Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Blaðsíða 9
NÝTT KIRKJUBLAÐ
201
þessu viijum á nokkurn hátt vekja illdeilur, aSeins viljum vér
leita til yðar spyrjandi, og oss fmst það vera rétt aðferð, þar
sem vér erum í stjórn félagsins, en þér eruð verndari þess,
og standið yfir stjórnarnefndinni, þar sem þér eruð í tilsjón-
arráði félagsins. En svo segir í 12. grein félagslaganna: „Til-
sjónarráðið gætir þess, að télagið víki ekki af grundvelli sín-
um; gjöri félagið það, er tilsjónarráðinu heimilt að uppleysa
félagið í samráði við Sambandsstjórnina í Sviss“.
Nú trúum vér þvi, að félagið hafi ekki vikið af grund-
velli sínum, en hyggjum að athugasemdirnar í N. Kbl. eigi
við aðferðina og um slíkt væri gott að ræða nánar.
Vér höfum reynt að gæta barnseðlisins eftir því sem oss
hefir veizt skilningur til, raðað unglingunum og börnunum
niður i deildir eflir mismunandi þroska og aldursskeiði, þess*
vegna er til bæði sunnudagaskóli, yngsta-deild, unglinga-deild
og aðal-deild. Vér höfum reynt eftir föngum að hafa efnið
margbreytilegt, almennar kristilegar samkomur, biblíulestra og
annað, er miðar til uppbyggingar. Fyrirlestrarnir hafa verið
haldnir af ýmsum mönnum um margbreytileg efni, saklausar
skemtanir hafa verið á boðstólum, bókasafni hefir verið kom-
ið á fót með mörgum góðum og hollum hókum, ýmsir smá-
flokkar hafa komið upp innan félagsins eftir mismunandi þrá
meðlimanna, t. d. íþróttaílokkar, jarðræktarflokkur, hljóðfæra-
flokkur o. fl., en alt bygt á hinum eina og sama grundvelli,
og takmarkið hið sama með því öllu — að leiða ungar sálir til
Krists, og aðalkjarninn í samkomum vorum hefir verið guðs orð.
En starfið er vandasamt og mikil ábyrgð hvílir á þeim,
sem starfa í vfngarði drottins, og því eigum vér alls ekki að loka
eyrum né augum, þegar oss er bent á gallana og fáum að vita,
hverjir þeir eru; af slíkum bendingum eigum vér einnig að læra.
Á síðasta stjórnartundi kom oss undirrrituðum því saman
um að snúa oss til yðar og biðja yður, herra biskup, um
nánari upplýsingar þessu viðvikjandi oss til leiðbeiningar.
Reykjavík 28. júlí 1915.
Með mikilli virðingu.
í stjórn K. F. U. M.:
Bjarni Jónsson. K. Zimsen. P. Þ. J. Gunnarsson.
Haraldur Sigurðsson. Sigurjón Jónsson.
Guðm. Ásijörnsson. Sigurbj. Þorkelsson.