Vikan - 04.09.1952, Blaðsíða 14
14
VIKAN, nr. 34, 1952
— HEFNDIN —
Framhald af bls. 6.
blaðið af honum. Pyrst kom hræðsluglampi í
augu hans, en svo urðu þau sviplaus.
„Gerald Killikk," hvæsti hún. „Nei, mig er ekki
að dreyma. Það ért þú. Þú ert ekki dáinn.“
„Ég skil ekki orð af þvi sem þér segið,“ svar-
aði maðurinn kuldalega. „Ég heiti ekki Gerald
Killikk og ég þekki yður ekki . . .“
„Þú faldir þig, þú varst búinn að sjá mig . . .“
„Ég sá yður stefna á þetta borð og mér geðj-
ast ekki að konum, sem þrengja sér þar sem
þær eru óvelkomnar. Þess vegna leit ég ekki
upp úr blaðinu. En þér skiljið auðsjáanlega ekki
kurteislega bendingu, svo ég leyfi mér að fara
leiðar minnar."
Um leið og hann sagði þetta stóð hann upp og
fór út úr kaffihúsinu. Anna henti peningum á
borðið, lét kaffið eiga sig og hljóp á eftir hon-
um. Hann stóð á gangstéttinni og kallaði á leigu-
bíl. Hann var kominn inn í hann þegar hún þreif
opna hurðina og kastaði sér inn við hliðina á
honum. Hann sneri sér við og starði undrandi á
hana.
„Þetta er hneyksli," byrjaði hann æstur. „Ef
þér viljið að ég kalli á lögregluna og kæri yður
fyrir — ja, þér vitið vel hvað ég á við.“
„Kallaðu á lögregluna, Gerald Killikk," sagði
Anna rólega.
„Hamingjan góða, hefi ég ekki ságt yður . . .“
„Þú getur sagt það hundrað sinnum fyrir mér.
Þú ert Gerald Killikk. Eg veit ekki hvernig stend-
ur á því að þú ert lifandi, en það sem máli
skiptir er að þú ert hér. 1 blaðinu, sem þú held-
ur á stendur að bróðir þinn hafi verið tekinn fast-
ur. Hann á að hafa drepið þig. Hefirðu séð
það ?“
„Ég á engan bróður. Ég . . .“
„Ef þú hefur ekkert annað fram að bera, þá
skal ég kallá á lögregluna sjálf.“
Þá gafst hann upp.
„Þá það,“ muldraði hann þrjóskulega. „Við
skulum þá fara eitthvað, þar sem við getum
talað saman."
Hann starði út um gluggann, svo barði hann í
rúðu bílstjórans.
„Við förum út hér,“ sagði hann.
Þau stönzuðu við gamla ónotaða skrifstofu-
byggingu. Utidyrnar hengu á hjörunum og rúð-
urnar vantaði. Húsið hafði auðsjáanlega orðið
fyrir loftárás, þó það hefði ekki skemmzt mikið.
„Hér verðum við ekki fyrir ónæði,“ sagði hann
þegar þau gengu upp stigann. Og ef einhver
kemur, getum við sagt að við ætlum að líta á
íbúð hér.“
Hann stanzaði ekki fyrr en þau voru komin
upp á þriðju hæð. Húsið var alveg mannlaust
og fótatak þeirra bergmálaði í göngunum.
„Þú segir að Mikael hafi verið tekinn fastur,"
muldraði hann. Nei það vissi ég ekki. Satt að
segja beið ég á kaffihúsinu í von um að sjá hann.
Ég þarf meiri peninga. Mig grunaði ekki að hann
yrði tekinn fastur fyrir þetta. Ef einhver yrði
tekinn, hélt ég að það yrðir þú.“
„En nú var hann tekinn og enginn veit að
þú ert enn lifandi."
Svör við „Veiztu —?“ á bls. 4:
1. „Plying down to Riö“, Gay Divorcee" og
„The Story of Irene and Vernon Castle".
2. Jósef Vissarinovitch Stalín.
3. 296 km.
4. Tchaikowsky.
5. 52. 41 þingmaður er kjördæmakosinn en 11
uppbótarþingmenn.
6. „Prinsessan og svínahirðirinn", eftir H. C.
Andersen.
7. Samskot margra manna til að kaupa mat
og drykk.
8. Hvorugt, skurðurinn liggur frá norðri til
suðurs.
9. Vini, vidi, vici. (ég kom, ég sá og ég sigraði).
10. Scott komst til Suðurpólsins. Titanic sökk
og 1600 manns fórust. William Booth stofn-
aði hjálpræðisherinn. Friðrik 8. dó.
637. KROSSGÁTA VIKUNNAR.
Lárétt skýring:
1 ræður öllu — 7 slæm — 12 gróðurreitur —
13 sjúkdómur — 15 leynd — 17 mannsnafn -—•
18 kreik — 20 kasta upp — 21 óþæg — 23 dýra-
fæða — 26 tveir eins — 27 flýtir — 29 blað —-
31 holdug — 32 framkoma — 34 landslag, þf. ■—
36 frumefnistákn — 37 glæni — 38 fljót —■ 39
þrír eins — 40 bókstafur — 41 brúka — 43 við-
lag — 45 tveir eins — 46 haf — 48 kostir —
50 kvenmannsnafn, þf. — 52 mannsnafn — 53
bátsheiti — 55 kvenmannsnafn, þf. — 57 gang-
flötinn — 60 stunda — 61 tveir samstæðir —-
62 flokka ■— 64 fyrr — 66 beygingarending -—
67 feng — 69 hatur — 71 hjálparsögn — 72
stöðugt —■ 75 jurtafæða — 77 hindrir ■— 78 frjó-
angi (forn ending).
