NT - 15.12.1984, Page 22
15. desember 1984 22
íþróttir
Súper-
evrópu-
leikur
■ „Súperevrópuleikur“
í knattspyrnu verður 16.
janúar næstkomandi. Þá
mætast Evrópumeistarar
meistaraliða, Liverpool
frá Englandi og Evrópu-
meistarar bikarhafa, Ju-
ventus Tórínó frá Ítalíu.
Leikið verður í Tórínó
eða annarri ítalskri borg.
Knattspyrnusamband
Evrópu, UEFA, skýrði
frá þessu í gær. Samband-
ið hafði áður sagt að af
þessu yrði ekki, en sam-
komulag náðist loks við
liðin eftir að dregið hafði
verið í Evrópukeppnirnar
þrjár í gær. Leikinn verð-
ur einn leikur.
McEnroe enn
á toppnum
■ Bandaríkjamaðurinn
John IMcEnroe er enn á
toppnum í Grand-Prix
tenniskeppninni, þrátt
fyrir sigur Svíans Mats
Wilander á opna
ástralska meistaramótinu
um daginn.
Staðan er nú svona hjá
efstu mönnum:
John McEnroe (USA) 3,393 stig
Jimmy Connora (USA) 2,903 stig
Ivan Lendl (Tókkóslóvakiu)
2,714 stig
Mats Wilander (Sviþjód) 2,450
stig
Andreas Gomez (Ecuador) 2,222
stig
Joachim Nyström (Svíþjóð) 1,314
stig
Henrik Sundström (Svíþjód)
1,218 stig
Eliot Teltscher (USA) 1,213 stig
Andreas Jarryd (Svíþjóð) 1,205
stig
Tomas Smid (Tékkóslóvakiu)
1,156 stig
Eins og sjá má á þessari
upptalningu eru Svíar
geysisterkir í Tennis þrátt
fyrir að sá besti sé hættur
keppni, nefnilega hetjan
sjálf, Björn Borg.
■ Dorota Tlalka frá Póllandi vann í svigi kvenna í Madonna di Campiglio í heimsbikarkeppninni í gær. Hún er fyrsti Pólverjinn til
að sigra á móti í heimsbikarkeppninni í tólf ár. simamynd p0ifoio
Pólverji vann í heimsbikarkeppni í fyrsta sinn í 12 ár:
„Dreymdi fyrir þessu“
■ Dorota Tlalka frá Póllandi
braut blað í sögu pólskra
skíðaíþrótta í gærdag, er hún
sigraði í svigi kvenna í heims-
bikarkeppninni í alpagreinum
í Madonna di Campiglio á
Stærsta frjálsíþróttamót sögunnar innanhúss:
Þeir stóru
allir með?
„Bandaríkin og Sovétríkin senda góða
hópa“ - Stærstur hluti kostnaðar
greiddur
Ítalíu. Nú eru tólf ár liðin
síðan það gerðist síðast að
Pólverji sigraði í keppni í
heimsbikarnum.
Dorota Tlaka er 21 árs.
Hún og tvíburasystir hennar,
Malgorzat Tlalka hafa sótt
mjög fram á við í skíðaheimin-
um síðustu þrjú keppnistíma-
bil, og nú náði Dorota tak-
markinu. Hún hefur einu sinni
orðið önnur í heimsbikar-
keppni, í Osló í fyrra, en systir
hennar sem varð 12. í gær,
hefur tvisvar orðið önnur.
„Mig dreymdi fyrir þessu í
nótt,“ sagði Dorota eftir sigur-
inn, en hún skíðaði mjög vel í
keppninni í báðum ferðum í
mikilli snjókomu. „Undir nýja
snjónum var mjög hörð braut
og þær aðstæður eiga best við
mig,“ sagði hún.
Dorota var önnur á eftir
Perrine Pelen frá Frakklandi
eftir fyrri ferðina, en tók for-
ystunaeftirsíðariferð. Brigitte
Gadient frá Sviss varð önnur,
Christelle Guignard frá Frakk-
landi þriðja og Pelen sem gekk
ekki vel í síðari ferðinni varð
fjórða. Erika Hess heimsbik-
armeistari í fyrra féll úr
keppni.
Það var síðast árið 1972 að
Pólverji sigraði í keppni í
heimsbikarnum, þá vann
Andrzej Bachleda í svigi karla.
Tvö lið
ámóti
Zmuda
■ Dómstóll Knattspyrnu-
sambands Ítalíu hefur verið
beðinn að úrskurða um það
hvort Pólverjinn Vladislav
Zmuda má ganga til liðs við
botnliðið Cremonense í fyrstu
deildinni ítölsku, að því er
Knattspyrnusambandið þar lét
frá sér fara í fyrradag.
Hinn þrítugi bakvörður,
Zmuda, sem lék með landsliði
Póllands gegn Ítalíu í vináttu-
leik í síðustu viku, má ekki
ganga til liðs við Cremoriense
vegna reglna sem gengu í gildi
síðastliðið sumar, um að eng-
inn erlendur knattspyrnumað-
ur mætti koma á samning á
Ítalíu frá því í júní 1984 til júní
1986.
En Zmuda lék með Verona
í ítölsku fyrstu deildinni árið
1982 og er rétt nýbúinn að
senda inn beiðni til Ítalíu um
að fá leyfi til að leika með New
York Cosmos í Bandaríkjun-
um. Því var Zmuda skráður
leikmaður á Ítalíu þegar regl-
urnar gengu í gildi.
Stjórn Knattspyrnusam-
Ibands Ítalíu leyfði á dögunum
lað Zmuda fengi að ganga til
lliðs við Cremonense, að því
þilskildu að öll fyrstudeildarlið-
mundu samþykkja. Það
Igerðu þau öll nema Ascoli og
JNapólí, sem sögðust ekki sam-
Iþykkja neina undantekningu á
Ireglunum vegna þess að þau
Ihefðu tapað talsverðum fjár-
Imunum beint vegna þeirra.
