Nýtt kirkjublað - 01.01.1915, Blaðsíða 8

Nýtt kirkjublað - 01.01.1915, Blaðsíða 8
4 NÝTT KIRKJUBLAÐ að hann er einstakur í sinni röð. Hann elskaði nemendurna og gerði alt sem hann gat, til þess að vekja hið göfuga og góða í eðli þeirra. Þeir skoðuðu hann sem föður eða eldri bróður, sem þeir ókviðnir gátu talað við um alt, og spurt til ráða, þegar vanda bar að höndum. Eg hefi heyrt gamla menn tala um það með tárin í aug- unum, hvernig hann hafi vakið fagrar hugsjónir hjá þeim, og hjálpað þeim bœði í andlegum og líkamlegum efnum. Þegar eg gríp niður í einhverja af bókum Wikners, finst mér áhrifin vera líkust því, að koma út í skóg á vordegi, þegar alt angar af blómum, og fuglarnir syngja glöðum rómi upp í trjánum. •— Það er eins og alt segi: „Hærra minn guð til þín, hærra til þín“. Gaman hefði verið að skrifa nánara um skoðanir P. W. en annirnar leyfa það ekki. Eg vona að þessar línur geti orðið til þess, að einhver sem Ies þetta, geri gangskör að því að kynna sér rit þessa merka manns. Þau finnast að öllum líkindum á landsbóka- safninu. Vejle í okt. 1914. Ingibjörg Ólafsson. HlY’arp við búnaðarndmsskeiðslokin i :H|jarðarholti 1914. Kærir hræður! Eg vona að ykkur öllum þyki ])að vel við eiga, að slíta þessu námsskeiði hér með nokkrum góðum orðum. En þeg- ar eg tala um að slíta þessari samkomu með góðum orðum, þá má enginn misskilja mig svo, að það hafi ekki einmitt líka verið góð orð sem hér liafa verið sögð þessa daga. Eg sagði hér nýlega, að eitt af því hugðnæmasta, sem væri að gerast hjá ]>jóð vorri um þessar mundir, væri dreif- ing þekkingarinnar út til fjöldans. Það var einu sinni sú tíð,

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.