Vikan


Vikan - 21.08.1952, Side 7

Vikan - 21.08.1952, Side 7
VIKAN, nr. 32, 1952 7 Það er enginn leikur að fá kvef — ÞEGAR MAÐUR VILL FYRIR ALLA MUIMI FÁ KVEF EFTIR LISU MDYNIHAN YIÐ ERUM KOMIN,“ sagði ökumaðurinn glaðlega, „hendið farangrinum ykkar hérna.“ Við spjöllum við vingjarnlegan lækni. „Hvenær varstu siðast kvefuð ? Hefirðu nokkurn annan sjúkdóm? Viltu snýta þér? Þakka þér fyrir.“ Ráðskonan gefur okkur steiktan héra og ís og virðir okkur vandlega fyrir sér. Við erum 19 í stað 24, eins og venja er, en ekkert okkar hnerrar. Við minnsta merki um kvef væri söku- dólgurinn sendur til baka með fyrstu lest. Nú er okkur fylgt á heimili okkar næstu 10 dagana. Ég fæ hús nr. 2A með skozkri stúlku, sem komin er hingað til að hvíla sig á skrif- stofustörfunum. Við erum 81. sjálfboðaliðarnir, sem búa þar síðan rannsóknirnar hófust fyrir 4 árum. Við höfum tvö svefnherbergi, stofu og eldhús — maturinn kemur í sótthreinsuðum hita- dúnkum. Við eigum rétt á % potti af bjór, fáum dagblöð og tímarit, megum leika golf, í bókasafninu eru ágætar bækur og við megum meira að segja ganga okkur til skemmtunar ef við komum aldrei nærri neinum öðrum en sambýling okkar. Við fáum þrjú pund á dag fyrir að fá kvef og get- um næstum eytt tímanum að eigin vild. Það er engin tilviljun, að hingað hefir komið íólk í brúðkaupsferðum, þreyttir nemendur, leið- ar húsmæður og jafnvel rithöfundar, sem hafa verið að leita sér að starfsfriði. Þó ríkir þarna ekki alger friður . . . síminn hringir: „Viltu koma undir eins í hús nr. 1 og láta hreinsa á þér nefið". Frá fyrsta deginum erum við undir nákvæmu eftirliti: hitinn er mæld- ur tvisvar á dag, hvítklæddur læknir heimsækir okkur á hverjum degi og við erum gegnumlýst, svo ekkert alvarlegt hljótist af tilvonandi kvefi. Daglega skrifum við upp allt, sem geti bent til þess að við séum að fá kvef. Á þriðja degi kemur Dr. Porterfield vopnaður dularfullum bakka með glösum á. Eftir þessu höfðum við beðið. Andstyggilegum kvefvirusi er sleppt úr pípu inn í nefið á okkur og við liggj- um kyrr og störum upp í loftið í 10 mínútur til að gefa honum tíma til að koma sér þægilega fyrir. „Þið megið ekki snýta ykkur í hálftima“, og dr. Porterfield yfirgefur okkur vongóður. Upp frá þessu reynum við að auka höfuðverk- inn, hitann, hnerrann og hóstann. Við' sitjum í dragsúg, viðrum ekki fötin okkar o. s. frv. og það er alltaf verið að hringja til að spyrja hvern- ig gangi. Tilgangur þessara tilrauna er að halda lífi í vírusinum, sem notaður er til rannsókna. Það er hægt að geyma hann frosinn í flöskum í þrjú ár, en eftir þann tíma eyðileggst hann, ef hann er ekki endurnýjaður í mannslíkamanum. Eina dýrið, sem getur geymt hann, er simpansinn — sem fær andstyggileg kvef eins og mennirnir — en hann er of dýrt tilraunadýr. Á fimmta degi líður mér betur en þegar ég kom. Yfirleitt er þessi hópur mjög lélegur, einn eða tveir lítilsháttar sárir hálsar, en ekki eitt einasta almennilegt kvef. Elzti sjálfboðaliðinn, frú Rósa, sem er 54 ára gömul, verður fyrst til að gera einhverjar ráðstafanir. Hún freistar hamingjunnar með því að sitja í blautum fötum heima hjá sér í stað þess að njóta útiloftsins. Á 7. degi er hún eins hraust og kát og hún var í upphafi. Áttundi dagurinn — og ég get ekki stært mig af öðru en smáhnerra, höfuðverk í nokkrar mín- útur og örlítið sárum hálsi; vinkonu minni tókst að hósta veiklulega. Við komum okkur saman um að þetta gæti ekki gengið . . . Næsta morgun var þoka og ég gekk illa klædd niður að ánni. Grasið var vott af dögginni og vatnið svo kalt og óhugnanlegt að ég næstum sneri við. En vinkona mín var með mér, til að gæta þess, að ég svikist ekki um. Ég lagðist á hnén í ískalt vatnið, í sokkum, skóm og síðbuxum. Þarna lá ég á hnjánum i eina mín- útu og sneri svo aftur heim í húsið okkar, sem nú var rakt af þokulofti —• við höfðum skilið alla glugga og hurðir eftir opnar. Ég borðaði