Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1962, Síða 19
IN MEMORIAM
J. Barner - Rasmussen
DIREKTÖR
Með ágúst- og september heftum norræna iðnskóla-
tímarita berast þær fregnir, að direktör ]. Barner Ras-
mussen, stjórnandi Det tekniske Selskabs skoler í
Kaupmannahöfn hafi látizt hinn 27. júní sl. J. Barner
Rasmussen var mörgum íslendingum að góðu kunnur,
sérstaklega þeim, sem kynnzt hafa fræðslumálum iðn-
aðarmanna á Norðurlöndum, eða stundað nám við
einhvern þeirra fagskóla er féllu undir yfirstjórn hans
í Kaupmannahöfn. Hann var rúmlega 70 ára er hami
lézt, hafði verið kennari frá 1919, forstöðumaður iðn-
skóla í Tástrup frá 1920 og Det tekniske Selskabs skol-
er frá 1943.
Haonn samdi ýmsar kennslubækur fyrir iðnskóla,
var ritstjóri Teknisk Skoletidende frá 1927, er hann tók
við ritstjórn af föður sínum. Hann var virkur þátttak-
andi í samtökum tekniskra skóla á Norðurlöndum,
fylgdist mjög vel með öllu, sem gerðist í þeim málum
og var starfsmaður mikill, skemmtilegur ræðumaður og
vinmargur. Honum var sýndur margskonar sómi fyrir
störf og stuðning við fræðslumál iðnaðarmanna, bæði
af löndum hans og öðrum, enda verður hans lengi
minnst með þakklæti og virðingu meðal þeirra, sem
fjalla um iðnaðar- og fræðslumál á Norðurlöndum.
Þór Sandholt.
Leiðrétting
í grein Guðmundar H. Guðmundssonar urn Iðnað-
arbankann í Tímaritinu nr. 2. 1962, bls. 61, kom villa
inn í síðustu málsgrein. Rétt hljóðar grcinin þannig:
Nokkru eftir að bankinn tók til starfa fluttist Iðnlána-
sjóður úr Útvegsbankanum í Iðnaðarbankann eins
og gert er ráð fyrir í lögum um bankann frá 19. des.
1951, og er hann rekinn sem sérstök deild innan bank-
ans.
Gleðileg jól! Gott og farsœlt nýár!
Þökk fyrir viðshiplin á liðna árinu.
Bókaútg. Menningarsj. og Þjóðv.fél., Hverfisg. 21
Crleðileg jól! Gott og farsœlt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna áirinu.
Sementsverksmiðja ríkisins
Gleðileg jól! Gott og farsœlt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
Orka hf., Laugavegi 178
Gleðileg jól! Gott og farscelt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
Rafgeymaverksmiðjan Pólar hf., Einholti 6
Gleðileg jól! Crott og farsælt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
Stálsmiðjan hf.
Gleðileg jól! Gott og farsœlt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna áirinu.
Nathan & Olsen hf., Vesturgötu 2
Gleðileg jól! Gott og farsælt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin ú liðna árinu.
Fálkinn hf., Laugavegi 24
Gleðileg jól! Gott og farsælt nýár!
Þöhk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
Almenna Byggingafélagið hf., Borgartúni 7
Gleðileg jól! Gott og farsælt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
Landssmiðjan, Sölvhólsgötu
Gleðileg jól! Gott. og farsælt nýár!
Þöhk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
Timburverzlunin Völundur, Klapparstíg 1
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
147