Vikan - 21.08.1952, Side 9
VIKAN, nr. 32, 1952
9
MAÐUR í FRÉTTUNUM!
RIDGWAY
Matthew b. ridg-
WAY hershöfðingi, yfirmað-
ur herafla A-bandalagsins,
er 57 ára gamall, þrígift-
ur atvinnuliermaður. Konan
hans — Penny Ridgway
er um 20 árum yngri en
hershöfðinginn og þylíir lag-
leg. Hún giftist honum 1947
og er víst að mörgu leyti
hin myndarlegasta húsmóð-
ir. Hún var vinsæl í Tokyo,
þegar Ridgway var her-
námsstjóri Bandaríkja-
manna þar, og eignaðist
mikinn fjölda japanskra
vina. Ridgway segir um
þetta: „Hafi skipti min við
Japani gengið að óskum, þá
er það konunni minni að
þakka.“
Ridgway er gæddur ó-
hemjumikilli starfsorku. 1
Tokyo og Koreu vann hann
sjaldnast skemur en 16.
stundir á dag — og að
loknu 16 stunda dagsverki
á Koreuvígstöðvunum átti
hann það til að gægjast inn
í tjaldið til einhvers að-
stoðarmanna sinna og stinga
upp á því, að þeir færu í
góðan göngutúr!
Hann stökk fyrstur
Hann krefst skilyrðis-
lausrar hlýðni af mönnum
sínum, og hann á virðingu
þeirra. Hann telur sér skyit
að geta gert það — og
gera það — sem liann
krefst af þeim. J?egar hon-
um var falið í síðari lieims-
styrjöldinni að endurskipu-
leggja hersveitir sínar í
Evrópu og gera þær að faU-
hlífarliersveitum, þá taldi
hann það ekki nema sjálf-
sagt, nærri fimmtugur, að
reyna stökkið fyrstur allra.
Að fallhlífarstökkinu loknu,
kallaði hann undirmenn
sína fyrir sig og sagði þeim:
„Það er ekkert dásamlegra
undir sólinni. Maður svífur
tU jarðar, eins og maður
væri konungur alls þess,
sem lifir og hrærist.“
Hann hefur víða farið
sem hermaður og margt
reynt. Hann stundar enn
íþróttir (badminton, tennis,
sund) af miklum áhuga,
•enda duglegur íþróttamaður
á sínum yngri árum. Til
mála kom að senda Iiann
á Olympíuleikana 1928 til
þátttöku í tugþraut her-
manna, en úr því varð ekki,
er honum gafst kostur á
að fara til starfa í Nic-
aragua.
„Skipulagður" flótti
Segja má, að Ridgway
hafi þó ekki vakið á sér al-
heimsathygli fyrr en í des-
ember 1950, er hann var
skipaður yfirmaður her-
afla Sameinuðu þjóðanna í
Koreu. Ridgway tólc við
stjórn á hættustundu: her-
inn var á „skipulögðu und-
anlialdi** fyrir Norðanmönn-
um. Hann var ekki fyrr bú-
inn að taka við stjórnar-
taumunum en hann hélt til
vígstöðvanna. Hann kom
meðal annars í herbúðir,
þar sem foringjar voru önn-
um kafnir við undirbúning
flóttans. Einn þeirra vék sér
að honum með þessum orð-
um: „Hershöfðingi, hér er
áætlun okkar um undanhald
frá þessu svæði“ — og
benti á kortið. „Herrar mín-
ir,“ svaraði Ridgway kulda-
lega, „ég kæri mig ekk-
ert um þessar áætlanir ykk-
ar um undanhald. Ég er
hingað kominn til þess að
sjá sóknaráætlanir ykkar.“
Þrjú einkenni
Ridgway er einkum
kunnur fyrir þrennt með-
al hermanna sinna:
1. Hann er eklti
„heimasetuhershöfðingi",
telur sér skylt að koma
sem oftast í fremstu víg-
línuna.
2. Þegar hann er á víg-
vellinum, klæðist hann
alveg óvenjulega víga-
Iegum búningi, hengir
m. a. liandsprengju fram-
an á brjóstið á sér.
8. Hann liefur stál-
minni, þarf ekki að
mæta manni nema einu
sinni til þess að mima
eftir honum mánuðum
scinna. Dæmi: Hann
þekkir hundruð óbreyttra
hermanna með nafni.
Frétta-
myndir
TYÍBIIKAK OG OTIL, LJÓSHÆRÐ STÚLKA
Það stendur í öllum dýrafræðibókum, að fílar eigi ákaflega
sjaldan tvibura. En hringleikahús í Bandaríkjunum náði sér
samt í þessa ársgamla frá Síam. Stúlkan ? Hún er bara þarna
til þess að fá þá menn til að horfa á myndina, sem engan
sérstakan áhuga hafa á fílum.
SKRÍTINN FARÞEGI
Hænu-unginn, sem maðurinn
er með, er einn af 2,400, sem
bandariskt eggjaframleiðenda-
samband gaf piltum og stúlk-
um í Austurríki. Auðvitað fóru
ungarnir flugleiðis austur um
haf. Þeir unglingar austurrisk-
ir hrepptu hnossið, sem sannað
þótti að hefðu ódrepandi áhuga
á hænsnarækt. Þegar síðast
fréttist, döfnuðu ungarnir á-
gætlega, og þá vafalaust ekki
síst þessi, sem komst héma
á myndina.
SÓLÓFLUG í U.S.A.
Eftir 25 ár verður eflaust
hlegið að þessari mynd. Hver
veit nema þeir verði meir að
segja byrjaðir að hlægja eftir
10 ár. Þá er sennilegast, að
þetta þyki skrítið eins manns
flugtæki. En það er nýjasta
nýtt á þessu sviði í dag: heli-
kopterinn, sem reyrður er á
bakið á þeim mönnum, sem
einhverra hluta vegna leyfa
öðrum mönnum að reyra svona
vítisvél á bakið á sér. Þessi
mun hafa gert það af eintómri
skyldurækni; hann er hermað-
ur í Bandaríkjaher.
MR. KÓNGUR
Prank Costello heitir náung-
inn hér til vinstri. Hann er
talinn kóngur bandarískra
glæpamanna —• lögreglan get-
ur bara ekki sannað það!
Þó tókst fyrir skemmstu að
stinga honum í steininn, er
kviðdómur kvað upp þann úr-
skurð, að hann hefði sýnt
Bandaríkjaþingi megna lítils-
virðingu. Það kostaði fimm ár.