Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Side 11

Nýtt kirkjublað - 01.09.1915, Side 11
NÝTT KIRKJUBLAÐ 203 vill heldur eigi ómælt hafa þetta i greininni 15. júli, að bet- ur megi vinna, og hetur þurfi að vinna en gjört hefir verið í K. F. U. M. Ný stefna, á hverju svæði sem er, lifir beint á því að hún þykist taka hinni gömlu fram. Og brýningin var til hennar í N. Kbl., að sýna það í verki. Sú ásökun var borin fram á synodus 1913, að nýja stefnan vildi ekki gefa sig að verklegri kristilegri starfsemi. Hefi eg fyrir mér „Bjarma“ 1. ágúst 1913, að það sé „áreið- anlegt að síðan nýja stefnan komst í algleyming í guðfræðis- deildinni hafa námsmenn hennar dregið sig alveg í hlé frá sunnudagaskólanum og öðru kristindómsstarfi í Reykjavík“. Mér rann því í skap á synodus í ár, er það var borið fram ómótmælt, að guðfræðisnemendur háskólans hefðu siðastliðinn vetur verið gjörðir afturreka, er þeir buðu fram starf sitt í K. F. U. M. Skýringin á þessu kom svo í fundarskýrslunni í Bjarma, að mönnum nýju stefnunnar sé ekki treystandi til að vinna með þeim sem eldri stefnunni fylgja. Þá kom greinin ’í N. Kbl. 15. júlí um stefnumuninn, með þeirri ályktun, að hvor slefnan fyrir sig verði að starfa frjáls og sjálfstæð. Hygg eg enn að svo færi bezt, en heyri utan að mér van- traust á því, að ráðandi menn í K. F. U. M. mundu láta hús sitt falt til þeirra nota. Það skil eg ekki, ef ú reyndi. Hitt skil eg fremur, að þeir hafni samvinnu, því nánara er það, en að nota sömu stofu til skiftis. En ráðandi menn hinnar eldri stefnu geta eigi hvort- tveggja í senn: ámælt háskólamönnum fyrir samvinnuleysi, og varnað þeim samvinnunnar er fram er boðin. „Málefnin og ekki mennirnir" er þrásinnis viðkvæðið, en í lífinu er það oftast nær öfugt, sem er ofur-skiljanlegt. Og líti eg á mennina, sem hér yrðu í fylkingarbrjósti hvoru megin, þá eru það hinir góðu samverkamenn N. Kbls., sem nú, sem oftar áður, eiga mest í blaðinu, upp úr synod- ushaldi, þeir síra Bjarni prestur i Reykjavík og dósent síra Sigurður Sívertsen, Á eg bágt með að trúa því, að sam-

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.