Nýtt kirkjublað - 01.01.1915, Blaðsíða 13
NÝTT KIRKJUBLAÐ
9
að elska hann, sem ber og liefir borið umhyggju fyrir þessu
landi og vakir yfir jjví frá ársins byrjun, til jjess enda.
Eitt af því bezta, sem vér höfum eignast í landinu til
umbóta og framfara, eru vegirnir, flutningabrautirnar — en
okkur vantar aðrar brautir — okkur vantar svo tilfinnanlega
kœrleiksbrautir um landið, kœrleiksbrautir á milli okkar allra,
og kœrleiksbraut frá okkur öllum til hans, sem er vort Ijós
og skjól. Guð gefi að þeim brautum fjölgi með komandi ár-
um, og munu þá blessunartíðir í vændum. —
ólafur ólafsson.
fpamldrsYers
úr kvöldsöngsræðu, eftir síra Jón Brynjólfsson í Háfshóli
í Holtum (d. 1. nóv. 1898).
Gæzkan guðdómlega, Gleym þú af oss öngum,
geymi oss alla vega unz hjá þér, þér, þér,
utan tár og trega, unz hjá þér með englaher
tæpan veg þó gönguin; unn oss dýrðarsöngum.
Ritað eftir Ólafi Ögmundssyni á Lágafelli i Landeyjum.
5. V.
I r a m s ó k n.
Engillinn sagði við Jósep: Þú sTtall Jcalla nafn
hans Jesús, því að liann mun frelsa lýð sinn frá
syndum þeirra.
Konungur vor og frelsari, Jesús! Lýs þinum friði yfir
þessu nýja ári. Gef að þitt riki megi á þessu ári eílast og
útbreiðast í hjörtum vorum, á heimilum vorum, hér á landi
og í öllum heiminum. I þínu nafni! Amen.
Alstaðar skín Jesú nafn yfir hverju nýju ári, alstaðar þar
um heimsbygðina, þar sem fagnaðarboðskapurinn er fluttur
og móti honum er tekið. Hinn gamli texti nýjársdagsins segir
frá því, að Jesús gjörðist borgari sinnar þjóðar. Æfi hans