Vikan - 27.03.1952, Side 1
Nr. 13, 27. marz 1952
VIKAN
Verð kr. 2,50
16 síður
ÞJOÐMIIM JASAFNSHLSIÐ
Föstudaginn 22. febr. afhenti bygg-
ingarnefnd menntamálaráðherra Þjóð-
minjasafnshúsið með bréfi. Þá hafði
bygging þess staðið yfir í 6 ár. Fyrst
var til þess veitt fé á fjárlögum 1945,
að upphæð 3 millj. Strax vorið 1946
var byrjað á grunninum. Byggingin
kostaði alls 7.238.582.96 krónur.
Byggingarnefnd skipuðu: Alexander
Jóhannesson, formaður, Matthías Þórð-
arson, Valtýr Stefánsson, Kristján
Eldjárn og Kristinn E. Andrésson.
Ráðnir voru tveir arkitektar, Sig-
urður Guðmundsson og Eiríkur Einars-
son. Þeir gerðu uppdrætti að bygging-
unni. Byggingarmeistarar voru Sig-
urður Jónsson múrarameistari og
Snorri Halldórsson trésmíðameistari.
Helgi Guðmundsson pípulagningameist-
ari annaðist miðstöðvarlögn o. fl. Gísli
Halldórsson arkitekt útvegaði geisla-
hitunartæki. Jón Ólafsson annaðist raf-
lagnir. Ösvaldur Knudsen og Daníel
Þorkelsson máluðu húsið. Dúka og kork
lagði Valur Einarsson. Nýjablikksmiðj-
an sá um að fella kopar á þak.
Paxspjald ( ?) úr rostungstönn. Tæplega eldri en
frá lokum 14. aldar. Efst er Guð Faðir, í miðju
Kristur á krossi, utan við boðun Maríu, fæðing
Krists, krossburðir hans og upprisa. Paxspjöld
(pax=friður) voru látnar ganga milli kirkjufólks,
sem kyssti þær.
Þjóðminjasafnshúsið er með föngu-
legustu húsum þessa lands. Verður ekki
annað sagt en þjóðminjar okkar séu
nú komnir heilir í höfn eftir hrakn-
inginn. Oftsinnis hafa þær búið við
háska, svo sem brottflutning úr landi,
og þegar Landsbankahúsið brann 1915,
voru þær nýfluttar þaðan og upp á háa-
loft í Safnahúsinu. Og þar má segja
þær hafi alla tíð legið undir eldhættu,
því að engin leið hefði verið að bjarga
þeim, ef eldur hefði komið upp. Nú eru
þær komnar í örugga geymslu og ber
landslýð að fagna. Og ef til vill verður
það bezt gert með því að skoða þær sem
grandgæfilegast. Má margt af því læra
um líf og hætti forfeðranna allt frá
fyrstu tíð. Skemmtilegt og lærdómsríkt
er til dæmis að virða fyrir sér fornfáleg
sverð, sem ætla má að afreksmenn fyrri
tíðar hafi sveiflað yfir höfuðssvörðum
hvers annars. Sjón er sögu ríkari. —
Ein deild safnsins er nú þegar fullbúin.
Það er fornöldin. Kristján Eldjárn þjóð-
minjavörður vinnur að uppsetningu
safnsins, og verður ein deild opnuð af
annarri eftir því sem tími vinnst til.