Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1962, Qupperneq 11
miklum myndarbrag og var Svíum, sem fyrir því stóðu,
til mikils sóma.
B. H.
Á Norræna iðnþinginu var eftirfarandi samþykkt
gerð:
Iðnsambönd Danmerkur, Finnlands, íslands, Nor-
egs og Svíþjóðar hafa rætt um aðbúnað og vaxtamögu-
leika iðnaðarins á Norðurlöndum með hliðsjón af
þróun markaðsmála á þingi í Saltsjöbaden dagana
20.-21. ágúst 1962.
1. Það cr krafa iðnsambandanna, að atvinnu-,
skatta- og efnahagsmálastefnu landanna verði þannig
háttað, að smáiðnaður fái þrifist. Þess vegna verða
lög og reglugerðir, sem áhrif hafa á atvinnulífið og
ákvarða aðstöðu atvinnufyrirtækja, að búa öllum fyr-
irtækjum án tillits til rekstrarforms jafna samkeppnis-
aðstöðu, m. a. með jöfnuði í sköttum.
2. Fjárhagsleg afkoma iðnfyrirtækja og lánamögu-
leikar hljóta að hafa úrslita þýðingu í þvi, hvort iðn-
fyrirtæki geti breytt og endurskipulagt starfsemi sína
mcð hliðsjón af stærri markaði. Ríkisstjórnir og yfir-
völd verða að gefa þessum vandamálum meiri gaum
en verið hcfur. Við skipulagningu borga og þéttbýlis
vcrður að taka mcira tillit til þarfa iðnaðarins og
vaxtamöguleika.
Þcgar höfð er í huga þróun markaðsmála í Evrópu,
má ljóst vera, að við endurskoðun atvinnumálalög-
gjafar Norðurlanda verður að taka tillit til þeirrar
þróunar, scm á scr stað í þeirri löggjöf í öðrum löndum
Vestur-Evrópu.
Leiðrétting
1 sidasta befti misrituðust nöfnin undir þessari mynd. Rétt er
rödin þan/tig talið frá vinslri: Rafn Pétursson, skipasm.m., Flat-
eyri, lngi Svéinsson, vélsm., Sauðárkróki, Hákon Pálsson, vélv.m.,
Sauðárkróki og Magnús Konráðsson, rafv.m., Flateyri.
% naðalltús oið CjieHíás
Landssamband iðnaðarmanna og Félag ísl. iðnrck-
enda héldu saman fund í Iðnskólanum 17. maí s.l. til
þess að fjalla um framkomnar tillögur skipulagsdeildar
Reykjavíkur um iðnaðarsvæðið við Grensásveg. Á
fundinum mættu 70 iðnaðarmenn og iðnrekendur.
Fundarstjóri var Guðmundur Halldórsson, forseti
Landssambands iðnaðarmanna, en Sveinn B. Valfells,
formaður FÍI greindi frá aðdraganda málsins og Stefán
Ólafsson, vcrkfræðingur, gerði grein fyrir tæknilegum
atriðum varðandi byggingar á svæðinu. Nokkrar um-
ræður urðu um málið.
Samþykkt var tillaga um að kjósa 7 manna nefnd til
þess að undirbúa stofnun hlutafélags um bygginga-
framkvæmdir. I nefndina voru kosnir: Sveinn B. Val-
fells, Guðmundur Halldórsson, Bragi Hannesson,
Helgi Ólafsson, Tómas Vigfússon, Sveinn K. Sveins-
son og Þórir Jónsson.
Af hálfu þessarar nefndar var boðað til stofnfundar
hlutafélags um byggingaframkvæmdir 15. ágúst s.l. Á
fundinum var gengið frá stofnsamningi og gerðust 34
aðilar stofnendur hlutafélags, sem hlaut nafnið Iðn-
garðar h.f. Hlutafé félagsins er 4 millj. kr. til að byrja
með, en ætlunin er að auka það síðar, þegar gengið
hefur verið frá samningum við borgaryfirvöldin í
Rcykjavík tim áðurnefndar lóðir. Landssambandi iðn-
aðarmanna og Félagi ísl. iðnrekenda var falið að afla
frekara hlutafjár með útboði innan samtakanna og
geta meðlimir skráð sig fyrir hlutafé í skrifstofum
þcirra.
I stjórn Iðngarða h.f. voru kosnir: Sveinn B. Val-
fells, formaður, Guðmundur Halldórsson, varaformað-
ur, Þórir Jónsson, ritari, Sveinn K. Sveinsson, gjald-
kcri, Tómas Vigfússon, vararitari. Varamenn í stjórn
voru kjörnir: Gissur Símonarson og Ásgeir Bjarnason.
Skrifstofa Landssambandsins flutt
Landssambandið flutti skrifstofur sínar í miðjum
október í hið nýja hús Iðnaðarbankans, Lækjargötu 10,
en sambandið keypti 4. hæð hússins ásamt Félagi ísl.
iðnrekenda.
Ekki er að fullu lokið við frágang á skrifstofu
Landssambandsins og verður því látið bíða að lýsa
hcnni.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
139