Nýtt kirkjublað - 01.01.1915, Blaðsíða 19
NÝTT KtttKJUBLAÐ
15
Sælir eru friðflytjendur, þvi að þeir munu guðs synir kall-
aðir verða.
Striðið og brennivínið.
£>egar þýzka hernum var stefnt saman, var allur vari hafður
á því að hermenn fengju nokkuð í staupinu. Ollum sem að stóðu
kom saman um það, að áfengisdropi mætti ekki koma inn fyrir
varir hermannanna. Keisarinn hafði og hátíðlega lýst því yfir, að
sigurvonin væri mest komin undir bindindi. „Taugarnar, taugarn-
ar — þurfa að vera óskemdar11.
Þegar stríðið hafði staðið 7 vikur, kemur svolátandi skeyti
til Berlínar frá frönsku vlgstöðvunum: „Krónprinsinn biður um
romm og arrak, sem allra fyrst út á vigstöðvarnar, svo að um
muni".
Áfengissalar og bruggarar hafa orðið ágætlega við þessu, og
gjafabrennivínið hefir streymt að í tugum þúsunda lítra á herfylki,
og pósturinn flytur þessar „kærleiksgjafir11 ókeypis.
Norska Kirkjublaðið tekur þetta eftir merkum þýzkum blöðum.
Eftir að þetta var sett, berst Norskt Kirkjublað með þeirri
leiðrétting, að krónprinsinn hafi lýst þvi yfir, að þessi pöntun liafi.
bara verið til heilsubótar-nota.
Stríðslokin.
Allir geta spáð — og enginn. — Getspakur maður erlendis
ritar skömmu fyrir árslokin:
Seigt gengur með stríðið og litur nú út fyrir, að það muni
verða mjög langvint. Sennilega verða Þjóðverjar að lúta að lok-
um fyrir ofuraflinu, en litla trú liefi eg á, að þeir verði með vopn-
um unnir, allra sízt á lundi. En það verður „ökónómiska" stríð-
ið, sem þá mundi koma þeim á kné. Englendingar eyðileggja
alla verzlun þeirra og siglingar, útflutning og innfiutning, og þá
einnig allan iðnað. Slíkt þolir engin stórþjóð til lengdar. Allur
íjárhagunnn fer 1 kaldakol og skortur á mörgum nauðsynjum verð-
ur óbærilegur. Þetta get eg hugsað mér að verði Þjóðverjum að
falli, en ekki vopn fjandmannanna.
Gott vatn.
Sira Helgi á dren jaðarstað hefir með ærið miklum kostnaði
náð Laxá yfir túnið og grundirnar niður af. Árangurinu orðið sá,
að þar sem áður fékst af grundunum að meðaltali hátt á 4. hundr-
að, losuðu þær í sumar 900 hesta, af þingeysku bandi.
Gamall bóndi um þær slóðir hefir í 30 ár veitt Laxá á engi
sitt, og fær þar er bezt lætur 50 hesta af liektara.