaði sinn mátt forðum, til að berja á tröllum og illþýði, meðan hann er notaður til að mylja erfiðleikana, láta hið illa og ljóta og ranga hverfa, meðan hann er notaður til varnar hinu veika, til að hefja hið lága, á meðan er hann sannnefndur kostagripur — en það má nota hann í aðrar áttir, þessum gagnstæðar — og þá getur hann orðið sannnefndur hættugripur. Til ]>ess að mátturinn, líka sá máttur, sem er fólginn í mentun og lærdómi, — til þess að hann geti orðið einni þjóð til sannrar blessunar, til þess þurfa að vera sameinaðir honum mannkostir, drenglyndi, sannleiks- ást, réttlætistilfinning og um fram alt kærleikur. Og þetta alt liggur eiginlega í þessu orði, mentun; mentun er ekki aðeins

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.