Búist er við niðurstöðu
|dómsins fyrir jól.
■ Sjötíu og einu landi hefur
verið boðin fjárhagshjálp til að
vera með á „stærsta innan-
húsfrj álsíþróttamóti sögunn-
ar heimssleikunum innanhúss,
sem halda á í París í næsta
mánuði. Hluti kostnaðarkepp-
enda verður greiddur af skipu-
leggjendum mótsins að því er
Primo Nebiolo formaður Al-
þjóðafrjálsíþróttasambands-
ins, IAAF, sagði.
Nebiolo sagði að þessi hluti
kostnaðar sem greiddur yrði
hefði komið til vegna aukinnar
innkomu vegna sjónvarps-
sendinga og auglýsinga, og
kostnaðurinn yrði greiddur án
þess að hætta fjárhag landsins
sem skipuleggur keppnina.
Sambandið hefur boðið að
greiða ferða- og uppihalds-
kostnað 347 íþróttamanna og
92 fararstjóra og aðstoðar-
manna frá 71 landi.
Nær fjörutíu lönd hafa þegar
lýst því yfir að þau mæti til
leiks í Bergy-íþróttahöllina í
París 18. og 19. janúar, að
meðtöldum nokkrum sem
greiða kostnað sinn sjálf.
Bandaríkin og Kanada mæta
með fleiri þátttakendur en
mælt var með, Bandaríkin með
30 (22 voru á kvótanum) og
Kanada með 13 (9 á kvóta).
Önnur lönd mæta með færri en
kvótinn segir til um, eins og
A-Þýskaland sem sendir 5
íþróttamenn (17 á kvóta) og
Bretland sem sendir 9 (17 á
kvóta)
Nebiolo hló þegar hann var
spurður um hvers vegna Aust-
ur-Þjóðverjar sendu svo fáa,
og sagði: „Þeir senda bara
sigurvegara." Hann sagðist
ekki vita hvaða íþróttamenn
kæmu frá hverju landi, en
bæði Bandaríkin og Sovétríkin
mundu senda, „góða hópa“.
Vestur-Þjóðverjar hafa þeg-
ar sagt frá því að í hópi þeirra
verði tveir gullverðlaunahafar
frá ólympíuleikunum, Diet-
mar Mögenburg hástökkvari
og Claudia Losch kúluvarpari.
Nebiolo sagði að bandaríska
borgin Indianapolis hefði sótt
mjög að fá að halda næstu
heimsleika innanhúss, en
íþróttahöllin þar rúmar 62 þús-
und áhorfendur.
Dregið í 8 iiða úrslit Evrópukeppnanna:
Aftur keppir
Kalli heima
- Inter gegn Köln - Tottenham fékk
Real Madrid - Bayern gegn Roma
■ í gær var dregið í 8 liða
úrslit Evrópukeppnanna í
knattspyrnu. Tvennt vakti
mesta athygli í þessum drætti,
annars vegar að Karl-Heinz
Rummenigge fer aftur til Þýska-
lands með liði sínu Inter Mílanó
í 8 liða úrslitunum, og hitt að
Real Madrid, Anderlechtban-
arnir í síðustu umferð UEFA-
keppninnar drógust gegn Tott-
enham, en Tottenham lék ein-
mitt til úrslita gegn Anderlecht
í UEFA-keppninni í fyrra og
vann.
í Evrópukeppni meistaraliða
virðast línur nokkuð skýrar.
Liverpool leikur gegn Austria
Vín frá Austurríki og Juventus
gegn Sparta Prag. Bordeaux
mætir Dnepopetrovsk frá
Sovétríkjunum og er það
tvísýnt. Svíarnir í Gautaborg
eiga góða möguleika, leikagegn
Panathnaikos frá Grikklandi.
Stórleikur Evrópukeppni
bikarhafa er án efa viðureign
Bayern Múnchen og ítalska liðs-
ins Roma. Everton á góða
möguleika gegn Hollendingun-
um Fortuna Sittard.
Auk áðurnefndra leikja í
UEFA-keppninni vekur áhuga
viðureign Manchester United
gegn ungverska toppliðinu Ví-
deótón. Austantjaldsliðin Sar-
ajevo og Dynamo Minsk
mætast. Eins og áður var nefnt
fer Kalli Rummenigge aftur
heim, Inter sló HSV út í 16 liða
úrslitum.
Þessi lið mætast:
■ Kalli Rummenigge fer aftur heim til V-Þýskalands að keppa
með Inter Mflanó í Evrópukeppninni: Nú fer hann til Kölnar, en
síðast sló Inter HSV út. Það var að mildu leyti Kalla að þakka.
Austría Vín Austurríki - Liverpool Englandi,
Juventus Ítalíu - Sparta Prag Tókkóslóvakíu,
Bordeauz Frakklandi - Dnepropetrovsk Sovót,
Gautaborg Svíþjód - Panathnaikos Grikklandi.
Bikarkeppnin:
Everton Englandi - Fortuna Sittard Hollandi,
Larissa Grikklandi - Dynamó Moskva Sovót,
Bayern Miinchen V-Þýskal. - Roma Ítalíu,
Dynamo Dresden A-Þýskalandi - Rapid Vín Austurriki.
UEFA-keppnin:
Man.United Englandi - Videótón Ungverjalandi,
Zelj. Sarajevo Júgóslavíu - Dynamo Minsk Sovét,
Inter Mílanó Ítalíu - Köln V-Þýskalandi,
Tottenham Englandi - Real Madrid Spóni.