„Ég ætla að drepa þig“
Framhald af bls. 13
Gigtveiki dómarinn staulaðist á fætur. Hann
fullvissaði sig um, að ókunni maðurinn mundi
ekki valda sér-frekari leiðindum, tókst svo ein-
hvernveginn að drösla líkinu bak við háan runna
og lagði byssuna við hlið þess. Hann vissi, að
meira gæti hann ekki gert fyrr en ráðskonan
kæmi heim. Og hann fengi aldrei að vita, hvort
þesum ógæfusama manni hefði í raun og veru
verið alvara, enda þótt hann efaðist ekki um það
eitt andartak, að hlaðin byssan hefði verið næg
ástæða til þess, sem þarna hafði gerzt. Þess-
vegna sneri hann líka hiklaust aftur að stól sín-
um og tók til við lesturinn, þar sem frá var
horfið. Honum fannst greinin um gengisbreyting-
Erum klæöskerar hinna
vandlátu
JAFNT KVENNA SEM KARLA
-I-
■
Klœ'öaverzlun
ANDRÉSAR ANDRÉSSONAR h-f
Laugavegi 3. — Sími 81250. — Reykjavík.
Lóörétt skýrmg:
1 róa gegn vindi — 2 kjör — 3 keyr — 4 geð
— 5 titill, sk.st. —■ 6 vindur — 7 á reikningum
— 8 öðlast — 9 tveir samstæðir — 10 málmur
— 11 viðbúnaður — 14 næringarefni — 16 bú-
fjárafurð — 17 „patentlyf" — 19 rjúkir — 21
meinlaus — 22 lífshlaup — 24 gagn — 25
íþrótt — 28 skyldmenni — 30 húsdýr — 33 sjá
— 35 lim — 37 dauði —- 38 iðngrein — 40 vera
í þrengslum — 42 dropinn — 44 gert að lofti —•
45 ílát — 47 lagði eið — 49 matur — 51 hljóð
— .54 hagar — 56 kvenmannsnafn — 58 hanga
— 59 ró — 63 kjáni — 65 nema — 68 frosið
bold — 70 undirbúið — 71 til þessa — 73 tveir
samstæðir — 74 skammstöfun — 75 frumefnis-
tákn — 76 tveir eins.
Lausn á 636. krossgátu Vikunnar.
Lárétt: 1 ógna — 4 fölsk — 8 baka — 12 ráa
— 13 lof — 14' kór — 15 lem — 16 ætur ■— 18
kulið — 20 mura -— 21 tóm — 23 nón — 24
far — 26 mundangur ■— 30 SOS — 32 Nói -—
33 all — 34 nös — 36 klunnar — 38 rælnast —■
40 mýs — 41 kot —■ 42 svarkar — 46 brotinn —
49 sór — 50 æða — 51 orm -— 52 næg — 53
klaustrin — 57 söl — 58 sin —- 59 net — 62 Ómar
— 64 engir — 66 fata -— 68 lag — 69 óra — 70
nót — 71 lúr — 72 krap — 73 trýni ■— 74 rani.
Lóörétt: 1 óræk — 2 gát — 3 naut — 4 fok
— 5 öfundir — 6 skinnar — 7 kóð — 9 alur —
10 ker — 11 amar — 17 Róm — 19 lóa -—- 20
mar — 22 munnskæll — 24 fullkomin — 25 kol
— 27 nóa — 28 glæ -— 29 kös — 30 skass —
31 sumar — 34 natin — 35 stöng — 37 nýr —
39 not •— 43 vóg — 44 aða — 45 rausnar — 46
botninn — 47 rrr — 48 næm — 53 kör — 54
sig — 55 nef — 56 hólk — 57 saga — 60 tala
61 þari —- 63 mar —• 64 ert — 65 rói — 67 tún.
ar i tímariti lögfræðingafélagsins mjög athyglis-
verð. Og seinna blundaði hann.
Nokkrum stundum síðar sneri Mary heim frá
London.
„Skemmtirðu þér vel?“ spurði dómarinn.
„Ágætlega. En hvernig hefur þér liðið? Voru
brauðsneiðarnar góðar?“
„Hefðu ekki getað verið betri, Mary. Kæfan var
fyrstaflokks og kaffið var sterkt og hressandi.
Þar að auki hefur veðrið verið dásamlegt."
„Svona á það að vera,“ sagði Mary. „En nú
er bezt ég byrji við kvöldmatinn." Og hún lagði
af stað inn í húsið.
En dómarinn kallaði þá á eftir henni: „Heyrðu
annars, bíddu andartak! Það er hérna svolítið,
sem þú þarft að gera fyrir mig fyrst.“
ENDIR.
Framleiðum nú
Vætuvarða GOSULL
í 20 kg. pappírspokum,
2 ferm. pappírsmottum
og vírnetsmottum
af ýmsum stærðum og þykktum.
Vœtuvarin gosull dregur ekki vætu
og flýtur sem korkur.
Reykjavik