góðan morgunverð (engin ástæða til að taka hlutverk meinlætismannsins of alvarlega) og sat kyrr i blautum fötunum í klukkutíma á eftir. Mér leið mjög illa, skalf dálítið og svo — a—tishú. Aðrir höfðu reynt að standa holdvotir í drag- súgnum frammi á gangi, hlaupið yfir holt og móa í ausandi rigningu eða setið þolinmóðir í ísköldu baði upp að höku -—- án þess að hafa meira upp úr því en smáhósta. Ef til vill mundum við (vinkona mín vonaði að fá sinn skerf af mínu kvefi) nú geta sannað, að hrollur gæti orðið að kvefi. Þar sem við vorum svona vongóðar, var ekki nema eðlilegt, að ég skipti um föt eftir klukku- tíma. Nú gæti ég alveg eins komið mér þægilega fyrir og beðið eftir því að kvefið versnaði. Við biðum allan daginn. Ekkert gerðist. Seint um kvöldið fórum við í aðra gönguferð og fengum jafnvel rigningu. En hvernig sem við fórum að, kom ekki annar hnerri. Við fylltumst gremju við að hugsa um allt kvefið, sem hafði þjáð okkur um æfina, þó við þá gerðum allt sem í okkar valdi stóð, til að losna við það. Hræðilegar kvefpestir höfðu lagt okkur í einelti. Við mintumst líka æskudaganna, þegar við vorum reknar upp úr sjónum með þessum orðum: „Komdu strax upp úr vatninu, annars færðu kvef“. En sú vitleysa! Allur hópurinn er orðinn niðurdreginn. „Ég gerði hvað ég gat,“ segjum við öll, og það hugg- ar okkur ekkert að heyra, að þetta sé ekkert óvenjulegt og að sjálfboðaliði nokkur, sem sé síkvefaður, hafi komið hér fimm sinnum án þess að fá kvef. Auðvitað eru dr. Sommerville og að- stoðarmenn hans vonsviknir, en þeir láta ekki á þvi bera og halda okkur að lokum kveðjusam- sæti. Frægur maður MAÐURINN á miðri mynd- inni hefur oft komist í amerísku blöðin. 1 ár komst hann líka í sæg af útlendum blöðum, en til þess þarf auðvit- að töluverða frægð, eins og al- kunnugt er. Svo hafa líka kunn- ir rithöfundar tekið sig til og skrifað um þennan mann, þar á meðal reyfarasmiðurinn Earl Stanley Gardner, sem skrifaði um hann tvær greinar og merki- legar fyrir myndaritið Look. Og hversvegna eru rithöfund- ar og fréttamenn að keppast við að skrifa um þennan mann og gera hann frægan í augum fólksins? Svar: Willie Sutton — því það heitir hann —- hefur sýnt alveg óvenjulegan dugnað við að brjótast út úr bandarísk- um fangelsum. Hann hefur sennilegast brot- ist út úr fleiri fangelsum en nokkur núlifandi þorpari. Og það fyndna er, að hann hefur síðustu árin nærri því eingöngu brotist út úr fangelsum, sem allra handa sérfræðingar voru búnir að lýsa yfir, að væri gersamlega ómögulegt að brjótast útúr. Það hafa verið settir sérstakir verðir til höfuðs Willie Sutton. Fangelsisstjórum þykir það leiðinlegt, þegar fanga tekst að brjótast út; það kemur óorði á fangelsið. En allt hefur komið fyrir ekki. Willie Sutton hefur litið sínum bamslegu augum í stálgrá augu fangavarðanna og sagt þeim í hreinskilni allan sannleikann: hann væri staðráðinn í að stinga af, strax og færi gæfist. Það versta er, segir lögreglan, að mað- urinn stendur alltaf við þetta. Hann býr yfir feykilegri þolinmæði. Hann bíður — stundum mánuðum saman — virðist ekk- ert aðhafast ólöglegt — og einn góðan veð- ur dag er fuglinn floginn! HANN byrjaði sem bankaræningi. Lög- reglan segir, að hann hafi verið sæmileg- asti bófi. En hann varð semsé ekkert sér- lega frægur fyrir það, heldur fyrst og fremst fyrir að strjúka. Á myndinni er lögreglan nýbúin að hafa hendur í hári hans. Þá var hann bú- inn að ganga laús í tvö ár. Hann skuld- ar ríkinu svo mörg fangelsisár, að hann gæti ekki afplánað sekt sína, þó hann lifði í hundrað ár í viðbót. Og í þetta skipti, segja yfirvöldin, skal hann ekki sleppa. Og hverju svarar Willie Stutton, maður- inn, sem alltaf er að komast í blöðin? Hann horfir sínum barnslegu augum í stálgrá augu lögreglumannanna og segir: Einhverntíma og enn einu sinni á ég eft- ir að stinga ykkur af.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.