Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1962, Side 8
Hið nýja hús Iðnaðarbankans í Lækjargötu io er 5
hæðir og kjallari. Flatarmál þess er 347 fermetrar og
rúmmál um 6600 rúmmetrar. Bankinn notar til starf-
semi sinnar götuhæð og 2. hæð, og á 5. hæð er eldhús
og matstofa fyrir starfsfólk. Afgreiðslusalur er á götu-
hæð, en á 2. hæð er salur fyrir bókhald, biðstofa, skrif-
stofa bankastjóra og aðalbókara auk fundarherbergis
bankaráðs.
Teikningar af húsinu gerði Halldór H. Jónsson.
Byggingameistari var Jón Bergsteinsson, múrarameist-
ari. Vcrkfræðistörf, tcikningar og hitalögn, vatns- og
skolplögn, sem unnar voru af Sighvati Einarssyni &
Co., gerði Almenna byggingarfélagið h.f. Teikningar
af raf- og símalögnum gerði Jón Á. Bjarnason, verk-
fræðingur. Raflagnir vann firmað Johan Rönning h.f.
Teikningar af innréttingum í afgreiðslunni og skrifstof-
um á 2. hæð, svo og húsgögnum, gerði Jón Karlsson,
arkitekt. Viðarklæðning á veggjum er úr palisandervið
og einnig húsgögn. Vinnuborð eru klædd að ofan
gráum plastplötum. Viðarklæðning í loftum er úr
greni. Jónas Sólmundsson, húsgagnasmíðameistari,
hafði umsjón með smíði innréttinga og húsgagna, og
var mestur hluti vinnu við það unnin á vcrkstæði hans.
Málmglugga og málmskilrúm smíðaði h.f. Málmglugg-
ar í Hafnarfirði og önnuðust þeir uppsetningu þeirra.
Gólf í anddyri og framan afgreiðsluborðs í af-
greiðslusal eru klædd slípuðum grásteini, sem var sag-
aður og unninn af Ársæli Magnússyni. Innan af-
greiðsluborðs í afgreiðslusal eru gólf teppalögð, enn-
fremur skrifstofur á 2. hæð. Teppin eru ofin hjá Ála-
fossi h.f., en Teppi h.f. lagði þau.
Málningu annaðist Einar Gíslason, málarameistari,
en veggfóðrun og dúklagningu Ágúst Markússon, vegg-
fóðrarameistari.
Rafmagnslampar og ljósatæki eru smíðuð af Stál-
umbúðum h.f.
Lyftan í húsinu er af þýzkri gerð, keypt fyrir milli-
göngu Bræðranna Ormsson h.f. og sett upp af þeim.
Skilti bankans er smíðað af Neon rafljósagerðinni í
Reykjavík.
TlMARIT IÐNAÐARMANNA