Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1941, Qupperneq 9
Tímarit iðnaðarmanna 6. XIV. 1941
Lög um iðnlánasjóð.
Iðnlánasjóður var stofnaður með lögum 9.
jan. 1935 og hefir ríkissjóður lagt honum ár-
lega íil 25 þús. kr., nema 2 ár, sem hann fékk
aðeins 22’/2 þús. kr. Um síðustu áramót var
stofnfé sjóðsins orðið rúmar 160 þús. kr. og
hefir sú upphæð verið lánuð út til ýmiskonar
iðnaðarstarfsemi í landinu.
A iðnþingi 1939 var því hreyft, að nauðsyn
bæri lil að fá Iðnlánasjóð efldan með einhverj-
um ráðum og nefnd kosin til þess að athuga
það mál og gera tillögur um það.
Umsjónarmaður með Iðnlánasjóði hefir frá
þvi fyrsta verið Elías Halldórsson, sem einnig
sér um Fiskiveiðasjóð fyrir Útvegsbankann. A
öndverðum siðasta þingtíma benti hann á mögu-
leika fyrir því að fá aukið framlag úr ríkis-
sjóði til sjóðsins og lögum hans dálítið bi-eytt
honum lil eflingar. Nefnd sú, sem áður er sagt
frá, féllst á það sem hann, stjórn Landssam-
bandsins og stjórn Félags íslenzkra iðnrekenda
töldu rétt að leggja fyrir siðasta Alþingi í þessu
efni. Varð það til þess, að stjórnir þessara
tveggja félaga skrifuðu iðnaðarnefnd neðri
deildar Alþingis og báðu liana að bera fram á
þinginu tvö lagafrumvörp. Annað um breytingu
á lögum sjóðsins, þar sem ákveðið var m. a.
að ríkissjóður legði sjóðnum árlega 40 þús. kr.
og lionum yrði sett sérstök 3ja manna stjórn
af ráðherra, og skjddi stjórn Landssambands
Iðnaðarmanna og stjórn Félags íslenzkra iðn-
rekenda tilnefna sinn manninn hvort. Hitl
frumvarpið var um iðnlánasjóðsgjald, sem félli
til sjóðsins árlega auk ríkissjóðsframlagsins.
Átti að afla þess þannig:
a. að af öllum innfluttum iðnaðarvörum, öðr-
um en matvælum, eldsneyti og ljósmeti, yrði
greitt V-2.% af innkaupsverði varanna,
b. og að öll iðnaðar- og iðjufyrirtæki greiddu
3/i % af öllum greidum vinnulaunum við
fyrirtækið.
Með þessu ákvæði vildu stjórnir félaganna
sýna, „að iðnaðar- og iðjufyrirtæki í landinu
vilji sjálf leggja eitthvað af mörkum lil styrkt-
ar sjálfum sér, en lieimti ekki alll af öðrum, '
eins og það var orðað í greinargerð fyrir fritin-
varpi þessu.
Þessi efling Iðnlánasjóðsins gekk mjög greið-
lega gegnum Alþingi. Sú breyting var þó gerð, að
iðnlánasjóðsgjaldið var fellt niður, en í lögum
sjóðsins álíveðið að ríkissjóður iskuli leggja
honum 65 þús. kr. á ári og sjóðnum lieimilað
að gefa út handhafavaxtabréf, er nemi að nafn-
verði allt að tvöföldum þeim höfuðstól. sem
hann liefir á liverjum tíma. Bréf þessi eiga að
tryggjast með höfuðstól sjóðsins og ábvrgð
ríkissjóðs.
Þessi lausn málsins var aðstandendum þess
fullt svo kær. Má því segja að Alþingi liafi farizt
vel til iðnaðarins í þessu máli. Með tilliti til þess
hve greiðlega hefir gengið að selja vaxtabréf
ríkisins undanfarið, má telja víst að sjóðurinn
geti lánað út lil iðnaðarins allverulega uppliæð
seint á þessu ári og þar á eftir, allt að 200 þús.
kr. árlega. Verður að telja þetta mikið hagræði
fyrir iðnaðinn í landinu, og ber honum að sjálf-
sögðu að nota þessa bættu aðstöðu til rýmilegs
lánsfjár, á sem hagfelldastan hátt fvrir þjóðar-
heildina.
Það er naumast hægt að ljúka svo frásögn um
þessa langþráðu eflingu Iðnlánasjóðs, að ekki
verði getið um hjáróma rödd, sem kom fram í
Morgunblaðinu frá einum iðjuhöldi í höfuð-
staðnum. Hann hyggur ýmislegt vera meira að-
kallandi og iðnaðinum nauðsynlegra en efling
Iðnlánasjóðs. Hann fordæmir þó sérstaklega að-
ferðina, sem nota átti, nýja skatta og nýjar á-
lögur. Hann feitletrar það sem ósvífni, að leggja
eigi nýlt gjakl ó hvert einasla iðju- og iðnaðar-
fyrirtæki í landinu. Sennilega greiðir þessi iðju-
höldur um 60 þús. kr. á ári i laun, að hans eigin
launum meðtöldum. Eftir lagafrumv. hefði
hann orðið að greiða 150 kr. á ári í iðnlánasjóðs-
gjald. Fyrirtæki, sem greiddi 100 þús. kr. í
vinnulaun, hefði orðið að fórna 250 kr. Lítið
verkstæði, sem grciddi 10 Jjús. kr. vinnulaun,
hefði orðið að sjá af 25 krónum. Þessum upp-
hæðum átti svo að safna saman til þess að
mynda nauðsynlega lánsstofnun fyrir sjálfan
iðnaðinn. Þólt þessi maður sé svo vel settur, að
hafa nægilegt fé til sinnar starfsemi, eru þó
margir, sem vantar það eða verða að nota of
91